Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2006, Blaðsíða 35
PV Helgin
FÖSTUDAGUR 18.ÁGÚST2006 51
ian 20 ára
Bylgjan var fyrsta einkarekna útvarpsstöðin á íslandi. Hún heldur upp á 20 ára afmæli sitt seinna í
mánuðinum. DV leitaði til nokkurra þjóðþekktra íjölmiðlamanna sem voru með frá byrjun og ber
öllum saman um að minningarnar frá fyrstu árunum séu ógleymanlegar. Stemningin hafi verið frá-
bær á þessum miklu breytingatímum í íslensku fjölmiðlalífi.
Þykirvæntum
afmælisbarnið
„Ég byrjaði á Bylgjunni þegar stöðin var orðin
tveggja, þriggja ára," segir fréttamaðurinn Haukur Holm
sem hafði áður verið á Alþýðublaðinu. „Þetta voru mín
fyrstu skref á ljósvakamiðli og stemningin þarna var
mjög góð," segir hann og bætir við að Bylgjan hafi á
þessum tíma verið í gamla Osta- og smjörsöluhúsinu
við Snorrabraut. „Það var góð stemning í húsinu, stöðin
var ung og það var kraftur í mannskapnum svo það var
gaman að koma þarna inn.“
Þegar Haukur er inntur eftir skemmtilegri sögu
tengdri Bylgjunni segir hann eina góða strax koma upp
í hugann: „Lfldega fyrsta árið mitt hafði ég lengi reynt
að ná tali af Ólafi Ragnari sem þá var fjármálaráðherra.
Þegar ég loksins náði tali af honum vildi hann fá mig til
sín niður í ráðuneyti. Eftir að hafa setið lengi og beðið
eftir honum fékk ég loks að tala við hann en þegar ég var
að byrja kom í ljós að segulbandið var batteríslaust. Ég
varð alveg eins og aumingi en tókst að semja við hann
að ég myndi taka leigubíl í snatri og taka viðtalið svo í
gegnum síma. Þetta var neyðarlegt augnablik en hann
tók vel í þetta og við náðum að semja."
Haukur hefur nánast starfað hjá sama fyrirtækinu
síðustu 17 árin en hann fór smám saman yfir í sjón-
varpið þegar Bylgjan og Stöð 2 sameinuðust. „Mér þykir
vænt um þetta afmælisbarn og óska því alls hins besta."
Dagskrárhetjur og tæknimenn Jón
Axel, Gulli Helga, Magnús Viöar Sigurðs-
son, nú framleiðandi hjá Saga film, og fyrir
fram þá Carola Hængsdóttir.
Fagnaður f hljóðveri 1988 vegna frábærra
undirtekta samkvæmt skoðanakönnun Á myndinni
eru mörg kunnugleg andlit. Frá vinstri: Haukur Ólafs-
son, Páll Þorsteinsson, Felix Bergsson, Pétur Steinn,
óþekktur, Doddi hljóðmaður - Þorsteinn Ásgeirsson,
óþekktur, Eiríkur Hjálmarsson, Hallgrlmur Thorsteins-
son, Steingr/mur Ólafsson, Margrét Hrafnsdóttir, óþekkt
og Inga Birna Dungal. Fyrir framan sitja þær Inga,
Jónína, Auður Edda og Bogga Stfna.
Davíð Oddsson ræsir Bylgjuna
ÞeirSigurður G. Tómasson og Einar
Sigurðsson fylgjastmeð. Sigurðurvar
með fyrsta dagskrárliðinn á slnum
herðum enhann átti slðar langan
feril á Rás 2 og seinna Talstöðinni.
Ljósvakinn var dótturfyrirtæki
Bylgjunnar og flutti tónlist án mikils
talmáls Bergljót Baldursdóttir og Jónas
R. Jónsson sem varþar dagskrárstjóri.
Heilsuátak f ársbyrjun 1998 Efsta röð frá
vinstri-JvarGuðmundsson, Guðrún Gunnars-
dóttir, Andrea Jónsdóttir, Halldóra Ingimars-
dóttir. Miðröð: Kristófer Helgason og Hemmi
Gunn. Fremst: Gulli Helga og Hallur Helgason.