Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2006, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2006, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST2006 Fréttir DV DÓMSTÓLL götunnor Eiga íslendingar að senda menn í friðargæslustörf til Srí Lanka? Nanna Ragna Kristjánsdóttir „Viðættum frekar að hugsa um okkar mál hérheima“ Axel Karl Gíslason. refsifangi á Litla-Hrauni, var tekinn með á annað hundrað grömm af fíkniefnum í fangaklefa sinum í kringum Verslunarmannahelgina. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Axel Karl er tekinn með fikniefni á Hrauninu. Erlendur Baldursson hjá Fangelsismálastofnun segir að þegar mikið sé af fikniefnum úti í samfélaginu geti verið mikið af þeim inni í fangelsunum. Yngsti mannræningi íslands aftur með dóo á Hrauninu .... \WVV.. ccr rt t »Y iu iii iii lii ||) n ifl d [Dl Litla-Hraun Fangaverðir gerðu klefaleit hjá Axeli Karli Glslasyni, yngsta mannræningja Islands, sem afplánar þar inni. Við leitina fundust á annað hundrað grömm afhassi. Á meðan fíkniefnahundar leituðu á gestum útihátíðanna um Verslunarmannahelgina gerðu fangaverðir á Litla-Hrauni klefa- leit hjá föngum. Árangurinn varð sá að á annað hundrað grömm af fíkniefnum fundust í klefa Axels Karls Gíslasonar, refsifanga á Litla. Axel Karl var dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar fyrir að- ild sína að Bónusmannráninu og hlaut þar með nafhbótina yngsti mannræningi íslands. Samkvæmt heimildum DV var um hefðbundna klefaleit að ræða þegar fangaverðir fundu á annað hundrað grömm af hassi hjá Axeli Karli Gísla- syni, sautján ára refsifanga á Litla- Hrauni. Leitað var í allmörgum klef- um í fangelsinu og voru þessi 200 grömm Axels meðal þess sem kom úr þeirri leit. Tekinn áður Axel Karl hefur svo sannarlega ekki látið afbrot eiga sig eftir að hann fór inn á Litla-Hraun. Hann hefur, samkvæmt heimildum DV, hlotið ýmis agaviðurlög í kjölfar fíkniefna- mála og það sem meira er, þá hafa fíkniefhi áður fundist í fórum hans í fangelsinu. Axel var sem kunnugt er dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir aðild sína að Bónusmannráninu. Mannrán- ið framdi Axel í félagi við fleiri þann 2. september á síðasta ári. Þá hlaut hann annan dóm fyrir líkamsárás sem gerð var í miðbæ Reykjavíkur. Sá dómur féll í janúar á þessu ári. Nýdæmdur í maí á þessu ári var hann dæmd- ur fyrir að hafa haft í fórum sínum eitt og hálft gramm af fíkniefnum. Honum var þó ekki gerð sérstök refs- ing í því máli. I málinu sem nú er í rannsókn er magnið tæplega hundr- aðfalt meira. Að líkindum verður Axel Karl dæmdur enn og aftur og má telja líklegt að honum verði gerð refsing í þetta sinn. Bróðir Axels, Guðmundur Helgi Sigurðsson, var í mars á þessu ári tekinn með ríflega 40 grömm af hassi í Kópavogi og í dómsorði þess máls segir að hann hafi verið á leið til litla bróður, Axels Karls á Litla-Hraun. Á veg komin Lögreglan á Selfossi vildi sem minnst gefa upp um málið en sagði þó að rannsókn þess væri vel á veg komin og nánast lokið. Ekki er talið að fleiri tengist málinu. Erlendur Bald- ursson hjá Fangelsis- málastofnun vildi ekki tjá sig um einstaklinga en sagði að öðru leiti að eitthvað af fíkniefnum kæmist alltaf inn í fangelsin. „Þegar það er mikið af fíkniefnum úti í samfélaginu er oft mikið af þeim inn í fangelsi. Við get- um ekki verið að leita á öllum sem koma í fangelsið þó að einhverjir séu að smygla fíkniefnum þar inn." Axel má búast við lengingu á þessum tveggja ára mannráns- dómi auk þess sem honum hef- ur vafalaust verið gert að sæta agaviðurlög- um fangelsismála- yfirvalda. gudmundur@dv.is Erlendur Segir að alltafkomist eitthvað affíkniefnum inn i fangelsið og að auki geti verið mikiö afþeim þarinniséuþau mikil í samfélaginu. Axel Karl Yngsti mannræningi Islands heldur áfram að brjóta afsér. Nú með á annað hundrað grömm afhassi i fangaklefanum á Utla-Hrauni. Hanna Björg Sævarsdóttir „Við eigum að senda menn, við getum ekki látið aðra sjá um alla ábyrgðina" Ársskýrsla lögreglunnar í Reykjavík flytur miður fallegar fréttir af fjölgun kynferðisbrota „Mál vegna kynferðisbrota gegn börnum og varðandi vörslu á barna- klámi voru fleiri en á liðnum árum," segir í ársskýrslu lögreglunnar í Reykjavík fyrir árið 2005. Kemur þar fram að ofbeldis- og kynferðis- brotadeild hafi komið að rúmlega 60 dómarayfirheyrslum í kynferð- isbrotamálum þar sem brotaþolar voru börn, undir 18 ára aldri. „Þetta má skýra að hluta til með aukinni eftirfylgni en einföld skýr- ing er að barnaklámsmál voru fleiri," segir Sigurbjörn Víðir Eggertsson, yf- irmaður ofbeldis- og kynferðisbrota- deildar lögreglunnar í Reykjavík. „Auðvitað er þróun í eftirfylgninni einhver en það er furðulegt að þetta skuli viðganganst, að menn hagi sér eins og skepnur," segir Sigurbjörn og heldur áfram; „Við reynum að gera okkar besta í þessum málum sem öðrum." Aðspurður segir Sigurbjörn að 60 yfirheyrslur yfir börnum í dómssal endurspegli nokkurn veginn fjölda mála þar sem yfirleitt sé reynt að hafa einungis eina skýrslu á hvern brota- þola. „En auðvitað getur það komið íýrir að það þarf að tala við viðkom- andi aftur. Það er þó afar sjaldan." Hvað varðar þróun til hins betra í baráttunni við barnaníðinga seg- ir Sigurbjörn að þrír rannsóknarlög- reglumenn hafi farið utan til Bret- lands í sumar og setið á námskeiði í þrjár vikur hjá lögreglunni þar í landi. „Þeir sóttu námskeið í yfir- heyrslutækni yfir börnum og andlega vanheilum. Nú erum við komnir með meiri sérþekk- ingu og það skil- ar sér vafalaust í meiri gæðum." gudmundur@dv.is Héraðsdómur Skýrslutökur | yfir brotaþolum í kynferðis- brotamálum gegn börnum voru rúmlega 60 á slðasta . Sigurbjörn Víðir „Furðulegt að þetta skuli viðgangast, að menn hagi sér eins og skepnur," I segirhann um aukin kynferðisbrot gegn börnum. L 1 m ~

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.