Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.05.1991, Page 28

Símablaðið - 01.05.1991, Page 28
90% plómu- og peruvín. Einn galli var þó á gjöf Njarðar, en hann var sá, að við urðum að drekka jafnmörg glös og samsvaraði fjölda gestanna, því hver og einn bauð uppá glas. Það vildi okkur til happs að gestirnir voru einungis þrír talsins! Eitt kvöldið var okkur boðið heim til Örnu og Walters, þar sem heimagerðir ostar, pylsur og brauð voru á boðstólum. Við skoðuðum nálæg fjallaþorp og ókum yfir landamærin til Júgóslavíu þar sem hið fagra Bled vatn er staðsett. Ekki var hlaup- ið að því að komast að vatninu, þar sem m.a. þurfti að bíða í fimm kílómetra langri biðröð í 18% halla. Á leiðinni til baka villt- umst við í eina skiptið á allri ferðinni. Ljúft og skylt er að geta þess að Sóley sat undir stýri meirihluta ferðarinnar og stóð sig eins og hetja. Bifreið okkar var heldur ekki af lakara taginu: Opel Vektra. Sem sannir og áhugasamir póst- og síma- starfsmenn ákváðum við að skoða einn póst- og símavinnustað. Fyrir valinu varð pósthúsið í Volkermarkt sem er bær við Mittertrixen. Þar var okkur sýnt það mark- verðasta og var afar vel tekið á móti okkur. Eftirtektarverðast var hversu líkt allt var hér og heima, þannig að auðvelt var að ímynda sér að til dæmis um pósthúsið R-8 væri að ræða!!! Vínarborg heimsótt Að lokinni skemmtilegri dvöl í sveitinni var haldið til Vínarborgar. Þar var ánægju- legt að vera og margt að sjá. í borginni er fjöldi markverðra staða til að skoða, svo og til að njóta lista. Sem dæmi um staði sem við skoðuðum má nefna: Schönbrunn-höll- ina og garðana umhverfis hana. Höll þessi var sumarhöll Maríu Theresu, keisara- drottningar; stórfengleg bygging sem líkist helst Versölum í Frakklandi. Einnig litum við á Belvedere-höllina, Stefánsdómkirkj- una, ásamt fjölda annarra fallegra og sögu- frægra bygginga. A listasviðinu gerðum við ýmislegt spenn- andi, t.d. fórum við á söngleikinn Cats. Reyndist það bæði skemmtileg og svolítið sérkennileg upplifun að hlusta á þessi þekktu og frægu lög sungin á þýsku í stað enskunnar. Einnig var farið á jasstónkeika Á Markúsartorginu í Feneyjum. F.v.: Sig- ríður E., Sigríður J. og Sóley. með Oscari Klein, en hann er einn frægasti jasstónlistarmaður Austurríkis. Ekki er hægt að sækja Vinarbúa heim án þess að hlýða á Vínarvalsa og aðra Vínartónlist. Við hlýddum á ljúfa Vínartóna í garði sem kenndur er við Jósef Strauss, en þetta er einn af mörgum görðum borgarinnar. Þar spilaði hljómsveit í geysifallegum laufskála og áheyrendur sátu og drukku kaffi og snæddu að sjálfsögðu vínarbrauð með !!! Má með sanni segja að okkur hafi þótt dvöl- in í Vín vera hápunktur ferðarinnar. Eftir tvær viðburðaríkar og allt of stuttar vikur voru „Essin fjögur“ komin aftur til Salzburg, þar sem meðal annars var litið á húsið sem Mozart bjó í, ásamt húsinu sem hann notaði sem vinnustofu. Síðustu nótt- inni var eytt í Salzburg áður en haldið var aftur heimá „Klakann“. 26 SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.