Freyr - 01.02.1979, Qupperneq 9
Fótabyggingin er þýðingarmikil svo og
hófagerðin.
Það er ekki mikið um fréttir af fótaveikum
hestum. Hestar þola að vísu misvel básstöð-
ur og æ fleiri veita því athygli, að aðrar að-
stæður í húsi en þær auka endingu hestanna
í fótum. Við dóma er mikið tillit tekið til fót-
abyggingar hrossa, hún vegur þungt, eink-
um er réttleiki í kjúkum og smærri beinum
fótanna skoðaður, svo og afstaða beina ofar í
limunum, sem veldur því, að fætur verða
nástæðir eða gleiðir um of og teljast það
gallar. Hófagerð alla mætti skoða betur við
dóma. En það er nú svo, að ótrúlegafá dæmi,
þótt vissulega finnist, um bilun hrossa í
fótum komu fram í hófum. Þar er oftast um
veilu að ræða, sem skapast af rangri járn-
ingu, hirðingu og meðferð þeirra hófa, sem
eitthvað er athugavert við. Að vísu má ekki
hugga sig við, að tæknin bjargi léleqri hófa-
byggingu, auðvitað ber að stefna að því í
ræktun að taka mikið tillit til hófanna, en
þekking járningamannsins er líka mikils virði
og ómetanleg og á jafnt við vegna sköpun-
argalla sem sjúkdóma í hófum.
Fætur eru eitthvað minna snúnir, td. í
kjúkum (kögglum), á hrossum en áður var.
Hervör 4647 frá Sauðárkróki F: Hrafn 802, Hoitsmúla
Knapi: Ingimar Ingimarsson.
Um yfirsvipinn má halda, að fríðleiki og hin
fína gerð sé í lítilli framför, nema reising.
Herðar batna örugglega, bakið er sífellt hart,
en söðulbökuð hross sjaldséð. Verið getur,
að gangseminni fylgi stíft bak. Lendabygg-
ing er ójafnari en annarra líkamshluta og
Fjöldi sýningarhrossa og verðlaun.
Tafla 1. Sýnir fjölda kynbótahrossa við forskoðun, þau sem valin eru á landsmóti úr þeim
hópi, og hve mörg % úr forskoðun fá þátttökuheimild.
Fjöldi við Valin á % af öllu
Taflal. forskoðun landsm. forskoðuðu
komast
Stóðhestar m. afkv....................... 12 4 33
Stóðhestar, 6 vetra og eldri ............ 40 11 28
Stóðhestar, 5 vetra ..................... 35 13 37
Stóðhestar, 4 vetra ..................... 27 8 30
Hryssur með afkvæmum ..................... 10 6 60
Hryssur, 6 vetra og eldri ............... 169 28 17
Hryssur, 5 vetra ........................ 81 8 10
Hryssur, 4 vetra ........................ 33 0 0
407 78 tæp 20
FREYR
65
3