Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2006, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2006, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST2006 Fréttir DV Ástandið á Sri Lanka er vægast sagt skelíilegt. Mikil spenna ríkir á milli stjórnarhersins í landinu og Tam.il- tígranna sem eiga í deilum um landsvæði. Vopnahlé hefur þó verið viðvarandi síðan árið 2002. Marvin Ingólfsson, sprengjusérfræðingur hjá Landhelgisgæslunni, kom nýverið heim frá Sri Lanka þar sem hann gegndi friðargæslu- störfum á vegum Norrænu friðargæslunnar. Beinlínis á hliðarlínu vígvallar stjórnarhersins og Tamil-tígranna. Marvin Ingólfsson kom nýverið heim frá Sri Lanka þar sem hann starfaði hjá Norrænu friðargæslunni, SLMM. Hann fór til landsins í byrjun janúar og hafði því verið þar í um hálft ár þegar hann kom heim, staldraði stutt við og fór svo aftur út, þá til Englands í sprengjueyðingarþjálfun hjá breska hemum. Marvin segir DV frá starfi friðargæslunnar, aðstæðum á Sri Lanka og hvemig var að vinna þar frá maka og aðstandendum í hálft ár. Marvin Ingólfsson er 27 ára sprengjusérfræðingur hjá Landhelg- isgæslunni og var lánaður til starfa hjá Norrænu friðargæslunni, SLMM, í janúar á þessu ári. Hann kom heim til fslands á dögunum eftir að hafa verið í rúma sjö mánuði frá maka, ættingj- um og vinum á hliðarlínu vígvallarins í Sri Lanka ásamt ríflega 60 öðmm frið- argæsluliðum. Hann segir reynsluna af starfinu ómetanlega en jafnframt hafa saknað sambýliskonu, ættingja og vina sinna mikið. Báðir aðilar vilja frið Á Sri Lanka hefur verið vopnahlé frá árinu 2002 og er það í raun hlut- verk Norrænu friðargæslunnar að sjá til þess að því sé fylgt eftir. LTTE, eða Tamil-tígramir, berjast við stjómar- herinn í landinu þrátt fyrir vopnahléið. Tamil-tígramir berjast fyrir heima- landi sínu og eiga deilumar sér langar sögulegar forsendur. Marvin starfaði mestmegnis í borg- inni Trincomale. „Ég er alveg með á hreinu að báðir aðilar viljafá frið og vilja það meira en nokkuð annað. Það sem er að gerast er að mikið af smáhópum er í landinu og þeir gera árásir - gagn- gert í þeim tilgangi að andstæðingum þeirra verði kennt um," segir Marvin og bendir á að algengt sé að kenna Tamil- tígrunum um það sem miður fer. Starfið fólst mestmegnis í því að fylgjast með að vopnahléinu væri framfylgt. „Það sem ég var helst að gera þama var að fylgjast með um borð í skipum á vegum LTT og ríkis- stjómar Sri Lanka og svo var ég líka á landi," segir Marvin og heldur áfram: „Þar vorum við að mónitora um borð. Ef eitthvað gerðist gripum við í raun ekki inn í sjálfir. En við vomm á staðn- um, tókum niður skýrslur um hvað var að gerast, tókum myndir og þar fram eftir götunum. Að því loknu sendum við báðum aðilum upplýsingar um hvað var að gerast." Stíum engum í sundur Marvin segir að hann hafi aldrei verið í beinni lífshættu - þó vissulega sé stórhættulegt að vera í landi þar sem geisar stríð. „Við vorum stundum kallaðir út þar sem sprengjur vom eða höfðu sprungið. Það sem við gerðum þá var að tilkynna það - ef herinn og lögreglan vom ekki komin á staðinn," s'egir hann. „Við vomm alltaf í ömggri fjarlægð og ekki að flækjast í þeim málum. Það sem er með báða aðila er að hvomgur vill skaða þig sem friðar- gæsluliða - en vissulega geturðu ver- ið rangur maður á röngum stað," segir Marvin og vísar til þess að friðar- gæsluliðar ferðist með öðrum hvorum deiluaðilanum og það geti komið fyrir að hinn deiluaðilinn viti ekki að ffiðar- Fylgst me6 Hér fylgist Marvin meö átökum úti á sjó. Þarna er hann staddur um borö i herskipi stjórnarhers Sri Lanka undan ströndum Trincomalee. gæsluliðamir eru með í för. „Það má ekki misskilja þetta þannig að SLMM sé að hoppa á milli deiluað- ila og stía þeim í sundur ef átök verða. Við erum mennimir sem stöndum til hliðar á vígvellinum, fylgjumst með því sem er að gerast og skráum það niður. Við vinnum fyrir báða aðila og erum á milli þeirra í átökum." Spennandi tækifæri En hvemig var upplifunin, að fara frá hinu ömgga íslandi og í verkefni fyrir SLMM í stríðshrjáðu landi? Marvin segir að einfaldlega hafi ekld verið hægt að sleppa tækifær- inu. „Þetta var spennandi tækifæri og áskorun fyrir mig sjálfan og það var mín tilfinning fyrir þessu öllu saman." Hann segir undirbúninginn hafa gengið vel og hann hafi verið spenntur fyrir að takast á við verkefiiið. „En þeg- ar þú ferð út í svona geturðu ekki gert þér í hugarlund hvað þú ert að fara út í. Ekki fyrr en þú ert kominn á staðinn og hefur verið þama." Marvin segir að óstöðugt ástandið gangi í bylgjum. „Þegar ég kom út var ástandið frekar slæmt og óstöðugt. Á miðju tímabilinu fór ástandið að róast en svo varð það eins og það er núna. Slæmt." Marvin segir títringinn í landinu núna vera meðal annars tilkominn í kjölfar þess að Tamil-tígramir vom settir á lista Evrópusambandsins yfir hryðjuverkamenn. Það sé vissulega slæmt, því nokkrir friðargæsluliðar vom frá löndum ESB. „Þeir vilja ekki vinna með þjóðum sem líta á þá sem hryðjuverkamenn og við verðum sem friðargæsluliðar að vera alveg hlutlaus- ir. Við erum að vinna fyrir báða aðila." Alltaf í hættu „Það er sama hvort þú ferð í svona verkefni eða ert túristi í stríðshrjáðu landi. Þú ert alltaf í einhverri hættu þótt báðir aðilar vilji frið." Marvin segist ekki hafa lent sjálfur í skotárás en oft hafa verið í eftirliti þar sem aðilar vom að skjóta á hver ann- an. „Þá ertu með sérfána um borð og þannig vita þeir af þér og ráðast ekki á Þig" Marvin segir að einu sinni hafi Um borð Hér er Marvin um borö I herskipi stjórnarhersins undan ströndum Trincomalee. hann verið í eftirlití á minna svæði sem er svokallaður „tens" staður þar sem tamilar, singalar og múslimar búi. „Það gerðist nokkmm mínútum eftir að við fómm um staðinn að þeir fóru að skjóta sín á milli. En ef þú ert ekki of fljótur á þér ertu nokkuð ör- uggur," segir hann. Marvin var sem fyrr segir úti í sex mánuði. „Ég hefði persónulega ekk- ert á móti því að vera þama lengur. En ég hef öðrum skyldum að gegna, hef vinnu hér heima og svo náttúm- lega mikilvægast af öllu sem er að ég á sambýliskonu, fjölskyldu og vini hér heima og það er erfitt að vera í svo langan tíma frá makanum sínum." Marvin er trúlofaður Geirlaugu Jó- hannesdóttur og segir hanri að sökn- uður hafi vissulega gert vart við sig. „Við söknuðum hvors annars, ég ör- ugglega hennar meira en öfugt," seg- ir hann hlæjandi og bætir við að hún hefði ekki getað farið með - eða hitt hann á meðan. „Þetta er ekki fjöl- skyldumissjón." Hann segir að aðstandendur heima hafi verið skelkaðir en ein- ungis í fyrstu. „Þeir héldu að við vær- um í hættu vegna einhvers sem þeir höfðu heyrt í fréttunum," segir hann en bendir á að þá hafi hann útskýrt hvernig ástandið væri hjá sér sjálfum og þá hafi sú hræðsla horfið tiltölu- legafljótt. Skelkaðir aðstandendur „Við fengum oft símtöl þess efnis að fjölskyldur hefðu misst fjölskyldumeð- limi. Til dæmis eiginkonur sem misstu menn sína í árás. Það gerðist oft. Við vorum á staðnum fyrir fólk. Pyrir það að vita af okkur gefur því huggun og smðning en jafnframt var rosalega erf- itt að horfa upp á það sem maður sá." Mannfall hefur upp á síðkastið ver- ið nokkuð mildð á Sri Lanka. „Það kom fyrir að sú tala var há dag hvem. Ef til dæmis rúta var sprengd fómst 20-30 óbreyttir borgarar í einu." Marvin segir það versta á Sri Lanka hafa verið heildina alla. „Það er ekki hægt að segja eitthvað eitt. Að koma til svo fallegs lands þar sem fjölskyldur em búnar að missa allt sitt í Tsunami flóðbylgjunni og þurfa svo að lifa við þetta. Stríðið í heild sinni er það sorg- legasta." Friðarsáttmálinn í landinu er enn í gildi þrátt fyrir að Danir, Finnar og Svíar taki ekki þátt í Norrænu friðar- gæslunni lengur. Eftir standa Norð- menn og íslendingar og fylgjast með í stríðshrjáðu landinu. Marvin hefur nú hafið störf aftur hjá sprengjusveit Landhelgisgæslunnar. „Það góða við að koma úr svona verkefni er að þá gerirðu þér grein fyrir hvað ísland er gott. Ég mun samt aldrei eftir sjá eftir því að hafa farið þangað." gudmundur@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.