Freyr

Årgang

Freyr - 01.02.1979, Side 13

Freyr - 01.02.1979, Side 13
Segja má, að íslenska minkaræktin sé að hefja sig upp úr þeim öldudal, sem hún fór fljótlega í, eftir að hún var leyfð 1969. Þau minnkabú, sem eftir eru og tekist hafa á við vandamálin, sem jafnan fylgja brautryðj- endastarfinu, hafa sýnt það og sannað, að minkaræktin á mikla framtíðarmöguleika, sem atvinnugrein í landinu. Það, sem gerir minkaræktina áhuga- verðasta fyrir okkur íslendinga, er, að við höfum mikið og gott hráefni frá frysti- og sláturhúsum, sem nýtist vel til skinnafram- leiðslu, og að veðurfarsáhrif spila hér ekki inn í, ásamt því, að skinnin eru seld erlendis á opinberum uppboðum, en ekki á innan- landsmarkaði. SIGURJÓN BLÁFELD JÓNSSON: Stofnsetning og rekstur minkabúa Áhugi á þessari búgrein fer nú vaxandi, bæði hjá mönnum til sjávar og sveita, og íhuga nú nokkrir þeirra minkaræktina sem framtíðarstarf. Minkaræktin skapar mikla möguleika, þar sem hún hentar vel sem sér- hæfð búgrein í nýtískulegum byggingum, eða sem aukabúgrein þar, sem nýttar eru eldri byggingar, sem breytt hefurverið með tilliti til birtu og loftræstingar. Þar sem hráefnið frá frysti- og sláturhús- um er undirstaða skinnaframleiðslunnar, liggur beinast fyrir, að minkahald sé skipu- lagt og byggt upp út frá fóðureldhúsunum eða fóðurstöðvunum, sem eru í nánd við þau. Frá fóðureldhúsunum yrði svo tilbúnu fóðri ekið út til minkabúanna, annan hvern dag yfir vetrarmánuðina, desember-apríl, en sex daga vikunnar aðra mánuði ársins. Þá kemur mjög vel til greina, að minkabændur skiptust á um að sækja fóðrið til stöðvarinn- ar, þegarfóðurnotkunin er lítil. Reiknað hef- ur verið út, að ekki sé hagkvæmt, að akstur með fóður frá fóðurstöð og til baka fari yfir 100—120 km, þegar notaður er meðalstór vörubíll. Áður en athugaður er kostnaðar- og rekstrargrundvöllur minkabúa er rétt að kynna sér reglugerðarákvæði um stofnun þeirra, en ræða svo um sérhæfð minkabú og minkabú sem aukabúgrein. Úrdráttur úr reglugerð um stofnun á loð- dýrabúi. Þegar óskað er eftir að stofna loðdýrabú, er FREYR 69 4*

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.