Freyr - 15.09.1979, Blaðsíða 23
Þá kom fyrst til afgreiðslu tillaga, sem áður
var lögð fram sem fjórða tillaga verð-
lagsnefndar, og flutti Sigurður Jónsson,
Kastalabrekku, hana. Hafði henni verið
breytt lítilsháttar og var hún á þessa leið:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1979 telur
þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að fresta gildis-
töku verðlagsgrundvallar, sem taka átti gildi 1.
september, móðgun í garð bændastéttarinnar,
þar sem fullt samkomulag var í sexmannanefnd
um gerð hans.
Fundurinn mótmælir harðlega og vekur athygli
á, að allur frestur á gildistöku nýs búvöruverðs er
tvímælalaust brot á 1. málsgrein 6. greinar laga
um Framleiðsluráð landbúnaðarins, verðmiðlun
og sölu á landbúnaðarvörum o. fl. Fundurinn telur
því einboðið, að fullar bætur komi vegna frestun-
arinnar.
Samþykkt samhljóða.
Böðvar Pálsson lagði fram að nýju tillögu
allsherjarnefndar um sölu og dreifingu dýr-
alyfja. Hafði nefndin fallist á viðaukatillögu
Helga Jónassonar.
Tillagan var þá svo:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1979 skorar
á landbúnaðarráðherra að beita sér fyrir breyt-
ingu á núverandi reglugerð (nr. 329/1977) um
sölu og dreifingu dýralyfja í þá átt, að tekin verði
upp sú skipan, sem gilti skv. lögum nr. 37/1935,
þar sem Rannsóknastofnun Háskólans og Til-
raunastöð Háskólans á Keldum er áskilinn réttur
til að láta úti og selja lyf gegn þeim sjúkdómum,
sem þær fást við rannsóknir á, og þau ónæmis-
efni, sem þær framleiða sjálfar.
Ennfremur, að leyft sé að hafa til sölu í verslun-
um algengustu dýralyf, s.s. ormalyf, bóluefni
hvers konar, lambasermi o.fl., sem almennt eru
notuð sem bein rekstrarvara til fyrirbyggjandi að-
gerða gegn búfjársjúkdómum.
Þá leggur fundurinn áherslu á og beinir þeim
tilmælum til þeirra aðila, er annast innflutning og
framleiðslu lyfja, að þeir tryggi svo sem kostur er,
að jafnan sé fyrir hendi nægilegt magn þeirra
dýralyfja, sem bændur hafa þörf fyrir.
Samþykkt samhljóða.
FREYR
587