Freyr - 15.09.1979, Síða 7
BÚNAÐARBLAÐ
75. árgangur
nr. 18, sept. 1979
Útgefendur:
BÚNAÐARFÉLAGÍSLANDS
STÉTTARSAMBAND BÆNDA
Útgáfustjórn:
EINAR ÓLAFSSON
HALLDÓR PÁLSSON
ÓLI VALUR HANSSON
Ritstjórl:
JÓNASJÓNSSON
Aðstoðarritstjóri:
JÚLI'US J. DANÍELSSON
Heimilisfang:
BÆNDAHÖLIN, REYKJAVÍK
PÓSTHÓLF 7080, REYKJAVÍK
Áskriftarverö kr. 5500
árgangurinn
.
Rltstjórn, Innhelmta, afgralósla og
auglýslngar:
Btsndahölllnnl, Raykjavlk, siml 19200
RlklsprentsmlOjan Gutenbarg
Reykjavlk — Slml 84522
é> » '
EFNI:
Hvað er framundan?
Fundargerð aðaifundar
Stéttarsambands basnda
Skýrsla formanns
Sumarfrf bænda
Markaðsmál og störf
markaðsnefndar
Reglugerð
Grös og grasanytjar
Ár trésins
Molar
Verðlagsgrundvöllur
landbúnaðarafurða
Hvað er framundan?
Á aðalfundi Stéttarsambandsins í Stykkishólmi, 1.—3.
september voru samþykktar tillögur, sem heimila Fram-
leiðsluráði landbúnaðarins að grípa til aðgerða sem ætlað
er að hafa stjórn á framleiðslunni og draga úr henni.
Heimild þessi er í samræmi við breytingu á Fram-
leiðsluráðslögunum sem gerð var 6. apríl s. I. og reglugerð
við þá lagabreytingu sem staðfest var af landbúnaðar-
ráðherra 22. ágúst s. I.
•
Eins og kunnugt er var haldinn aukafundur með Stéttar-
sambandsfulltrúum dagana 25.—26. apríl til þess að fjalla
um setningu þeirrar reglugerðar. Reglugerðin er birt í heild
hér í blaðinu og með því að kynna sér efni hennar og
fyrrnefndar samþykktir fundarins ættu menn að geta áttað
sig á því, hvað í vændum kann að vera.
í fyrsta lagi er nú ákveðið að beitt skuli eftir því sem
nauðsyn krefur, framleiðslukvóta (það er lækkað verð á
hlutaframleiðslunnarjá mjólkurframleiðslu ársins 1980 og
þá kjötframleiðslu, sem kemur í sláturhús á því ári. Þeir
sem síðustu 2—3 árin hafa að jafnaði haft framleiðslu sem
nemur meðalafurðum eftir300 ærgildi, eða minna, eiga þó
að sleppa við slíka skerðingu.'þó gætu þeir orðið fyrir
einhverri skerðingu, reynist vöntun það mikil. (sjá síðar).
Þeir sem hafa meiri framleiðslu, en sem svarar meðalaf-
urðum eftir 300 ærgildi geta átt von á að þola verðskerð-
ingu áþann hlutaframleiðslunnarsem þarerumfram. Fyrir
80% af þeirri framleiðslu eiga þeir þó að fá fullt verð, en
mega búast við að sætu meðalútflutningsverði fyrir
mjólkurafurðir eða kindakjöt viðkomandi-ár, fyrir 20%
þessarar framleiðslu. Nægi það hinsvegar ekki, til að ná
endum saman, að skerða verð þessararframleiðslu, sem er
á búum með meira en 300 ærgilda framleiðslu um 10% af
grundvallarverði, er heimilt að ná því sem enn kann .að
vanta á með því að skerða verð allrar framleiðslunnar.
•
Þetta kann að virðast nokkuð flókið og skal því reynt að
skýra það nánar. Með ákvörðun þessa ,,kvóta“ er þeim
bændum sem hafa síðustu 2—3 árin framieitt meira en sem
svarartil meðalafurðaeftir 300 ærgildabú sagt, að þeir geti
átt von á skertu verði fyrir 20% af því sem þeirframleiða á
árinu 1980, umfram afurðir 300 ærgilda. Fyrir þessa fram-
leiðslu eiga þeir ekki tryggt að fá meira en útflutningsverð.
FREYR
571