Freyr

Árgangur

Freyr - 01.02.1979, Blaðsíða 27

Freyr - 01.02.1979, Blaðsíða 27
HLÖÐVER DIÐRIKSSON, LITLU-HILDISEY: (Ljósm. Hlöðver Diðríksson) Aðdragandi þessara skrifa er sá að síðast- liðið sumar fékk ég sláttuþyrlu sömu gerðar og þá, sem hlutafélagið Hamar kynnti á landbúnaðarsýningunni að Selfossi. Hún vakti þar nokkra athygli sýningar- gesta fyrir þann útbúnað, sem á henni er, en það er svokallaður grasknosari. Slíkur bún- aður gerir mögulegt að merja grasið jafnóð- um og slegið er, þetta hefur þann stóra kost að án þess að spilla uppskerunni styttist til muna sá þurrktími sem grasið þarf. Þetta hlýtur að teljast athyglisverður kostur á okk- ar votviðrasama landi, þar sem ósjaldan kemur fyrir að gras, sem slegið er þegar glaðnar til, næst ekki þurrt í tæka tíð. Þeir voru sjálfsagt margir, sem ekki áttu þess kost að skoða þessa ágætu sýningu og jafnvel þeir, sem hana sáu, höfðu í svo mörg horn að líta, að ekki væri að undra þótt sum- um hefði yfirsést þetta verkfæri. Þar sem ég hef átt þess kost að kynnast þessu tæki, tel ég rétt að koma hér nokkrum upplýsingum á framfæri til glöggvunar þeim, er áhuga kynnu að hafa. Vélin, sem hérer um að ræða, erframleidd í Vestur-Þýskalandi, en vélar frá sama fram- leiðanda eru löngu vel þekktar undir merk- inu HEUMA. • Sláttuþyrlan (RO-166K) er traustbyggð og frágangur allur hinn vandaðasti. Hún er auð- veld í meðförum og hirðingu og mjög svipuð öðrum sláttuþyrlum í sama stærðarflokki (vinnslubreidd 165 sm), að öðru leyti en því, að hún er þyngri og aflþörfin meiri. Af þeirri ástæðu vil ég ekki mæla með að nota hana við minni dráttarvél en u. þ. b. 55 hestafla. Ekki er þó útilokað að nota minni vél, það getur hins vegar þýtt minni ökuhraða og þar með minni afköst. FREYR 83

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.