Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2006, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST2006
Fréttir DV
Fulltaf hvítum
efnum
Hálft kiló afkókaini
Þann 27.janúar voru þrír
ungirdrengir, KristóferMár
Gunnarsson, Viktor Árnason
og Hákon Traustason,
handteknir við komuna til
landsins frá Amsterdam. Þeir
voru með tæpt hálft kíló af
kókaíni innanklæða og fannst
efnið við leit tollvarða. Þeir
ganga lausir og bíða dóms.
Fjögur kitó af amfetamíni
Mikael Már Pálsson var
handtekinn við komuna til
landsins frá París, þann 3.
febrúar á þessu ári. I fölskum
botni ferðatösku hans fundu
tollverðir tæplega fjögur klló
afamfetamlni. Hann var
dæmdur I fjögurra ára
fangelsi fyrir vikið og fleira.
Þrettán klló af amfetamíni
Litháinn Saulíus Prúsinskas
var handtekinn I Leifsstöð
þann 4. febrúar. Með
amfetamínbasa I flösku sem
hefði getað gefið afsér á
þrettánda klló af hreinu efni.
Arvydas Maciulskis, Lithái
sem búsettur er hérá landi,
var síðar handtekinn I
tengslum við málið. Þeirhlutu
báðir tveggja og hálfs árs
fangelsisdóm.
Sautján klló af amfetamíni
Romas Kosakovskis tekinn I
Leifsstöð þann 26. febrúar
með amfetamlnbasa og
brennisteinssýru sem hefði
dugaö til framleiðslu á allt að
sautján klló afamfetamlni til
sölu. Romas vardæmdurtil
tveggja og hálfs árs
fangelsisvistar.
Kíló af kókaíni
Þann 26. mars varArnar
Theodórsson tekinn við
komuna til landsins frá
Bandarlkjunum með klló af
kókaíni falið I tölvuturni.
Arnar var dæmdur I skamm-
vinnt gæsluvarðhald en blður
dóms fyrir smygl.
22 kfló af amfetamini og
hassi
Á sklrdag, 13. aprll fundu
lögreglu- og tollgæsluyfirvöld
I Reykjavík tæplega 22 kíló af
kókaíni og amfetamíni falið I
bensintanki BMW-bifreiðar.
Fjórirmenn, ÓlafurÁgúst
Ægisson, Hörður Eyjólfur
Hitmarsson, Ársæll Snorrason
ogJohan Handrick, voru
handteknir I iðnaðarhúsnæði
IÁrbænum. Þeir sæta
gæsluvarðhaldi og bíða
dóms.
Kiló afkókaíni
Þann ö.júlí slðastliðinn var
parí kringum tvítugt tekið við
komuna til landsins með klló
afkókaíni faliö I tveimur
pörum afskóm. Þau ganga
nú laus en blða dóms.
Tólfkíló afamfetamíni
Þann 6. júlí voru tveirLitháar
teknir I Norrænu á Seyðisfirði
með tólfkíló afamfetamini
falin I bíl sinum. Þeirsitja i
gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni
og biða dóms.
Tvö kiió afkókaíni
Á miðvikudagskvöldið i
slðustu viku, þann 9. ágúst,
var fernt handtekið I Leifsstöð
eftiraö karlmaðurá
fertugsaldri og átján ára
stúlka gengu i hendur
Tollgæslunnar með tvö klló af
kókaini. Tveirmeintir
vitorðsmenn biðu þeirra fyrir
utan tollhlið og voru
handteknir. Fleiri hafa verið
handteknir í Reykjavík eftir að
málið komst upp og dæmdir í
gæsluvarðhald.
*Tekið skal fram að mörg
smærri mál hafa komið upp
innanlands.
Fréttaskýring Fjöldinn allur af stórum fíkniefnámálum hefur komið í dagsijósið
upp á síðkastiö. Nú síðast á miðvikudaginn í síðustu viku þegar tæp tvö kíló af kóka-
íni voru tekin í Leifsstöð. Jóhann R. Benediktsson. sýslumaður á Keflavíkurflugvelli,
segir að yfirvöld þurfi að þrengja að hvítflibbamönnum.
„Þurfum að þrengja að
jeppann, fína húsið og
fína dópið í leiðinni."
Jóhann R. Benediktsson
Segir fiknlefnaneyslu nú teygja
sig upp i fjársterkari hópa
samfélagsins. Það sé breyting.
Ásgeír Karlsson
Yfírmaður fikniefnadeildar lögreglunn
ar ifíeykjaviksegir fólk allt frá tvitugu
og upp f sextugt neyta hörðu efnanna
kókaíns og amfetamlns.
Helgi Gunnlaugsson
Afbrotafræðingurinn segir að
neyslumenningunni fylgi fikniefna-
neysla hjá efri stéttúm samfélagsins
-1einhverjum tilfellum.
Fíkniefnaflóðið til íslands færist í aukana þrátt fyrir að yfirvöld
geri hvað þau geti til að sporna við því. Samhliða flóðinu hefur
neysluhópurinn breyst og færst bæði ofar og neðar í samfélag-
inu. Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli,
vill þrengja að hvítflibbamönnum í neyslu og segir að það sé hóp-
urinn sem yfirvöld ættu að eltast við næst í baráttunni.
Kókaín og amfetamín teljast hörð
ffloiiefrii. Innflutningur á þeim hefur
verið mikil] upp á síðkastið og hafa yf-
irvöld haft hendur í hári nokkurra inn-
flytjenda með stórar dópsendingar.
Raunin virðist sú að neyslumynstur á
fíkniefnum sé að breytast og að fíkni-
efiiadjöfullinn hafi látið sjá sig í efri
stéttum samfélagsins - að mati við-
mælenda blaðsins. Jóhann R. Bene-
diktsson, sýslumaður á Keflavíkur-
flugvelli, vill að yfirvöld þrengi að
hvítflibbamönnum í baráttunni við
fíkniefnadjöfulinn.
Neysla hinna ríkari
Jóhann R. Benediktsson, sýslu-
maður á Keflavíkurflugvelli, segir
neyslumynstur vera að breytast en
neyslu ekki endilega að aukast: „Ýmsir
hópar sem ekki neyttu efha eru núna
famir að neyta þeirra og sérstaklega
amfetamíns og kókaíns. Aldursbilið er
einnig að stækka."
Jóhann segir að einnig megi finna
breytinguna í því að neyslan sé komin
til að vera hjá hinum ríkari.
Ástæða til að óttast
„Það er áhyggjuefni að hópar sem
áður snertu ekki fíkniefrii hali komið
þeim inn í sitt lífsmynstur. Við erum
að sjá í þessu fólk sem hefur mikið fjár-
magn undir höndum og það er veru-
leg ástæða til að óttast þessa breyt-
ingu," segir Jóhann og segist lengi hafa
haft undir höndum upplýsingar sem
styðji þetta. „Ég er þeirrar skoðunar
að næsta stórátak í baráttunni sé að
þrengja að þeim hvítflibbum sem eru
í neysíu. Þetta er sá hópur sem við eig-
um að beina spjótum okkar að."
Allt upp í sextugt í neyslu
Ásgeir Karlsson, yfirmaður fikni-
efnadeildar lögreglunnar, segir að
hörðu efnin séu orðin mun algeng-
ari og neysla kókaíns þar á meðal.
„Neysla kókaíns hefrtr verið að breyt-
ast í þá átt að almenningur er farinn
að nota þetta," segir hann og bendir
á að aldursbilið hafi breikkað svo um
munar. „Þama erum við að sjá yngra
fólk, allt niður í tvítugt, sem ekki hef-
ur haft mikil fjárráð og allt upp í sex-
tugt."
Að haldasér vakandi
„Neyslan hefur farið vaxandi og er
mikil í kringum skemmtanamynstr-
ið sem við búum við. Meira er um
kókaín og amfetamín og fólk er far-
ið að nota meira af örvandi efnum til
að halda sér vakandi. Fólk þarf örv-
andi efni til að halda sér í gangi svona
lengi."
Aukninguna segir Ásgeir að megi
rekja til aukins eftirlits og framboðs
af efnum. Hvað varðar hina svoköll-
uðu hvítflibba segir Ásgeir það vera
illa tækt að leita á hverjum sem er.
Rökstuddur grunur þmfi að vera fýr-
ir leit lögreglu og hann sé ekki alltaf
fyrir hendi.
Hluti neyslumenningarinnar
„Þetta heftrr lengi loðað við þá
sem eru mið- og efristéttar, bæði hér
og í nágrannalöndunum," segir Helgi
Gunnlaugsson afbrotafræðingm og á
við þá stétt manna sem hefm mikið fé
milli handanna. „Það er ekkert ólík-
legt að þessi efni leiti í þeirra raðir - í
það minnsta einhverra þeirra."
Helgi segir raunina vera þá að
neysla fíkniefna sé orðin hluti af
neyslumenningu samfélagsins.
Fíni jeppinn, húsið og dópið
„Nú erum við með fína jeppann,
fína húsið og fína dópið í leiðinni sem
er orðið hluti af neyslumenningu okk-
ar tírna," segir hann og bendir á að
breyta þurfi hinum þrönga prófíl fyr-
ir hinn sígilda fíldl. „Þetta er ákveðin
mismunun. Lögreglan hefur ákveð-
inn próffl yfir neytendm sem eru lægst
í virðingarstiganum. Neyslan í samfé-
laginu er bara með allt öðrum hætti
en þar."
gudmundur@dv.is