Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.05.1991, Síða 9

Símablaðið - 01.05.1991, Síða 9
varða launakjör og starfsaðstöðu starfsfólks, skipun setningu og ráðningu í stöðu, niður- lagningu á stöðum, frávikningu, menntunar- kröfur og önnur mál er varða hagsmuni ein- stakra starfsmanna, starfshópa stofnunar- innar, syo sem aðgerðir sem kunna að fela í sér almenna röskun á atvinnuöryggi og hög- um starfsfólks, hvort sem slík mál berast frá Póst- og símamálastjóra eða einstakir ráða- menn bera þau fram. Ráðið skal fjalla um tillögur og hugmyndir starfsmanna um að- búnað öryggi og hollustuhætti á vinnustað. Jafnframt skal tilkynna í ráðinu allar meiri- háttar breytingar á skipulagi stofnunarinn- ar. Breyting hefur verið gerð varðandi laus- ar stöður, Samgönguráðuneytið auglýsir nú stöður framkvæmdastjóra og yfirmanna sem heyra beint undir þá, stöðu umdæmisstjóra, Símastjórans í Reykjavík, Póstmeistarans í Reykjavík svo og stöður þeirra yfirmanna sem heyra beint undir þá. Ennfremur stöð- ur stöðvarstjóra og póstútibústjóra. Póst- og símamálastofnunin auglýsir allar aðrar stöð- ur. F.Í.S. á 2 fulltrúa í Starfsmannaráði. SÍMABLAÐIÐ Símablaðið hefur komið út tvisvar á síð- asta starfsári og er þar að finna allt það markverðasta sem gerst hefur í félagsstarf- inu. Mjög mikill kostnaður er nú við útgáfu Símablaðsins og fer vaxandi vegna þess mis- ræmis sem er á útseldri þjónustu og launum starfsmanna. FRÆÐSLUSTARF Fræðslunefnd F.Í.S. gekkst fyrir fræðslu- námskeiði í Munaðarnesi dagana 3., 4. og 5. október sl. 30 trúnaðarmenn félagsins sátu námskeiðið. Fræðslunefndin hefur ákveðið að efna til fræðsluráðstefnu 20. apríl nk. og hefst hún klukkan 13:00 að Holiday Inn. Þar verða flutt stutt fræðsluerindi um réttinda- mál, kjarasamninga, lífeyrismál o.fl. EFTIRL AUN ADEILD Eftirlaunadeild F.Í.S. hefur starfað með miklum myndarskap að vanda undir forystu Þóru Timmermann. f ágúst var farin hin ár- lega skemmtiferð deildarinnar og var nú farinn hringvegurinn, hvorki meira né minna, með viðkomu á hálendinu, þær Askja og Herðubreið, drottning hins norð- lenska hálendis, skoðaðar í blíðskapar veðri. í nóvember komu félagarnir saman, spiluðu og fengu sér snúning. í febrúar var haldið þorrablót með miklum glæsibrag, þar mættu um 100 manns. Starf Eftirlaunadeild- arinnar er ómetanlegt og þeim til sóma sem að því standa. ÖRYGGISMÁL OG VINNU- VERND Gunnar Þórólfsson á sæti í öryggisnefnd Póst- og símamálastofnunarinnar sem full- trúi F.Í.S. A síðast liðnu ári hafa ýmis mál og fyrirspurnir borist öryggisnefndinni frá starfsmönnum. Má þar sérstaklega nefna málefni loftnetamanna stofnunarinnar um vinnureglur í loftnetamöstrum, sem leiddi til þess að ákveðið var að halda námskeið í öryggisbúnaði á vegum Póst- og símaskól- ans og verða þau haldin á Jörfa dagana 8. til 10. og 15. til 17. apríl 1991. SÍMAKÓRINN Stofnaður hefur verið kór innan F.Í.S., Símakórinn. Þessi ágæti kór kom fram í fyrsta skipti á árshátíð F.Í.S. 2. mars sl. Stofnun kórsins er mikill menningarauki í starfsemi félagsins og væntum við góðs af starfsemi hans. ÝMIS MÁL Heiðursfélagi F.Í.S., Jón Kárason, fyrr- verandi aðalbókari Pósts- og síma hefur nú látið af störfum hjá stofnuninni. Jón hefur nú hafið störf á skrifstofu F.Í.S. og er hann sérstaklega boðinn velkominn til starfa hjá félaginu. Síðastliðið starfsár hefur verið fjölþætt og félagsstarfið fer stöðugt vaxandi. Telefax- tæki hefur verið sett upp á skrifstofu F.Í.S., faxnúmer 27011. Sérstakur símatími er kl. 10 til 12 alla virka daga, símanúmer 22359 og 636561. Utan símatíma er tengdur símsvari við símanúmer 636561 þegar á þarf að halda. SÍMABLAÐIÐ 7

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.