Freyr - 01.02.1979, Page 35
Biotin
er öllum fuglum nauðsynleg
BIOTIN, hvað er nú það?, munu einhverjir spyrja. Biotín er B-vítamín, eitt á
meðal margra af sama flokki. Nærvera þess og þátttaka í efnaskiptum
líkamans er höfuðnauðsyn, það er virkt í sambandi við framleiðslu allra
hvata sérstaklega, en hvatarnir eru mikilvirkir þættir í innri lífshræringum
lífveranna svo sem kunnugt er.
Alltaf kemur eitthvað nýtt, segir fólk þegar
nýjungar af einhverju tagi koma í dagsljósið.
Raunar er það ekki nýtt fyrirbæri, að þetta
B-vítamín sé lífverunum nauðsynlegt. Það
hafði sínar verkanir löngu áður en það var
uppgötvað sem sérstakt efnasamband í hópi
B-vítamínanna.
Umfangsmiklar tilraunir hafa á síðari árum
verið gerðar til þess að komast að raun um
hve mikið af þessu efni er nauðsynlegt og
ómissandi í fóðri alifugla.
Eins og kunnugt er eru gerðar kröfur til
mikils vaxtarhraða hjá ungum, sem aldir eru
til slátrunar. Þess vegna er mikilvægt, að
aldrei skorti lífefni svo að heilsufar sé sem
best og vaxtarhraði fuglanna nýtist eins og
best verður á kosið.
Hvar fæst biotín?
Auðvitað getur enginn ætlast til, að hver
fuglaeigandi liggi með birgðir af þessu efni
og sé alltaf að dreifa því í fóður fuglanna eða
blanda því í drykkjarvatnið, en biotín er leys-
anlegt í vatni eins og önnur B-vítamín. Að
sjálfsögðu þarf það að vera í daglegu fóðri
fuglanna, en þá verður líka að sjá fyrir því, að
það eyðileggist ekki við geymslu, en sú
hætta er jafnan við þröskuldinn, þegar fóður
FREYR
geymist vikur eða mánuði, að áhrif súrefnis
umhverfisins eyði lífefnum sérstaklega. Sú
hefur einatt verið reyndin þegar fóður hefur
verið flutt blandað til landsins og langur tími
liðið frá blöndun til notkunar þess. Á síðari
árum hafa blöndunarstöðvarnar þó fyrir-
byggt þann annmarka að nokkru með því að
nota um leið andsýring í blöndurnar (svo-
kallaðan antioxydant á erlendum málum).
Nú er það svo, að í ýmsu fóðri er nokkuð af
biotíni, en misjafnt eftir tegundum og með-
ferð fóðursins. í kornvörum er lítið af því, en
verulegt magn í ýmissi próteinvöru.
Hvernig verkar biotín?
Eðlilegt er, að þeir spyrji, sem ekki hafa séð
áhrif skorts á þessu efni, eða annmarkar hafa
verið uppi, sem áttu upptök sín í skorti á
efninu, en forsendan óþekkt.
í Edinborg í Skotlandi er maður, sem
fengist hefur mikið við rannsóknir á áhrifum
biotíns. Hann hefur staðfest, að ungadauði
getur orðið verulegur þegar ónóg er af þessu
efni í fóðrinu.
Fitulifur og nýrnakvillar fylgja gjarnan
skorti á bíotíni og [ tilraunum hefur hann
staðfest 15% afföll á ungum vegna kvilla af
þessu tagi. Með því að bæta í fóðrið 0.09
91