Freyr

Árgangur

Freyr - 01.02.1979, Blaðsíða 40

Freyr - 01.02.1979, Blaðsíða 40
Fóðurnýting og fóðurspilling í hænsnahúsinu Venjulega er talað um að sauðféð „slæði“ þegar það tekur tuggu úr garða eða jötu og ferðast um króna með tugguna svo að af henni fellur nokkuð eða mikið í taðið. Það fóður fylgir svo taðinu og kemur ekki til gagns sem næring eins og til er ætlast. Álíka gerist í hænsnahúsinu, en þó með öðrum hætti, þar er það mjölið eða kögglarnir, sem fuglanefin ýta til hliðar og út yfir jötu- eða trogbarminn og þannig dreifist lítið eða mikið eftir atvikum á gólfið eða í mykjuna. Þetta þekkja allir og vita líka, að mismunur á þessu fer eftir því m. a. hvaða gerðir af trogum eru notaðar. Vírgrindur yfir trogum áttu að hamla í þessum efnum og gera það að nokkru, en ekki að öllu leyti. Eftir að farið var að vöggla hænsnafóðrið, töldu ýmsir, að þannig færi miklu minna fóð- urtilspillisen þegarþað vargefið ájötursem mjöl. Um þetta hafa verið mjög skiptar skoð- anir og m. a. þess vegna verið gerðar fjöl- margar tilraunir og kannanir til þess að fá staðfestingu um þessi efni, en niðurstöðurn- ar hafa einatt orðið sundurleitar. Um þetta mál hefur miðstöð norskra eggjaframleið- enda nýlega sett á prent greinargerð þar sem greint er frá rýrnun fóðursins við dreifingu þess úr jötum fuglanna. Er ekki óviðeigandi að tjá hvað þar stendur og fer greinin hér á eftir endursögð: Það hefur lengi verið vitað og þekkt, að þeg- ar fuglar fá vögglað fóður fer meira af því til spillis en annars og svo hitt, að hænur fitna jafnan og tilhneiging þeirra til að höggva hver aðra vex að mun. Hitt er flestum óljóst eða óþekkt, að þegar vögglað fóður er ein- göngu notað eða með mjölblöndu fer miklu meira til spillis en þegar mjölblanda ein er notuð. Þessi ár er verulegt magn fóðurs notað sem vögglað fóður handa varphænum. Sumir nota aðeins vöggla, aðrir hræra vögglum saman við mjölið. Þeir segja að með því að hafa svo sem 10—15% vöggla í mjölblöndunni renni það betur úr sílói og verði minna mjölryk. Hins vegar er vert að veita því eftirtekt, að fóðurnýting verður þannig verulega minnk- uð vegna þess að talsvert meira fertil spillis en annars. Dæmi frá venjulegum hænsna- búum segir sína sögu um þessi efni. Eggjaframleiðandi nokkur kvartaði yfir mikilli fóðurnotkun, eða svo freklegri að hænan æti að meðaltali 140—150 g á dag. Hænurnar gengu á neti og fóðrið var mjöl- blanda með um 15% vöggla í blöndunni. Fóðrið kom á færibandi og með hæga- gangi voru skálarnar jafnan fullar eða því sem næst. Hænurnar leituðu að vögglunum og ýttu um leið verulegu magni fóðurs út yfir skálabarmana og það fóður fór auðvitað beint í mykjuna. Annar framleiðandi notaði jafnan 150—160 g fóðurs daglega handa hverri hænu. Sá bóndi notaði vögglafóður ein- vörðungu. Hænurnar gengu á hallandi net- FREYR 96

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.