Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2006, Side 62

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2006, Side 62
78 FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST2006 Síðasten ekki sist DV Legsteinn á vergangi DV fékk nú fyrir skömmu ábend- ingu um að legsteinn lægi á víðavangi nálægt Sorpu í vesturbæ Reykjavlk- ur. Áletrun steinsins benti til þess að hann tilheyrði manni sem lést fyr- ir rúmum 25 árum. Haft var sam- band við börn mannsins sem gáfu þá skýringu að bróðir þeirra ; hefði verið graflnn við hlið föður síns og fyrir um mán- uði gerður nýr legsteinn með áletr- un beggja feðga. Hins vegar gátu þau enga skýringu gefið á því af hverju steinninn endaði á vergangi og vís- uðu á hvert annað í því sambandi. Umsjónarkona endurvinnslu- Ha? stöðvarinnar sem legsteinninn fannst við kannaðist ekkert við að hafa séð til steinsins. Taldi hún lík- legast að komið hefði verið með hann utan opnunartíma og því skil- inn eftir utan við stöðina. Hún bætti því við að á þeim tólf árum sem hún hefði unnið í Sorpu hefði hún aldrei tekið á móti legsteini, en hins vegar gæti hann að sjálfsögðu endað með öðrum grjótúrgangi í einhvers konar uppfyllingu. Legsteinn Hvílir I friði I vesturbæ Reykjavlkur. Furðufréttin Apar á stefnu- mótasíðum Furðufréttin að þessu sinni kemur frá Hollandi og fjallar um stefnumótasíður fyrir apa í dýragarði í Hollandi. Greint er frá þessu í Ekstra Bladet þar sem fram kemur að forráða- menn dýragarðsins í Hollandi ætla að koma upp netmyndavél- um í órangútanbúrum sínum og að slíkar vélar verði einnig settar upp í órangútanbúrum í Indónes- íu svo aparnir geti átt í netsam- bandi. Stefnumótasíður hafa virk- að svo vel meðal manna að nú á að athuga hvort þær virka ekki víðar í dýraríkinu. „í Hollandi ætla menn í augnablikinu að kasta órangút- um sínum út í umfangsmikil net- stefnumót. Með hjálp netmynda- véla í bæði hollenskum dýragarði og í apamiðstöð á Borneó vonast starfsmennirnir til að aparn- ir muni eiga samskipti við hvorn annan í cyberspace," segir m.a. í umíjöllun Ekstra Bladet. í Indónesíu eru aparnir lokað- ir inni í litlum búrum til að verja þá og því skortir þá afþreyingu og skemmtun, að mati Anouk Ballot, talskonu apagarðsins í Apenheul. Hún vonast til að aparnir geti „hist" og talað við hvern annan þótt langt sé á milli landanna. „Ef þeim líkar við hvern ann- an er ég viss um um að þeir láta starfsmennina vita af því," segir Ballot og bætir því við að þessi fyrsta netstefnumótasíða fyrir apa geti endað sem alvöru tilraun. Nákvæmlega. Það er hægt að hugsa sér að netmyndvélar verði brátt komnar upp í fjárhúsum og fjósum hérlendis þar sem skepn- urnar skiptast á persónulegum upplýsingum í gegnum síður eins og rolla.is eða beija.is. Verða þetta skyndikynni! Unnur Birna hlýddi mömmu Tók astraltertugubbiö út „Það var nú bara hún mamma sem bað mig um að taka það út. Henni þótti þetta ekki vera við hæfi," segir alheimsfegurðardrottn- ingin Unnur Birna Vilhjálmsdótt- ir um meinta ritskoðun á bloggi sínu af eigendum keppninnar Ung- frú heimur. Bloggið var lokað í tvo daga. „Maður má ekki loka blogg- inu í tvo daga þá eru komnar upp þvílíkar samsæriskenningar. Það að ég megi blogga er undantekning frá reglum Miss World-keppninnar. Yfirleitt er bannað að skrifa opin- berlega um árið sem maður hlýtur titilinn en aðstandendur keppn- innar treystu mér og ég geri einn- ig dagbók á ensku fyrir þá," segir Unnur Birna og bætir við að yfir- leitt sé enska dagbókin mjög svip- stendur á blogginu. „Það voru allir að gera grín að þessum eftirrétti. Hann leit mjög illa út en smakkaðist reyndar mjög vel," segir Unnur Birna um færsl- una sem hún skrifaði á blogginu um eftirréttinn sem hún kallaði astraltertugubb en menn töldu að það hefði verið ástæðan fyrir því að síðunni hennar var lokað." Ég sjálf læsti blogginu því að þar voru færslur sem voru komnar í rugling og svoleiðis. Tímaröðin var komin í ólag til dæmis," segir Unnur Birna og bætir því við að bloggið hafi ver- ið opnað aftur. myrdal@dv.is Búðingur Að sögn Unnar Birnu þá leit eftirrétturinn iiia úten smakkaðist prýðilega. Unnur og Unnur Unnur Birna hlýddi móðursinni og tók úr bloggfærslu um eftirréttsem leit út eins og astraitertugubb. Palli í Stundinni okkar var góður inni við beinið Gamla myndin að þessu sinni er úr Stundinni okkar frá árinu 1978. Þama gefur að líta Sigríði Margréti Guðmundsdóttur og hann Palla, en það var Gísli Rúnar Jónsson sem lék hann. Þátturinn var í Sjón- varpinu milli klukkan 6 og 7 á sunnudögum. „Égvann í Stundinni okkar í Sjón- varpinu frá 1973-1978," segir Sigríður Margrét með mikilli kátínu, er við biðjum hana að riija upp þennan atburð. „Hann Palli var sko al- veg frábær. Þegar myndin er tekin emm við að segja bömun- um hvað það er mikilvægt að borða hollan mat. En Palli vildi engan holl- an mat og sagðist bara vilja kjúkling og franskar. Við vorum þannig mjög meðvimð um að kenna bömum og Palli var góð leið til að ná til þeirra." Sigríður segir að Gísli Rúnar hafi verið frábær sem Palli. „Maður vissi aldrei við hverju maður átti að bú- ast frá Palla því Gísli Rúnar kom svo oft með einhvem spuna. Eitt sinn sagði hann að ég væri algjör sveppur!" Sigríður segir að Palli hafi þó verið góð- ur strákur inn við bein- ið og ávallt snyrtilega klæddur. Hún bæt- ir við að þau hafi náð vel til bamanna í gegn- um hans mótþróa og að handritið hafi verið skemmtilega skrifað. „Það var hún Guðrún Helgadóttir sem skrifaði textann. Guðrún hafði mik- inn húmor fýrir bömum og skrifaði bókina um Jón Odd og Jón Bjarna. Einnig skrifaði hún bók sem hét Palli, sem ég held að sé ófáanleg í dag," seg- ir Sigríður að lokum. Á myndinni eru þau Sigríður Margrét Guðmundsdóttir og hinn baldni Palli, sem skemmtu börnum landsins i Stundinni okkar fyrir um 30 árum. Á innfeildu myndinni er Sigrfður f dag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.