Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2006, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST2006
Fréttir DV
Sandkorn
Óskar Hrafn Þorvaldsson □
• Það er alveg ljóst
að þeir ríku verða
ekki ríkari fyrir tilvilj-
un. í blaði dagsins
má sjá hvernig millj-
arðamæringurinn
Lýður Guðmundsson
sparar umtalsverða
peninga á því að leigja glæsikerrur í
stað þess að eiga þær. Magnús Þor-
steinsson, aðaleigandi Avion Group,
er annar maður sem passar sig að
eyða ekki of miklu. Eignir Magnús-
ar eru metnar á tæplega 30 millj-
arða en hann sá sér samt ekki fært
að borga í stöðumæli við Bæjarins
bestu á dögum. Hann skellti göml-
um sektarmiða á rúðuna frekar en
borga hundrað kall í stöðumæli...
• Borgarstjórinn Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson hefur látið verða af því
að endurnýja bfla-
kost embættisins.
Ljóst er að bflstjóri
borgarstjórans mun
gleðjast því hann ku
hafa verið orðinn
ansi þreyttur á því
að skutla Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladótt-
ur um bæinn í borg-
arstjóratíð hennar
á hversdagslegum
Nissan Primera. Nýi
bíllinn hans Vil-
hjálms er flunkunýr
Audi A8, sá dýrasti
frá Heklu, og kostar um tíu milljónir
sérpantaður frá Þýskalandi...
• Geir Ilaarde, forsætisráðherra
og formaður Sjálfstæðisflokksins,
er afar upptekinn
maður. Hann er þó
mikill áhugamaður
um laxveiði og reyn-
ir að skella sér eins
oftoghanngeturí
þéttskipaðri stunda-
töflu. Honum tókst
að veiða sinn fyrsta lax á flugu þegar
hann var á veiðum í Norðurá fyrr í
sumar og segja kunnugir að hann sé
hinn fínasti veiðimaður enda vanur
í annars konar veiðimennsku eftir
áratuga prófkjörsbaráttu og kosn-
ingar...
• Stórvinirnir Hannes Smára-
son, forstjóri FL Group, og Þor-
móður lónsson,
framkvæmdastjóri
auglýsingastofunn-
ar Fíton, keyptu sér
á dögunum tveggja
hæða íbúð á besta
stað í hjarta Kaup-
mannahafnar. Hann-
es er tíður gestur í
Kaupmannahöfn
vegna umsvifa FL
Group í Danmörku
og því notafegt að
hafa stað til sofa á.
Þeir félagar gerðu
sér víst lítið fýrir og
skiptu um einangrun í loftinu á milli
hæðanna. Ástæðan ku vera sú að
þeim finnst báðum skemmtilegt að
halda góðar veislur og þá er betra að
það heyrist sem minnst á milli...
• Skemmtikraftur-
inn Auðunn Blön-
dal hefur skipt um
hárgreiðslu og þótti
mörgum kominn
tími til. Hárvöxtur
Auðuns ofan á koll-
inum hefur í langan
tíma verið í Iitlu samræmi við hárið
annars staðar á skrokknum en nú er
hann orðinn snoðaður. Það er mál
manna að hann taki sig afar vel út
með nýju klippinguna enda hafi sú
gamla verið orðin þreytt...
Bakkabróðirinn Lýður Guðmundsson, sem er einn rikasti maður landsins, hefur kom-
ið sér vel fyrir ásamt fjölskyldu sinni á Starhaganum í Vesturbæ Reykjavikur. Vegfar-
endur hafa ekki komist hjá því að taka eftir þremur glæsikerrum af gerðinni Range
Rover, Porsche og Mercedes Benz, sem standa fyrir utan heimili hans.
Flottir Eins og sjá má eru þetta engar
venjulegar giæsikerrur sem standa I
innkeyrslunni hjá Lýði á Starhaganum.
DV-mynd Óskar
Því væri langhagstæð-
ast fyrír hann að leigja
bílana sjálfur og geta
þannig talið umtals-
verðan kostnað á móti
bifreiðastyrk til að
sleppa við að borga
skatt af honum.
Lýður Guðmundsson, betur þekktur sem annar bakkabræðra í
Bakkavör og starfandi stjórnarformaður eignarhaldsfélagsins Ex-
ista, er einn ríkasti maður landsins. Eignir hans eru metnar á
rúmlega 50 milljarða króna og hann lifir samkvæmt því. Heimild-
ir DV herma að hann hafi nýverið fest kaup á íbúð í London fýrir
500 milljónir en auk þess hefur hann komið sér vel fyrir á íslandi.
Hann býr í nýuppgerðu einbýlishúsi á Starhaga og er með þrjá
lúxusvagna í heimreiðinni. Þá
Geysi í Reykjanesbæ.
Glæsikerrurnar sem standa fyrir
framan hús Lýðs á Starhaganum eru
ekkert slor. Fyrst ber að telja Porsche
Cayenne Turbo, sem er 451 hestafls
tryllitæki og er metinn á 12,5 millj-
ónir. Næst er það Range Rover Sport
HSE sem er metinn á 10 milljónir.
Síðast en ekki síst er það sportbfll-
inn Mercedes Benz 500 SL sem er
einnig metinn á rúmlega 10 milljón-
ir. Á þessu má sjá að bflaflotinn sem
stendur fyrir utan hús Lýðs er met-
inn á rúmlega 30 milljónir króna.
Leigir alla bílana
Það er þó athyglisvert að Lýður á
sjálfur ekki einn einasta af þessum
þremur bflum. Þeir eru allir leigð-
ir af Bflaleigunni Geysi í Reykjanes-
bæ. Það vekur óneitanlega athygli
að maður sem er jafn vel stæður og
Lýður skuli ekki eiga bflana sjálfur
en eftir því sem DV kemst næst er
þetta fýrirkomulag þó eingöngu af
fjárhagslegum ástæðum. Skattalög-
fræðingur sem DV ræddi við sagði
það greinilegt að Lýður tímdi ekki
leigir hann alla af Bflaleigunni
að eiga bflana né heldur að láta fyr-
irtæki sitt útvega sér bfla þar sem
hann þyrfti þá að borga hlunninda-
skatt sem er um 20% af verðmæti
bflsins. Því væri langhagstæðast fyrir
hann að leigja bílana sjálfur og geta
þannig talið umtalsverðan kosmað
á móti bifreiðastyrk til að sleppa við
að borga skatt af honum. Laun Lýðs
voru á síðasta ári 722 þúsund á mán-
uði, samkvæmt tekjublaði Frjáls-
ar verslunar, og má búast við því að
stór hluti þeirra launa hafi verið bif-
reiðastyrkur.
Hagstæðast fyrir hann
Garðar Vilhjálmsson, eigandi
Bflaleigunnar Geysis, sagði í samtali
við DV í gær að það væri eðlilegt að
menn eins og Lýður, sem eru mikið
á ferð og flugi, leigðu bíla frekar en
að eiga þá. „Við bjóðum upp á marg-
ar gerðir af giæsikerrum og það eru
nokkrir einstaklingar sem hafa nýtt
sér þessa þjónustu okkar. Það er
þægilegra fyrir þá að láta okkur sjá
um þetta fýrir sig heldur en kaupa
bfl og hafa áhyggjur af honum," sagði
Garðar.
Aðspurður sagði hann að sól-
arhringsleiga á Porsche Cayenne
Turbo væri um 40 þúsund krónur.
Vill hafa allt á hreinu
Allir bflarnir sem Lýður hefur til
umráða eru ljósgráir. DV hafði sam-
band við Ellý Ármannsdóttur, sem
heldur úti vefsíðunni spamaður.is,
og hún sagði að grái liturinn væri
táknrænn fyrir einstaklinga sem
vildu hafa hlutina á hreinu.
Grár litur merkir að öku-
maður vill alls ekki láta of
mikið á sér bera í umferð-
inni. Hann þolir ekki óreiðu,
óhreinindi eða drasl, hvorki
í sínu nánasta umhverfi né í
bflnum. Eigandi gráa bflsins
er án nokkurs vafa snyrti-
pinni, ef svo má að orði kom-
ast, sem vill hafa nóg
inni á banka-
bókinni og
vel straujað-
ar skyrturn-
ar sem hann
gengur í.
Skflaboðin
eru skýr:
Eigandinn
vill ein-
faldlega
hafa
allt á
hreinu í
lífi sínu
og þar er auðvitað bflinn inni í
myndinni, hreinn að utan sem inn-
an," sagði Ellý.
Metinn á yfir 50 milljarða
Eins og áður sagði er Lýður einn af
auðugustu mönnum landsins. Hann
hefur byggt upp mikið veldi ásamt
bróður sínum Ágústi í Bakkavör
Group en helstu eignir þeirra bræðra
eru nú í gegnum eignarhaldsfélagið
Exista. Það félag er stærsti hluthaf-
inn í KB banka, Símanum og Bakka-
vör Group auk þess sem það á
VÍS með húð og hári. Lýð-
ur og Ágúst voru hvor um
sig metnir á 55 milljarða
þegar DV birti Usta yfir
ríkustu memt íslands
í lok maí og voru þá í
fjórða til fimmta sæti list-
ans.
oskar@dv.is
Sigurður Guðmundsson landlæknir
Farinn til Malaví í ár
Sigurður Guðmundsson land-
læknir verður í leyfi frá landlækn-
isembættinu frá október næstkom-
andi til október á næsta ári, en hann
er á förum til Malaví í Vestur-Afríku
fyrir hönd Þróunarsamvinnustofn-
unar íslands til eins árs. Landlækn-
ir mun verða umsjónarmaður upp-
byggingar heilsugæslu við Apaflóa,
en Þróunarsamvinnustofnun hefur
unnið að uppbyggingu heilsugæslu
á 110 þúsund manna svæði í land-
inu frá árinu 2000.
Kona Sigurðar, Sigríður Snæ-
björnsdóttir hjúkrunarforstjóri í
Reykjanesbæ, fer einnig til starfa í
Malaví og verður því einnig í árs-
leyfi frá störfum.
Sigurður Guðmundsson
landlæknir TilMalaviieittái
Duglegir slökkviliðsmenn í maraþoninu
Hlaupa 10 km með hjólastóla
Tuttugu slökkviliðsmenn af höfuð-
borgarsvæðinu munu hlaupa 10 kfló-
metra í Reykjavíkurmaraþoninu um
helgina með fjóra einstaklinga bundna
við hjólastóla.
í samstarfi við íþróttafélag fatlaðra
í Reykjavík ætla þeir að gefa fötluðum
kost á að taka þátt, bæði til styrktar fé-
laginu og svo líknarsjóði Brunavarða-
félags Reykjavíkur. Markmið hans
er að sinna starfsbræðrum þeirra og
öðrum verði þeir fýrir áföllum í lífinu.
Orkuveitan, Bónus og Össur hf. styrkja
verkefnið að þessu sinni en ágóði
skiptist til helminga.
„I fýrra söfnuðust rúmlega 300
þúsund krónur. I ár vonumst við til
að safna meiru," segir Haukur Grönli
slökkviliðsmaður.
„Fatlaðir fá þama möguleika á að
taka þátt í þessu hlaupi án þess að
þurfa að kosta til þess aðstoðarmenn.
Það finnst okkur frábært," segir fram-
kvæmdastjóri ÍFR, Þórður Ólafsson.
Vonast eftir styrkjum Þeirsem vilja styrkja
málefnið er bentá slökkvilið Flöfuðborgar-
svæðisins. Reikningsnúmer I söfnuninni er
111-26-89402. Kennitala 460279-0469.