Freyr - 15.09.1979, Side 28
með ábyrgðarbréfi, símskeyti eða beinu símtali.
Þar, sem búnaðarsamband næryfir meira en eina
sýslu, er heimilt að boða til sameiginlegs fundar,
ef það þykir henta.
Á fundum þessum skal taka til meðferðar verð-
lagsmál landbúnaðarins og önnur hagsmunamál
bændastéttarinnar og gera ályktanir eftir því, sem
efni standa til.
Kjörmannafundi skal boða, þegarástæða þykir
til, þó aldrei sjaldnar en árlega til undirbúnings
aðalfundi. Aðalfundarfulltrúum ber að kynna
kjörmönnum störf aðalfundanna að þeim loknum
eftir því, sem við verður komið.
Búnaðarsambandsstjórn boðar að jafnaði til
kjörmannafunda í samráði við aðalfundarfulltrúa
og stjórn Stéttarsambandsins. Hver þessara aðila
getur átt frumkvæði að boðun kjörmannafundar.
Ágreiningi út af boðun og framkvæmd kjör-
mannafunda, gerð kjörskrár og kosningu fulltrúa
samkv. 5. gr. má, innan 10dagafrá því ágreiningur
reis, skjóta til stjórn'ar Stéttarsambandsins.
Úrskurður stjórnarinnar er endanlegur. Stjórn
Stéttarsambandsins dreifir bréflega til kjörmanna
þeim upplýsingum, sem hún ætlar þeim að koma
á framfæri f félagi sínu.
5. gr. orðist svo:
Kosning fulltrúa á fundi sambandsins fer fram
með eftirgreindum hætti:
a) Á þeim kjörmannafundi, sem haldinn er til
undirbúnings aðalfundi, skulu annað hvert ár
kosnir tveir fulltrúar fyrir hverja sýslu til að
mæta á fundum Stéttarsambandsins (saman-
ber þó ákvæði b-liðar þessarar gr.). Sé fund-
urinn sameiginlegurfyrirtværeðafleiri sýslur,
kjósa fundarmenn aðeins fyrir þá sýslu, sem
þeir eru mættir fyrir.
Hlutfallskosning skal viðhöfð, ef 'h kjörmanna
óskar þess. Kosningin gildir til tveggja ára.
Kjörmannafundur er lögmætur, ef fullur
helmingur kjörmanna úr viðkomandi sýslu
mætir. Búnaðarfélög kaupstaða hafa rétt til að
senda fulltrúa á kjörmannafundi í aðliggjandi
sýslu.
b) Nú berst stjórn búnaðarsambands krafa um
hlutfallskosningu með þátttökurétti þeirra,
sem kosningarrétt og kjörgengi hafa skv. 6.
gr., studd fundarsamþykktum minnst tveggja
af hverjum þremur búnaðarfélögum í viðkom-
andi sýslu, og skal hún þá viðhöfð. Slík krafa
skal hafa borist fyrir 1. maí það ár, sem kosn-
ingar eiga að fara fram. Berist stjórn búnað-
592
arsambandsins gild krafa um hlut-
fallskosningu, skal hún þegar birta það öllum
viðkomandi búnaðarfélögum og lýsa eftir
framboðum. Skylt er þá stjórnum búnaðarfél-
aga að semja og leggja fram kjörskrár. Rétt til
að bera fram kjörlista hafa minnst 30 kjósend-
ur eða 1/3 hluti þeirra kjósenda, sem atkvæð-
isrétt hafa.
Framboð skulu hafa borist stjórn viðkomandi
búnaðarsambands fyrir 1. júní. Á framboðslista
skulu vera nöfn tveggja aðalmanna og tveggja til
vara. Frambjóðendurskulu staðfestaframboð sín
með eigin áritun. Kostnað, er leiðir af kosningu
fulltrúa samkv. b-lið, greiðir viðkomandi búnað-
arsamband, en heimilt er því að krefja búnaðar-
félögin um endurgreiðslu í hlutfalli við fjölda
félagsmanna.
Fari fram kosning samkvæmt b-lið þessarar gr.,
fer hún að því leyti, sem ekki er hér fram tekið,
fram eftir reglugerð um kosningar til Búnaðar-
þings eftir því, sem við getur átt.
5. gr. Síðasta málsgrein 5. gr. „Þó þurfa bústjórar
ekki að vera aðilar að Lífeyrissjóði bænda“ —falli
niður.
5. gr. verði 6. gr. og töluröð annarra greina færist
til samkv. því.
26. gr. orðist svo:
Stjórnir hreppabúnaðarfélaganna og kjörmenn
skulu vera stjórn Stéttarsambandsins til aðstoðar
um allt það, er að félagssamtökunum lýtur, og
koma fram fyrir stjórnarinnar hönd um öll þau
mál, er hún kann að fela þeim innan hvers búnað-
arfélags.
Var nú gefið kvöldverðarhlé til kl. 2030.
Umræður:
Þórður Pálsson studdi tillögurnar. Engil-
bert Ingvarsson einnig, en óx í augum fjölg-
un kjörmannafunda með tilheyrarndi kostn-
aði.
Tryggvi Stefánsson bar fram munnlega
breytingartillögu um, að niður falli b-liður 5.
greinar. Vildi aukna aðild aukabúgreina að
Stéttarsambandinu.
Sigurður Líndal mótmælti b-liðnum. Vildi,
FREYR