Freyr - 15.09.1979, Síða 17
Agnar Guðnason gerði grein fyrir störfum
mjólkurdagsnefndar og upplýsingaþjónustu
landbúnaðarins.
Gísli Andrésson studdi það, að félags-
málaskóla yrði komið upp í samvinnu við
bændaskólana.
Sveinn Jónsson hvatti til aukinnar
mjólkurneyslu og til þess, að komið yrði á fót
jöfnunarsjóði fyrir þá, sem ræktuðu kartöfl-
ur, og mætti grípa til hans, þegar uppskera
brygðist.
Ingi Tryggvason gerði grein fyrir störfum
harðærisnefndar og tillögum hennar.
Grímur Jónsson lýsti vanda bænda í Norð-
ur-Þingeyjarsýslu vegna ótíðar.
Stefán Valgeirsson ræddi mörg atriði, er
fram höfðu komið í umræðunum. Hann taldi
verðbólguna aðalorsök erfiðleika bænda.
Hann sagði m. a., að bændur hefðu lengi
staðið gegn því, að breytt yrði um stefiiu í
lánamálum með því að takmarka stofnlán
eftir stærð framkvæmda.
Var þá klukkan 23 og gefið fundarhlé til
kaffidrykkju og lokað mælendaskrá.
Eftir það svöruðu framkomnum athuga-
semdum erindreki, formaður og landbún-
aðarráðherra. Árni Jónasson ræddi m. a.
skattamál og ágalla á lögum og framkvæmd
þeirra. Hann ræddi einnig orlofsmál og
stöðu kvenna gagnvart Lífeyrissjóði bænda.
Hann studdi félagsmálaskóla og minntist á
hlutverk Bréfaskólans.
Steingrímur Hermannsson sagðist m. a.
hafa beðið Þjóðhagsstofnun að vinna að
könnun á hlutdeild landbúnaðarins í þjóð-
arbúskapnum. Hann endurtók, að hann vildi
fremur breytingar í framleiðslu landbún-
aðarins en samdrátt einan. Um frestun ríkis-
stjórnar á verðákvörðun sagði hann, að
verðlagsmál lægju yfirleitt iengi fyrir ríkis-
stjórn, en kvaðst vænta þess, að allir ríkis-
stjórnarflokkarstæðu saman, þegarákvörð-
un yrði tekin.
Gunnar Guðbjartsson lagði áherslu á, að
áætlun þyrfti að gera um búskap hverrar
jarðar áður en hægt væri að ákveða henni
bústofnskvóta gagnvart framtíðinni, og þetta
hefði sjömannanefnd framleiðsluráðslag-
anna lagt til, að gert yrði.
Hann skýrði nánar ýmis atriði, sem rædd
höfðu verið, og endurtók sterklega yfirlýs-
ingu um óánægju sína með frestun verð-
ákvörðunar hjá ríkisstjórn.
Ýmsir ræðumenn kvöldsins höfðu tekið
undir þá óánægjurödd, en margir þeirra
höfðu Iokið lofsorði á störf formanns Stétt-
arsambandsins og landbúnaðarráðherrans.
Að umræðum loknum voru reikningar
Stéttarsambandsins fyrir árið 1978 bornir
undir atkvæði og samþykktir samhljóða.
9. Málum vísað til nefnda.
Árni Jónasson lýsti 86 tillögum, er borist
höfðu. Höfðu 58 beirra verið lagðar fyrir
fundarmenn í fjölriti, en hinar komu beint
fyrir fundinn. Flestar tillögurnar voru frá
kjörmannafundum eða öðrum bændafund-
um, nokkrar frá stjórn Stéttarsambandsins
og aðrar frá einstökum fundarmönnum.
Var þessum tillögum öllum vísað til
nefnda. Hlaut framleiðslunefnd 15 tillögur,
verðlagsnefnd 18, fjárhagsnefnd 5 auk fjár-
hagsáætlunar, allsherjarnefnd 33, laganefnd
9 og lánamálanefnd 6.
Helgi Jónasson gerði að lokum grein fyrir
störfum millifundanefndar, sefn athugaði
samþykktir sambandsins og tillögur til
breytinga á þeim, kvað hann laganefnd
fundarins einnig mundi taka til athugunar
ábendingar þær, sem fram kæmu á fundin-
um um þetta mál.
Klukkan 130 eftir miðnætti varfundi frestað
til mánudags, en sunnudagurinn ætlaður til
nefndastarfa.
Sunnudagurinn 2. september var notaður
til nefndastarfa, en auk þess fóru sumir
fundarmenn og margar konur í boðsferð
með Baldri (flóabátnum). Búnaðarsamband
Snæfellinga bauð í ferðina, og var farið inn
undir Brokey, Öxney og Klakkeyjar við til-
sögn heimamanna. En um kvöldið bauð
Búnaðarsamband Snæfellinga öllu fundar-
fólkinu til kvöldverðar og kvöldskemmtunar.
FliEYR
581
3