Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2006, Blaðsíða 61

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2006, Blaðsíða 61
PV Sjónvarp FÖSTUDAGUR 18.ÁGÚST2006 77 Á dagskrá næstu daga Haustvörur komnar í hús | a Blússur og pils, bolir og síðbuxur 11 -vErhlístinn. v/Laugalæk • sími 553 3755 1 Mánudagur21.ágúst Sjónvarpsstööin Skjár sport sem var áöur Enski boltinn hefur útsendingar í dag Skjár sport í loftið í dag „Við byrjum í dag með þrem- ur klukkutíma löngum þáttum," segir Snorri Már Skúlason, sjón- varpsstjóri Skjás sport. Stöðin hét áður Enski boltinn en ákveð- ið var að breyta nafninu. „Nafn- inu var kannski helst breytt ef að við skildum einhvem tímann taka eitthvað meira að okkur en enska boltann. Hitt nafnið batt menn svoh'tið í báða skó." 9 af hverjum 10 leikjum beint „Fyrsti þátturinn er í kvöld klukkan 18. Þar verður farið yflr fallegustu mörk síðasta tímabils. Svo klukkan 19.30 verður spáð og spekúlerað í tímabilið sem er að hefjast. Að lokum klukkan 21 verður svo upprifjun frá síðasta tímabili." Fyrsti leikur er sýndur á laug- ardag kl. 11.45 þegar nýliðarnir í Sheffield Utd. taka á mótí bikar- meisturum Liverpool. „Við sýn- um m'u af hverjum tíu leikjum Snorri Már Skúlason Sjónvarpsstjóri Skjás sports. næst ekki að sýna beint einhverra hluta vegna er hann sýndur með ca. tveggja tíma seinkun." Þrír sérþættir Skjár sport mun þá einnig bjóða upp á þrjá sérþætti í vet- ur ásamt því að sýna frá leikjum. „Böðvar Bergsson heldur áfram með þáttinn; Liðið mitt og verð- ur á fimmtudögum klukkan átta. Þar verða pallborðsumræður um leikina og spekingar skiptast á skoðunum." „Þátturinn; Á vellinum með Snorra Má breytir líka um nafn og verður bara; Á vellinum með Snorra þar sem ég og nafni minn Sturluson munum skipta þessu á milli okkar," segir Snorri Már og bendir á að þátturinn sé alltaf á laugardögum. „Þá erum við að lokum með þáttinn; Að leikslokum. Þar spá Willum Þór Þórsson og Guð- mundur Torfason í spilin og greina leiki Uðinnar helgar." AS ieikslokum Willum Þór Þórsson og Guðmundur Torfason sjá um þáttinn. Níu af hverjum tíu leikjum sýndir beint Skjársportsýniralltapfimmleikibeintfeinu. Sunnudagur20.ágúst Sjónvarpið - Vasaþjófurinn-20.05 Hér er á ferðinni bresk mynd í tveimur hlutum. Myndin fjallar um munaðarlausa stúlku sem elst upp meðal þjófa á seinni hluta 19. aldar. Leikstjóri er Aisling Walsh og meðal leikenda eru Sally Hawkins, Imelda Staunton, Charles Dance, Polly Hem- ingway, Elaine Cassidy og Rupert Evans. Sjónvarpið - (þróttayfírlit -21.35 Strax á eftir Vasaþjófhum sýnir sjónvarpið Helgar- sportið þar sem farið er yfir helstu íþróttaviðburði helg- arinnar. Strax á eftir Helgarsportinu er svo Fótboltakvöld þar sem farið verður yfir það helsta úr leikjum Lands- bankadeildar karla en klukkan 18 á sunnudag mætast ÍBV - Grindavíkur, Fylkir - ÍA, Breiðablik - KR, Keflavík - FH og loks mætast Valur og Víkingur klukkan 20. ÍBV-Grindavfk 20. ágú. 18:00 Fylkir-ÍA 20. ágú. 18:00 Breiðablik-KR 20. ágú. 18:00 Keflavík-FH 20. ágú. 18:00 Valur-Víkingur 20. ágú. 20:00 Stöð 2 - Systrabönd - kl. 20.50 Þættirnir Related eru ffá framleiðendum Friends og Sex and the City. Þeir fjalla um Sorelli-systurnar fjórar og þeirra skrautlega líf. í þættinum í kvöld er jólaundirbúningurinn í fullum gangi. Rose er með tvo í takinu og getur ekki valið á milli þeirra á með- an Marjee er hrædd um að hún sé skotín í kærasta yfirmanns síns. Sirkus - Smallville - kl. 21.50 Læknir hjá LuthorCorp fær samviskubit og sleppir hálffi manneskju/ hálfu vélmenni sem verið er að gera tilraunir á hjá fyrirtækinu. Vélmaður- inn heitír Victor og er leikinn af gestaleikaranum Lee Thompson Young. Þegar hann er að flýja keyrir Lana á hann en hann stendur jaftióðum upp. Hún hringir því í Clark sem fer að kanna málið. Vinskapur tekst með þeim félögum en Lex er ekki á þeim skónum að leyfa honum að þrífast. Þriðjudagur22.ágúst Sjónvarpið - Veronica Mars snýr aftur -20.10 Unglingaeinkaspæjarinn Veronica Mars snýr aftur á skjáinn í nýrri þáttaröð. Lífið er allt nema dans á rósum hjá fegurðardísinni smávöxnu og eyðir hún tíma sínum í að leysa glæpi og aðstoða nemendur við allskyns verkefni. Þrátt fyrir að morðingi vinkonu hennar hafi náðst er ennþá ein- hver sem vill henni illt og er hasarinn langt frá því að vera búinn. Sjónvarpið - Lögmál Murphys - 22.25 í kvöld er sjötti og seinasti þátturinn í bili um hinn harðsvífna Tommy Murphy og glímu hans við glæpamenn. Murphy er ekkert sérlega duglegur við að fylgja regl- um yfirboðara sinna og fer sínar eigin leið- ir. Murphy kallar heldur ekki allt ömmu sína og veit að það þýðir ekki alltaf að spila eftir reglunum í heimi glæpamanna. Miðvikudagur 23. ágúst Stöð 2 - Lokaþáttur Medium-21.35 Komið er að tuttugasta og öðrum þætti og þeim síðasta í þessari annarri þáttaröð af Med- ium. Alison dreymir um það hvernig h'fið hefði orðið hefði hún elt drauma sína. Henni lang- aði alltaf að gerast lögfræðingur og nú sér hún fyrir hvernig áhrif það hefði haft á hana og fjölskylduna hennar. Hún hefði gifst einhverj- um öðrum en Joe. Sjónvarpið - Little Britain -21.30 Sjónvarpið endursýnir fyrstu þáttaröðina af þessum óborganlegu grínþáttum. Þeir verða varla mikið fýndnari en þessir. Svartur húm or af bestu gerð. Þeir félagar Matt Lucas og David Walliams eru frábærir í þáttunum og bregða sér í allra kvikinda líki til þess að gleðja áhorfendur. Ef þú hefur ekki séð þættina, ekki missa af þeim aftur. Fimmtudagur 24. ágúst Sjónvarpið - Launráð -21.15 Fimmta þáttaröðin af Alias eða Launráð er kominn á fullt og sýnir Sjónvarpið annan þáttinn af tuttugu og tveimur í kvöld. Það hefur mikið gegnið á hjá Sidney vinkonu okkar í gegnum tíðina og virðist ógæfan elta stelpuna á röndum þar sem svik og prettir leynast á hverju homi. I þættín- um í kvöld kemst Sidney að því að eigendur að bamum sem Ren- ee vinnur á eru sömu aðilar og myrtu Vaughn. il
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.