Freyr - 01.02.1979, Síða 26
Úr „geitarhúsi".
Frá heimsókn á geitfjárbú þar sem framleiddur er
geitaostur. Fjölskyldan gat lifað af 30 geitum.
un“, er þar nú efst á baugi. Hinn gormhrokk-
ni „Gotlandslokkur'1 hverfurvið sútunina, en
í staðinn kemur bylgjuð áferð. Vel gæti verið,
að íslenskar pelsgærur stæðu nú betur að
vígi í samkeppni við Gotlandsgærur með til-
komu þessarar nýju tísku. í Jönköping hitti
ég skinnfatnaðarhönnuð og saumakonu,
sem sagði að fyrra bragði við mig, meðan
hún hélt, að ég væri norskur, að rúskinn úr
íslenskum dilkagærum stæði framar öllum
öðrum gærum að gæðum til fatnaðargerðar,
bæði vegna þess hve mjúkt og létt það væri
og bjórinn gallalaus. Enda voru flíkur úr ís-
lensku skinni seldar á hærra verði en úr
sænsku skinni.
Markaður fyrir íslenskt hangikjöt í Svíþjóð?
Ég er sannfærður um að stórauka má sölu á
sauðfjárafurðum til Svíþjóðar, ef rétt er
haldið á málum. Svíar, sem vanist hafa ís-
lensku hangikjöti kvarta um, að sænska
hangikjötið sé þurrt og safalítið, og að aldrei
sjáist stór, hangin læri í verslunum þar. Ég er
viss um, að hangikjöt má gera vinsælt á
sænskum markaði, og vandalaust væri fyrir
okkur að flytja það út árið um kring.
Verð á dilkakjöti í smásölu í Svíþjóð er nú
25-30 s.kr. á kg eða 1.500-1.800 íslenskar.
Gráar gærur hafa lengi verið eftirsóttar í Svíþjóð. Þessir „grámenn" hafa sjálfsagt gefið Svíum margar.
82 FREYR