Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.05.1991, Síða 12

Símablaðið - 01.05.1991, Síða 12
Svanhildur Halldórsdóttir. Ágúst Geirsson. Svanhildur Halidórsdóttir sagði frá merk- um sögulegum áföngum í baráttu opinberra starfsmanna. B.S.R.B. hefði verið stofnað 1942 og eitt af stofnfélögunum hefði verið F.I.S. elsta félag opinberra starfsmanna. „Með stofnun, vexti og viðgangi B.S.R.B. má segja að hefjist lokakaflinn í þeirri skipulegu þróun verkalýðshreyfingar- innar á Islandi sem hófst á ofanverðri síð- ustu öld með stofnun einstakra verkalýðsfé- laga“, sagði Svanhildur. Hún gat merkra áfanga í baráttunni: 1962 Náðist fram samningsréttur með kjaradómi og kjaranefnd. 1972 Náðist fram sérkjarasamningur til fé- laganna. 1976 Náðist fram verkfallsréttur um aðal- kjarasamninga B.S.R.B.. 1986 Fengu aðildarfélögin samningsréttinn til sín og náðist fram verkfallsréttur um allan samninginn. Svanhildur ræddi því næst um starfsemi B.S.R.B., skrifstofan væri opin lla virka daga til þjónustu við einstaklinga , félögin. Á skrifstofunni er mikið safn upplýsinga. Samtökin eru umsagnaraðili um fjölmörg mál sem snerta beint eða óbeint hagsmuni samtakanna svo sem húsnæðismál, dagvist- unarmál, lífeyrissjóðsmál, og fæðingarorlof. Sérhæfð vinna og stuðningur við starfshópa er einn liður starfsins. B.S.R.B. hefur beitt ýmsum ráðum til að fylgja málum eftir til að gæta hagsmuna fólks eins og með því að gangast fyrir útifundi vorið 1989 er hafði það verkefni að stöðva hækkanir á matvöru. Þetta var einn fjölmennasti útifundur á ís- landi með u.þ.b. 25 þúsund fundarmenn, enda hafði hann sín áhrif. Samtökin gefa út blað og ýmislegt efni með lögum og reglum. Svanhildur taldi að launamenn gætu ekki verið án bandalaga. Sundruð værum við veikari og rödd okkar heyrðist ekki eins vel. Ágúst Geirsson ræddi um starfsmenntun- arsjóð ríkisins. Sjóðurinn hefur starfað frá árinu 1980 með það hlutverk að efla og auð- velda starfs- og endurmenntun ríkisstarfs- manna innan B.S.R.B.. Tekjur sjóðsins voru fyrst 0,15% af föstum tekjum síðan 0,22% og nú 0,22% af heildartekjum. Þau tíu ár sem sjóðurinn hefur starfað hefur hann veitt um 70 millj. í styrki til sex þús- und umsækjenda. Árið 1990 voru afgreiddar 1240 umsóknir og veittar 18,2 millj. króna í styrki. Hæstu styrkir nema nú kr. 80.000. Ágúst taldi þá hækkun er náðist í samn- ingunum 1990 er ákveðið var að greiða af heildarlaunum í sjóðinn afar þýðingarmikla. Nokkuð væri misjafnt hvernig styrkveitingar skiptust milli hinna ýmsu félaga. Það færi eftir aðstæðum. T.d. hefði það vafalaust 10 SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.