Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2006, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2006, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST2006 Fréttir DV Ummæli vikunnar „Viö erum að tala um menningarnótt, ískalda og svarta ófreskju sem leggst yfir miöborgina eins og mara. Þetta er kvöldið sem úthverfaskríllinn hópastí stríðum straumum í hjarta borgarinnar svo það tútnar út í það óendanlega og springurað lokum afsorg." Smáborgarinn í Blaðinu að lýsa komandi hremmingum sínum á laugardagsnóttina. Þetta er rétt. Það er alveg skelfilegt þegar þetta pakk kemur skríðandi í hópum undan Breiðholtinu og niður í 101, hokið af basli og barneignum. „Kannski vegna þess að ég var bara svona átta ára og hélt að kynvillingar ættu allirað vera jafn afgerandi og Gulli, rakarinn hans pabba. Isaman- burðinum varð hverfiskynvillingurinn rosalega dauflegur og við misstum fljótlega áhugann á að njósna um hann en snérum okkur að fyllibyttunni í blokkinni í staðinn." Þórhildur Elín Elínardóttir að rifja upp Ijúfsárar minningar úr æsku sinni. Eftiraðallirfóru að teljast eðlilegirer ekk- ert spennandi lengurfyrir börnin annað en byttan í næstu íbúð. „SkjárEinn sýnir um þessar mundir enn eina þáttaröðina um ungan piparsvein í leit að „ástinni". Iþetta skipti hefur öllum reglum verið kastað á glæ. Enginn limmi, engar lúxusvillur og engar hestaferð- ir. Þátturinn á að endurspegla raunveruleikann enn betur en áður. Einmitt." Atli Fannar Bjarkason í Blaðinu að lýsa því yfir hve hundleiður hann sé orðinn á þáttunum um piparsveininn. Einmitt. Aldrei fórum við með kærustur okkar í limmur, lúxusvillur eða hestaferðir. Þærfengu í mesta lagi eina með öllu í Pylsuvagninum ef heppnin var með og samt blómstraði ástin. „Styrkur Sivjar liggur ekki hvað síst í því að hún er reynsiumikill stjórnmálamað- ur og er vel þekkt á landsvísu sem innan flokks. Það kemur því ekki á óvart að hún hefur í viðtölum við fjölmiðla lagt áherslu á þessa kosti sína. Hún er hins vegar töluvert umdeild og bentu margir viðmælendur m.a. áaðhún nyti afar lítils stuðnings innan þingflokksins." Fréttaskýring í Morgunblaðinu um komandi flokksþing Framsóknar um helgina. Eins og venjulega í þessum fréttaskýr- ingum í opnu Moggans er ekkert nýtt þar að finna. Og punkturinn hér er að ein helsta von Sivjar er einmitt hve lítinn stuðning hún hefur í þingflokknum. Mogginn á bágt með að skilja að í dag, eins og áður fyrr, getur forysta Framsóknar ekki leitt félagsmenn s(na eins og sauðfé til slátrunar þegar kemur að formannskosningunum. „Mérliður allavega alltaf eins og fjallkonu," segirBirna hlæjandi og játar að það sé eitt sem hún eigi eftir að prófa." Viðtal við Birnu Þórðardóttur í Blaðinu. Þarna er þetta komið strákar. Fjallkonan í þröngu leðurdressi næst þegar við syngjum „Flæ hójibbý jæ...." Athafnamaðurinn Jón Kristjánsson, sem er einatt kenndur við fj árfestingafélagið Sund, stendur nú í ströngu við að byggja tæplega 500 fermetra glæsivillu á Arnarnesi. Að sögn þeirra sem til þekkja verður húsið eitt það glæsilegasta á landinu og heimildir DV herma að kostnaðurinn við að reisa það verði ekki undir 150 milljónum króna. Rís hratt Eins og sjá máá þessari mynd ris hús Jóns og fjölskyldu hans hratt. DV-mynd: Guömundur Byggir 500 fermetra glæsivillu á Arnarnesi Auk þess ersérstakt hvíldarherbergi á neðri hæðinni þarsem með- al annars er sána og lít- il laug. Jón hefur einnig látið útbúa sundlaug í garðinum. Jón Kristjánsson, sem hefur undanfarin ár stýrt fjárfestingafélag- inu Sundi ásamt móður sinni Gunnþórunni Jónsdóttur, ekkju Óla í Olís, er þessa dagana á fullu við að byggja sér glæsivillu við Þernunes á Arnarnesinu. Villan hefur verið í byggingu und- anfarið ár og að sögn þeirra sem til þekkja verður húsið eitt það glæsileg- asta á landinu. Ekki er talið að kostn- aður fari undir 150 milljónir króna enda engu til sparað hjá Jóni og fjöl- skyldu hans. Það eru arkitektarnir Guðni Gunnarsson og Páll Hjaltason á Arkitektastofunni m3 arkitektar sem teikna húsið en þeir hafa komið að teikningum margra húsa hjá ríka og fræga fólkinu að undanförnu. Auk þess kemur Valdís Vífilsdóttir innan- hússarkitekt að teikningu á innrétt- ingum. Sundlaug í garðinum Jón og eiginkona hans eiga tvö börn og það mun ekki væsa um þau í nýja húsinu. Bæði fá þau herbergi sem eru 40 fermetrar að stærð auk sérklósetts, eða á við þokkalega ein- staklingsíbúð. Auk þess er sérstakt hvíldarherbergi á neðri hæðinni þar sem meðal annars er sána og lít- Efri hæðin Eins og sjá má á þessari teikningu ergert ráð fyrir sundlaug í garðinum. il laug. Jón hefur einnig látið útbúa sundlaug í garðinum. Öflugur fjárfestir Eins og áður sagði hefur Jón eink- um stundað viðskipti sín í gegnum fjárfestingafélagið Sund sem hann á ásamt móður sinni, Gunnþórunni Jónsdóttur og systur sinni Gabríelu. Sund á 15,5% í fjárfestingafélaginu Gretti en helstu eignarJilutir þess 1 • - 1 * 1 ISlJ 1 - ■■■ í Neðri hæðin Hátt til lofts og vítt til veggja. Börnin fá 40 fermetra herbergi og hjónin geta slakað á í sauna og heitri laug. liggja í Straumi-Burðarási, Lands- bankanum og Icelandic Group auk Tryggingamiðstöðvarinnar. Jón er jafnframt stjórnarformaður Iceland- ic Group. oskar@dv.is Jón Kristjánsson Fjárfestirinn auðugi byggir nú glæsivillu við Þernunes á Arnarnesi. Mynd: Úr myndasafni Morgunblaösins Talsverð seinkun hefur orðið á standsetningu nýju Grímseyjarferjunnar Nýja Grímseyjarferjan 100 milljónum dýrari en áætlað Vélsmiðja Orms og Víglundar hefur farið fram á tugmilljóna aukagreiðslu vegna viðbótarverk- efna auk þess sem það er skoðun sumra að ferjan hafi verið keypt á allt að tvöföldu yfirverði miðað við það ástand sem hún kom í til landsins. „Það má auðvitað alltaf deila um hvað er rétt verð. Ferjan kostaði kringum 100 milljónir og ráðgert var að viðgerðir og endurnýjun á ferjunni og ýmsum búnaði myndi kosta kringum 150 milljónir. Það þurfti að skipta um allar innrétt- ingar og breyta aðgangsopum til að mæta kröfum Grímseyinga og gera ýmsar aðrar breytingar, sem mikill kostnaður liggur í. Vegna gengisbreytinga ogkrafna frá Loyds Register of Shipping, þar Grímseyjarferjan Skipt verður um allar innréttingarí ferjunni. sem flokkun skipsins fer fram, má ætla að endanlegur kostnaður verði 300-350 milljónir. Á móti kemur að þá verðum við með svo gott sem nýtt skip, sem hefði kostað 700-800 milljónir miðað við gengisþróun undanfarið. Vegna krafna frá Evrópusam- bandinu og nýrra staðla hefði kostnaður við breytingar á Sæfara orðið það mikill að hann var í raun dæmdur út. Þetta skip tekur 100 farþega miðað við að Sæfari getur teldð 36 þegar best lætur. Það getur einnig tekið bíla og stærri tæki, sem jafnvel væri hægt að aka frá borði ef með þyrfti. Það verður opnan- legur hleri á skipinu að aftan," seg- ir Gunnar Gunnarsson, aðstoðar- vegamálastjóri hjá Vegagerðinni. kormakur@dv.is Grímseyjarferjan Löng vist I slipp I Hafnarfírði verður enn lengri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.