Freyr - 15.09.1979, Síða 18
Framkvæmdastjóri búnaðarsambandsins,
Leifur Jóhannesson, kynnti mönnum hér-
aðið og síðan skemmtiatriðin, sem heima-
menn sáu um. Fór þar fram söngur, kveð-
skapur, vísnaflutningur, spurningakeppni
og hljóðfæraleikur, en að síðustu var
dansað.
Mánudaginn 3. september hófst fundur kl.
1030. Voru þá lagðar fram tillögur frá
nefndum.
10. Tillögur verðlagsnefndar.
Fyrstu tillögu nefndarinnar flutti Kristófer
Kristjánsson og talaði fyrir henni:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1979 skorar
á Framleiðsluráð landbúnaðarins að beina því til
sláturleyfishafa og seljenda búvöru að koma á í
sláturtíð sérstökum markaðsdögum til kynningar
og sölu á ferskum sláturafurðum, þar sem
neytendum yrðu boðnar þessar vörur á sérstöku
markaðsverði.
Fundurinn telur, að slíkir markaðiryrðu bæði til
kynningar og stuðluðu að aukinni neyslu.
Auk framsögumanns tók til máls Jón
Guðmundsson á Óslandi, en síðan vartillag-
an samþykkt samhljóða.
Kristófer Kristjánsson mælti einnig fyrir
annarri tillögu verðlagsnefndar:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1979 hvetur
söluaðila íslenskra búvara að nýta sem best inn-
anlandsmarkað fyrir framleiðsluvörur landbún-
aðarins og telur að ^uka megi neyslu þeirra f.rá
því, sem nú er, með bættri skipulagningu og fjöl-
breyttari framleiðslu.
Einnig mótmælir fundurinn því, að leyfður sé
innflutningur búvara til neyslu á Keflavíkur-
flugvelli á sama tíma, sem stórkostleg takmörkun
á sér stað á innflutningi íslenskra búvara til
Bandarlkjanna, og skorar á stjórnvöld að vinna nú
þegar að leiðréttingu þessara mála.
Samþykkt samhljóða.
Þriðju tillögu verðlagsnefndar flutti Gísli
Andrésson:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1979 telur
óviðunandi þær sveiflur, sem verið hafa á niður-
greiðslum búvara. Fundurinn legguráherslu á, að
niðurgreiðslur séu ákveðinn hundraðshluti af
heildsöluverði eins og kveðið er á um í lögum um
efnahagsmál frá síðastliðnum vetri.
Sigfús Þorsteinsson taldi tiliöguna óþarfa
vegna ákvæða efnahagslaganna, en Sigurð-
ur Sigurðsson mælti með samþykkt hennar,
því að oft væri hvikað frá settum lögum.
Sveinn Guðmundsson benti á, að ákvæði
efnahagslaganna væru frernur stefnumark-
andi en skýlaus fyrirmæli.
Tillagan var samþykkt samhljóða.
Fjórðu tiilögu verðlagsnefndar flutti Sig-
urður Jónsson, Kastalabrekku. Var hún um
frestun þá, sem ríkisstjórnin ákvað til gildis-
töku verðlagningar sexmannanefndar.
Ingi Tryggvason vildi færa orðalag tillög-
unnar til ákveðnari mótmæla, og aðrar
ábendingar komu frá Sveini Guðmundssyni
og Helga Jónassyni.
Var afgreiðslu tillögunnar frestað og
nefndinni falið að endurskoða hana.
Næstu tillögu flutti Þórarinn Þorvaldsson
af hálfu verðlagsnefndar:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1979
harmar, að Alþingi skyldi Ijúka störfum á síðasta
vori án þess að leysafjárhagsvanda bænda vegna
umframframleiðslu síðasta verðlagsárs.
Fundurinn lítur svo á, að Ajþingi beri ábyrgð á
offramleiðsluvandamálum landbúnaðarins með
þvíað hafaekki sett lög þarum allttil 6. apríl 1979.
Fundurinn álítur bændur eiga rétt á fullu grund-
vallarverði fyrir framleiðslu verðlagsársins
I978—1979, en telur lágmarksfyrirgreiðslu, sem
bændur geti sætt sig við, það, sem felst í tillögum
meirihluta harðindanefndar frá 28. júlí 1979.
Jón Gfsli Jónsson vildi bæta inn í tillöguna
harðari ákvæðum og fella niður síðari hluta
síðustu málsgreinar.
Stefán Valgeirsson benti á, að bændur
eiga aðeins siðferðilegan rétt til fulls grund-
vallarverðs, en ekki tvímælalausan, laga-
legan rétt. Um þessi atriði tóku til máls: Jón
582
FREYR