Freyr - 15.09.1979, Blaðsíða 44
Lánskjörin leggur nefndin til, að verði
þessi:
Lánstími 3 ár. Féð verði verðtryggt að fullu
en vaxtalaust. Ríkissjóður greiði vaxta-
kostnað Bjargráðasjóðs af teknum lánum
vegna aðstoðarinnar.
•
Á sl. ári veitti Bjargráðasjóður aðstoð ýmsum
bændum, mest vegna ýmiss konar sjúk-
dóma. Heildarlán voru kr. 89.457.000,- og
styrkir kr. 36.878.000,- þar af úr almennu
deildinni kr. 1.620.000,- lán, en engirstyrkir.
Stjórn Bjargráðasjóðs hefur nú sent til
allra oddvita sveitahreppanna umsóknar-
eyðublöð vegna þessara harðærislána.
Stærðarmörk til lána.
Stjórn Stéttarsambandsins fjallaði í vor um
stærðarmörk útihúsa til lána úr Stofnlána-
deild.
Tillögur eru komnar fram um að lækka
hámarksstærðina frá því, sem nú er. Þetta er
m. a. hugsað sem ein leið til að hamla gegn
offramleiðslu og einnig til þess, að unnt sé
að veita fleiri bændum lánsloforð en verið
hefur tvö síðastliðin ár.
Vegna takmarkaðs lánsfjár hefur orðið að
synja mjög mörgum nýjum lánsbreiðnum.
Erfitt er að gera upp á milli manna, — lána
sumum allstór lán, en synja öðrum algjör-
lega, án þess að baki slíkri ákvörðun sé
nákvæmt, samræmt mat á framkvæmda-
þörfinni. Ég held, að slíkt mat þurfi að frarri-
kvæma á hverri jörð, svo sem sjömanna-
nefndin lagði til í fyrra, en ekki hefurfengist
fram ákvörðun um það efni enn. En öll láns-
fjárskipting verður handahófskennd og
óréttlát í mörgum tilvikum án stuðnings
slíkrar áætlunargerðar.
(Fskj. III).
Samræming lánskjara.
Á sl. vetri voru lögfest ákvæði um sam-
ræmingu lánskjara hjá fjárfestingarsjóðum
og um fulla verðtryggingu á útlánafé sjóð-
anna. Á grundvelli þeirra lagaákvæða gaf
Seðlabankinn út fyrirmæli til sjóðanna um
breyttar lánareglur. Þessi fyrirmæli bárust
stjórn Stofnlánadeildar3. apríl sl. Þarvar lagt
til, að kjörin yrðu full verðtrygging og
5—5,5% vextir.
Hinn 11. maí gerði stjórn Stofnlánadeildar
tillögur um útlánakjörin hjá Stofnlána-
deildinni. Var þar lagt til, að vextiryrðu 1 % á
jarðakaupalánum, 2,5% af bústofnskaupa-
lánum, 3% af venjulegum lánum til fram-
kvæmda á bújörðum, en 5—5,5% af öðrum
lánum. Þessi vaxtakjör voru staðfest af ríkis-
stjórn og Seðlabanka. Síðar var ákveðið, að
vaxtakjör Byggingarsjóðs vegna húsbygg-
ingarlána yrðu 2% og að verðtryggð lán úr
bankakerfinu yrðu lánuð með þeim kjörum.
Stjórn Stofnlánadeildar fór þá fram á við
ríkisstjórnina með bréfi 29. júní, að vaxta-
kjörum deildarinnar yrði breytt í samræmi
við hinar almennu reglur bankanna. Þeirri
beiðni var synjað með bréfi dags. 24. júlí og
því fylgdi greinargerð Framkvæmda-
stofnunar ríkisins dags. 5. júlí, sem synjunin
er byggð á, og fylgja bréfin hér með.
(Fskj. IV).
Aðalfundur N. B. C.
Aðalfundur norrænu bændasamtakanna var
haldinn hér á landi í sumar, þ. e. á Laugar-
vatni 1. og 2. ágúst. Þar var rætt um offram-
leiðsluvandamál, sem eru í öllum löndunum
á einhverju sviði.
Danir hafa þó langbestu aðstöðuna vegna
aðildar að Efnahagsbandalaginu og þeirra
miklu útflutningsstyrkja, er það veitir Dönum
til að koma umframframleiðslunni í verð.
Danir eru eina Norðurlandaþjóðin, sem eyk-
ur búvöruframleiðslu markvisst. Þeir eru að
því leyti öfundsverðir af aðstöðu sinni í þessu
efni, þo aðildin að E. B. E. hafi ýmsa aðra
ókosti í för með sér.
Fundur þessi var upplýsandi um þessi mál
og gagnlegur fyrir okkur íslendingana, sem
sóttum hann.
608
FREYR