Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2006, Blaðsíða 48
84 FÖSTUDAGUR 28. JÚLl2006
Helgin ÐV
Fimm piltar frá suðrænum slóðum Evrópu urðu á vegi blaðamanns DV á dögunum. Þeir Mikel, Ignacio, Elis-
eu, Manuel og Pall Bustillo komu hingað til lands eftir að einn þeirra hafði skrifað skáldsögu um ísland. Þar
bjuggu sögupersónur í vita og íslendingar hlupu um naktir á götum úti. Veruleikinn varð annar. Fallegt lands-
lag en jafnframt dýrt land. Og Reykjavík er rignandi segir einn piltanna.
Vitahjón og nakið fólk
í skáldsögu um ísland
„Hvernig líkar þér ísland?" er klassísk spurning sem blaðamaður
DV kemur út úr sér á tjaldstæðinu í Laugardal á vindasömum
rigningardegi í júlímánuði. Mikel Gurrea, 21 árs drengur írá Spáni,
er inni í tjaldi að ferðbúa sig. Hann segir að honum líki við ísland
en ekki sérlega við Reykjavík. Með í för eru fjórir félagar hans frá
Spáni, Ignacio Blasco, Eliseu Arrufat Grau, Manuel Rodriguez
Guerra og Pall Bustillo Aguiló.
„Við ákváðum að koma til Islands
eftir litla umhugsun á síðasta ári," segir
Mikel Gurrea, Spánverji á tvítugsaldri
- sem er ekki nógu sáttur við veðrið í
Reykjavík. „Við komum til Reykjavík-
ur í byrjun júlí og vorum í tvo daga.
Þá rigndi mjög mikið," segir hann og
heldur áfram að útskýra fyrir blaða-
manni ferðalag þeirra hér á landi:
„Svo keyrðum við hringinn í kringum
landið á tólf dögum og komum aftur
til Reykjavíkur. Þá rigndi aftur," segir
hann og kemur með gott heiti á höfiið-
borg lands og ísa: Rignandi Reykjavík.
Góð meö kjúklingi, svínakjöti, reyktum laxi, graflaxi, sem
salatsósa og í kalt pastasalat hverskonar.
. VO'GABÆR
Frábær köld með kjúklingi og lambakjöti og út á pizzuna.
Góð á saltkexið með rifsberjahlaupi og sem ídýfa.
Keyrðu 3000 km
En af hverju komu þeir til íslands?
Mikel segir að það hafi verið fyrir til-
stuðlan félaga hans Ignacio. „Hann
hafði skrifað skáldsögu um ísland. Við
höfðum svo allir hlustað á Sigurrós,
Múm og Bj örk og ákváðum í framhald-
inu að fræðast meira um landið allt því
við þekktum það nánast ekki neitt,"
segir Mikel. Drengimir koma leggja
allir stund á háskólanám á Spáni.
Þeir leigðu sér Mercedes Benz
smábíl og keyrðu rúma 3000 km hér
álandi.
Naktir, hlaupandi íslendingar
„Ég skrifaði skáldsögu um ísland
því ég hafði ekki tök á að gera kvik-
mynd um landið," segir hinn tvítugi
Ignacio. Sagan er rúmlega 150 blað-
síður og ijallar um par sem óvænt
endar hér á landi. „Sögusviðið er viti.
Maðurinn er vitavörður og sagan fjall-
ar um samband þeirra tveggja og svo
samband mannsins við vitann," seg-
ir Ignacio, sem hélt að fsland væri allt
öðruvísi: „Andrúmsloftið og staðhætt-
ir hér urðu svo allt annað en ég hafði
skrifað um. Ég hélt að ég hefði lýst
landinu rétt en annað kom á daginn,"
segir hann og bendir einnig á að sagan
hafi verið mjög frjálsleg - því hann hafi
talið að íslendingar væru það að ein-
hveiju leyti.
Sem dæmi má nefiia þá gekk fólk
um nakið á götum úti án þess að verða
fyrir áreiti. Og veðrið. Það var alltaf
gott. „Þetta varð svo allt annað en ég
hafði ímyndað mér," segir þessi ungi
rithöfundur sem leitar sér nú að útgef-
anda á Spáni.
Ignacio Skrifaöl skáldsogu um
Island sem varð til þess að hann og
fjórir félagar hans ákváðu að koma
hingað til lands og kanna aðstæður
Lifðu á dósamat og brauði
„ísland er ekkert smá dýrt land,"
segir Mikel við blaðamann. Hann segir
þá félaga hafa lifað á dósamat og brauði
nær allan þann tima sem þeir hafa ver-
ið hér á landi. Og þegar þeir horfðu á
Ítalíu og Frakkland bítast um heims-
meistaratitilinn í fótbolta voru þeir al-
veg búnir með peningana sína. Þá lét
hungrið að sér kveða. „Við horfðum á
breska túrista borða steikur. Við vorum
eins og hrægammar - okkur langaði
svo í alvöru mat," segir Mikel. Strákam-
ir taka undir og nefiia síðar að bjórinn
hér á landi sé allt, allt of dýr. „Á Spáni
kostar bjórinn hundrað kall. Hér kostar
hann sex hundruð kall."
Fundu ekki djammstaðina
En næturlíf? Strákamir segja
að þeir hafi ekki orðið varir
við mikið næturlíf á íslandi.
Þrátt fyrir að næturlíf fs-
lands sé þekkt sem villt og
galið - eða í það minnsta
auglýst sem slíkt.
„Við fimdum ekld
skemmtistaðina," seg-
ir Mikel. Blaðamað-
ur bendir piltunum á
hvar þá er að finna.
„Við vissum alveg að
þeir væm héma," segir
Mikel hlæjandi: „Við vor-
um bara ekki mikið að leita,"
segir hann áður en piltam-
ir kveðja blaðamann með
handabandi. Þeir em á leið
út á flugvöll og æda að flýja
rigninguna.
gudmundur@dv.is
■m 'w
Strákarnir Keyrðu um allt á Benz-
bílaleigubll. Lögðu 3000 kllómetra
að baki og boröuðu dósamat.
Tjaldbuar
ÞeirMikel, Ignaáo, Manuet, Pallog Eliseu
gistu I tjaldi vlðs vegar um landið en sögðu
rigna áberandi mest I Reykjavlk.
■