Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2006, Blaðsíða 60
76 FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST2006
Sjónvarp DV
Á dagskrá næstu daga
Stöð 2 - Temple ofDoom -21.30
Stöð 2 sýndi seinasta föstudag fyrstu myndina úr
þrenningunni um Indiana Jones og er nú komið að
þeirri annarri, Temple of Doom. Jones kemur sér í
hann krappan og endar í litlu þorpi í óbyggðum Ind-
lands. Þorpsbúar grátbiðja Jones um hjálp. Dularfull-
um töffasteini og öllum börnum þorpsins hefur ver-
ið rænt og segja þorpsbúar sökudólginn vera grimman
indverskan prins sem býr í musteri rétt hjá. Að sjálf-
sögðu tekur ævintýrakóngurinn verkið að
sér.
Sjónvarpið - Fools Rush In - 20.05
Það er grínarinn og vinurinn Matthew Perry og suð-
ræna fegurðardrottningin Salma Hayek sem fara með
aðalhlutverkin í þessari bandarísku grínmynd frá
árinu 1997. Myndin fjallar um par sem ákveður að
gifta sig þegar konan verður ólétt eftir einnar næt-
ur gaman. En þau eru alveg gjörsamlega svart og
hvítt og ólíkur uppruni þeirra verður þeim til tra-
fala.
Skjár einn - Trailer Park Boys -21.00
Kanadískir framhaldsþættir sem hófu ný-
verið göngu sína á Skjá einum. í þáttunum
er gert grín að raunveruleikasjónvarpi. Þætt-
imir fjalla um hóp fyrrverandi fanga sem búa
saman á svokölluðu hjólhýsasvæði. Þættim-
ir hafa náð miklum vinsældum í Kanada en
þeir eru byggðir á samnefndri kvikmynd frá
árinu 1999.1 þættinum í kvöld gengur allt á
afturfótunum hjá Julian svo hann ákveður að yfirgefa hjólhýsasvæðið.
Laugardagurinn 19. ágúst
Skjár einn - Rock Star upprifjun -16.30
Þeir sem misstu af Rock Star: Supernova í vikunni
þurfa ekki að örvænta því Skjár einn endursýnir all-
an pakkann á laugardögum. Raunveruleikaþáttinn,
keppnina sjálfa og svo úrslitaþáttinn. Jafnvel þó að
maður hafi fylgst með fyrr í vikunni er gaman að sjá
hann Magna okkar rokka stíft aftur. Þeir Gilbie Clark,
Jason Newstead og Tommy Lee kalla ekki allt ömmu
sína og það gerir Magni ekld heldur.
Sföð 2 - Hotel Rwanda - 22.40
Hér er á ferðinni frábær mynd sem eng-
inn ætti að láta framhjá sér fara og lætur
engan ósnortin. Myndin segir frá hetju-
dáðum hóteleiganda í Rúanda þegar hin
skelfilegu þjóðarmorð voru framin í borg-
arastyrjöldinni 1994. Meira en ein milljón
manns voru myrt á aðeins þriggja mánaða
tímabili án afskipta heimsbyggðarinnar.
Myndin lýsir óvissunni og hræðslunni sem
ríkti á mjög skýran hátt og var myndin til-
nefnd til þriggja óskarsverðlauna.
Ég er ofsalega mikil hóps-
ál og því þarf engan að undra að
ég hlusti mikið á Rás 2. Og sem
dyggur aðdáandi þessarar út-
varpsstöðvar hefur mér þótt sér-
lega gaman að tónleikunum á
hafnarbakka á menningarnótt
sem útvarpsstöðin hefur staðið
fyrir undanfarin ár. Ekkert verður
af tónleikunum í ár vegna bygg-
ingar tónleikahúss á bakkanum.
Þetta þykir eflaust mörgum mið-
ur og jafnvel dáldið kaldhæðið,
en svo sem ekkert við því að segja.
En Rás 2 deyr ekki ráðalaus. Hún
hefur nú brugðið á það ráð að út-
varpa beint frá tónleikum Robb-
ies nokkurs Williams. Mér væri
svo sem alveg sama þótt tónleik-
arnir færu fram í útvarpinu þar
sem ég get hækkað og lækkað að
vild en rosalega stóru hljóðkerfi
verður komið fyrir utan Skífuna á
Laugarvegi og þaðan verður tón-
leikunum blastað.
Ég hef svo sem ekkert stór-
ar áhyggjur af þessu þannig, það
hefði bara verið skemmtilegra ef
Rás 2 hefði fært tónleikana á ein-
hvern annan stað - hvað með t.d.
Hljómskálagarðinn?Áhyggjurnar
sem ég hef er að ef græjurnar eru
kraftmiklar er hætta á að herra
Williams eigi eftir að skyggja á
aðra viðburði Laugavegsins á
þessum tíma. Viðburði sem eiga
kannski betur heima á nótt sem
þessari. En sjáum til...
En svo langar mig til að hrósa
sömu útvarpsstöð fyrir að hleypa
næturverðinum Heiðu að í frek-
ari útsendingar. Hún er frábær
útvarpskona. Heiða leggur mik-
inn metnað í alla sína útvarps-
þætti og laumar fróðleiksmol-
um að við hvert tækifæri, spilar
tónlist sem er ekki endilega á
vinsældarlistum og þá er hún
snillingur í að grafa upp gamlar
íslenskar perlur sem allt of marg-
ir eru búnir að gleyma. Já þáð er
mjög gaman að hlusta á Heiðu -
ég mæli með því!
BYLTING í SVEFNLAUSNUM
FRÍ LEGUGREINING
OG FAGLEG RÁÐGJÖF
OG MEIRI VELLIÐAN.
www.rumgott.is
svæðaskiptar heilsudýnur
sniðnar að viðkomandi.
llúsgugnavinnusiofa RH
Verslunin Rúmgott • Smiðjuvegi 2 • Kópavogi • Sími
Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kl. 11-
BETRI HVÍLD, DÝPRI SVEFN
Rúmgott er leiðandi í þróun
og framleiðslu á heilsudýnum
og rúmbotnum undir vöru-
merkinu EZ-sleep á íslandi.
Við höfum yfir að ráða
fullkomnum tækjabúnaði til
að mæla þrýstijöfnun á líkama
hvers einstaklings sem gerir
okkur kleift að framleiða