Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2006, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2006, Blaðsíða 34
50 FÖSTUDACUR 18. ÁGÚST2006 Helgin PV Tónlistarkonan Mr. Silla er nýflutt í sína fyrstu íbúð með eldhúsi. Það hefur valdið því að ástríðan fyrir matar- gerð hefur aukist til muna. DV kíkti í heimsókn til hennar. „Matargerð er alveg ný ástríða hjá mér. Það er langt síðan ég hef fengið svona mikinn áhuga á einhverju," seg- ir tónlistarkonan Mr. Silla þegar hún er spurð hvort hún haíi gaman af því að elda. Fyrir þá sem ekki vita er Mr. Silla ein af vonarstjömum íslenskrar tónlistarsenu um þessar mundir. Hún syngur eins og rámur svertingi um leið og hún tekur töff gítarriff. Gert grín að Sillu fyrir að tala mikið um mat „Ég er að kynnast svo mörgu fólki um þessar mundir og það er gert mik- ið grín að mér íyrir hvað ég tala mik- ið um matsegir Silla og hlær. Hún og kærastinn hennar vom að gera upp íbúð og em sérlega ánægð með eld- húsið þar sem þau hafa bæði gaman afþví að elda. „Við gemm mikið af því að elda saman. Það er miklu skemmti- legra heldur en að hanga einn inni í elhúsi. Við gemm líka miklu meira af því að elda núna í nýja eldhúsinu, höldum matarboð og svona þegar tími gefst. Það er svo miklu skemmti- legra að elda fyrir marga." Gerir fljótmeti spennandi Það hráe&ii sem Siilu finnst nauð- synlegt að eiga er: „Ostur! Mér flnnst erfltt að búa eitthvað til ef það er ekki til ostur. Það er líka hægt að gera mjög einfaldan en góðan mat ef hann er til. Ég er mikið á ferðinni og hef ekki allt- af tíma tíl að gera tímafrekan mat. Ég reyni að gera fljótmetí spennandi. Til dæmis prófaði ég að setja grófmalað salt og blandaðan pipar á venjulegt ristabrauð. Ég sagði bara: Vá! þegar ég smakkaði þetta fyrst," segir Siila hress og bætir við að henni finnist mikil- vægt að eiga nóg af góðum kryddum. Af hverju er ekki til íslenskur veitingastaður? Silla segist ekki eiga sér neinn uppáhaldsveitingastað enda fer hún aldrei út að borða. „Mér finnst ekki mikið af spennandi veitingastöðum hér í bæ. Mér flnnst alveg merkilegt að einhver monmmeikerinn sé ekki löngu búinn að koma upp íslenskum veitingastað. Útlendingar spyrja nógu mikið um það. En ég á alveg eftír að prófa humarsúpuna á Sægreifanum. En hvað með hádegismat? Tekur þú nesti með þér í vinnuna? „Nei, ég ætla að fara að skoða hvað Sómi setur í samlokumar sín- ar. Ég er orðin brjálæðislega háð þessu. Túnfisksamloka og appelsín. Ég át ekki neitt annað á tímabili og er samt ekki búin að fá leið á þessu. Ég skil þetta ekki - þetta er eigiiöega hálf- ógeðslegt," segir Silla sem segist vera mikill samlokunörd. „Ég skil ekki súpur!" Ólstu upp við mikla matarmenn- ingu? „Mamma er algjör brjálæðingur. Rosalega góður kokkur og óhrædd við að gera tilraunir. Það voru alltaf matarboð um helgar þegar ég var lít- il. En það er líka ástæðan fyrir því að ég eldaði alltaf títið sjálf; hún er svo góð." Eftir þessar lýsingar ættí eng- an að undra að mamma Sillu eldar það sem Sillu þykir best. „Það er ein súpa sem mamma gerir sem er dáld- ið merkilegt þar sem ég er alls ekki hrifin af súpum. Ég skil ekki af hverju maður ættí að vilja borða súpu þeg- ar maður er svangur. Ég skil ekki súpur! Ég verð aldrei södd af þeim. En í þessa súpu setur mamma eitt- hvert karrý-, kjúklinga-, chilli-brjál- æði. Þetta er maturinn sem kætir mig mest." Mikið að gera í spilamennskunni Þessa dagana eldar Mr. Silla hins vegar mestmegnis einfaldan og fljót- legan mat þar sem það er brjálað að gera hjá henni og Mongoose við spilamennskuna. I kvöld ætla þau að spila á myndlistaropnun í Gallery Turpentine. Á morgun, menningar- nótt, spilar Mr. Silla ásamt hljóm- sveitinni Fræ, sem hún er einn- ig meðlimur í, fyrir utan verslunina KVK og kaffihúsið 10 dropa kl. 20. Eins og það sé ekki nóg, þá er hún ásamt Mongoose í óða önn að leggja drög að þeirra fyrstu plötu. „Já, það er allt í gangi og mikið stuð," seg- ir Silla sem hlakkar greinilega tíl að takast á við næstu verkefni. Dijon-sinnep og krydd Ómissandi I rétti Sillu. FUÓTLEG OG NAUTNALEG SAMLOKA AÐ HÆTTl SILLU: Tvær brauðsneiðar eftir smekk Gott að léttrista þær Dijorr-sinnepi smurt á brauðið Þunnar sneiðar af camenbert-osti Parmaskinka 51 iflHHHH Fetaostur Brauðostur Þunnar sneiðar af papriku Kryddað með blönduðum pipar Ef hitað, þá bakað í ofni Spennandi fljótmeti að hætti ■ ■ Mr.Silla Stoltaf nýuppgerou eldhusi sínu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.