Símablaðið - 01.05.1991, Qupperneq 26
í Salzburg, leitin að næturlífinu að hefjast. F.v.: Sigríður E., Sigríður J., Sara og Sóley.
Essin fjögur
— leggja land undir fót
Þann tólfta ágúst 1990 hófst ferð „Essanna fjögurra“, þ.e. þeirra Söru H. Sigurðardóttur,
Sóleyjar N. Ingólfsdóttur, Sigríðar E. Helgadóttur og Sigríðar Jóhannsdóttur. Ferðinni var
heitið til Austurríkis og Ítalíu og fyrsti áfangastaður var Salzburg.
Að öllum líkindum er ferðalag þetta orð-
ið víðfrægt nú þegar fyrir þær sakir að annar
eins fjöldi undirbúningsfunda hefur ekki
þekkst fyrr á íslandi !!!
Til Salzburg komum við eftir tíðindalitla
flugferð, hressar og ólmar í að kynna okkur
næturlífið þar um kvöldið, áður en lagt yrði
af stað í skoðunarferðir. Skemmst er frá að
segja að ráðagerðin sú fór fyrir lítið þar sem
nætur„lífið“ í borginni er steindautt !!!
Heimamenn litu á okkur stórum augum
þegar við spurðum um skemmtistaði með
lifandi tónlist og tjáðu okkur að slík fyrir-
bæri fyndust ekki í „stórbprginni'1 Salzburg.
Hin þekkta þrautseigja íslendinga lét þó
ekki að sér hæða og að lokum tókst að finna
eitt hótel, skammt fyrir utan borgina, þar
sem tónlist átti að vera leikin af fingrum
fram. í ljós kom að þarna var eingöngu dis-
kótek og á dansgólfinu voru tvær konur.
Var því ekki um annað að ræða en að fara
heim að sofa!
Haldið til Ítalíu
Morguninn eftir ókum við sem leið lá
suður yfir Alpana til Ítalíu, nánar tiltekið til
Porto Verde, sem er lítið þorp rétt við Rim-
ini. A meðan á ferðinni stóð veittum við því
athygli hvað húsin urðu óvistlegri og allt
sóðalegra eftir að farið var yfir landamæri
Italíu. Austurríki er á hinn bóginn afar
hreint og fagurt land. I Porto Verde var
dvalist í viku og þar var margt sem gladdi
augað, til dæmis er smábátahöfnin þar
hreint augnayndi.
Einnig var tíminn notaður vel í skoðunar-
ferðir og var m.a. farið til Flórens og Písa.
Ferðin þangað var afar skemmtileg og fræð-
24 SÍMABLAÐIÐ