Freyr - 01.02.1979, Blaðsíða 15
Hér er sýnt hvernig breyta mætti 18—20 kúa fjósi og hlöðu í minkabú fyrir 140 læður.
Sérhæfð minkabú.
í sérhæfðum minkabúskap er fóðrun og
hirðing dýranna aðalstarf bóndans, en til-
búið fóður er oftast keypt að frá fóðurstöð.
Byggingar eru þá í flestum tilvikum sérhann-
aðar fyrir búreksturinn, þar sem læðuein-
ingin (læða + 1/3 högni + hvolpar) þarf mikið
húsrými eða um 1.5 m2. Álitið er, að hæfilegt
sé fyrir manninn að hirða um 500 læður, en
600, fái hann aðstoð frá fjölskyldu sinni.
Stærri minkabú með eigin fóðurstöð eru
hagkvæmust, ef þau eru fyrir 2500-3000
læður.
Ekki er hér reiknaður út stofn- eða
rekstrarkostnaður minkabúa, sem hafa fóð-
ureldhús, en áætlað er, að þau séu 15% dýr-
ari á læðueininguna, miðað við hagkvæm-
ustu stærð. Bú með 500 læður er hér haft
sem grundvallareining en við áætlunar-
gerðina er fylgt útreiknuðum efniskaupum
hjá Byggingastofnun landbúnaðarins í nóv-
ember sl. og stuðst við vinnulaun og annan
byggingakostnað hjá sömu stofnun.
í kostnaðarreikningi er sundurliðun á
byggingarkostnaði, lífdýrakaupum og vélum
og verkfærum. Efniskaup gera 60% af
byggingarkostnaði, vinnulaun 30% og annar
kostnaður 10%, sem eru vextir, akstur og
fæði starfsmanna við byggingavinnuna.
Verð á lífdýrum er miðað við, að þau séu
keypt innanlands, sem oftast er meðal-
skinnaverð hjá sölubúi + 50-100% álagning,
allt eftir því magni sem keypt er.
Verð á vélum er haft í kostnaðarreikningi í
hlutfalli við bústærðina, þó þær séu ekki
keyptar fyrir bú af þessari stærð, en önnur
FREYR
71