Freyr - 15.09.1979, Page 29
að búnaðarfélagaformenn yrðu sjálfkjörnir
kjörmenn.
Gísli Andrésson bar fram orðalags-
breytingar.
Kristófer Kristjánsson fagnaði tillögunum,
sama gerði einnig Hermann Guðmundsson.
Þórður Pálsson áréttaði fyrri orð sín um
tillögurnar.
Helgi Jónasson varði orðalag þeirra og
mótmælti breytingatillögum.
Sveinn Guðmundsson vildi rýmka ákvæði
um hlutfallskosningar.
Enn tóku til máls: Árni Jónasson, Sigurður
Jónsson, Kastalabrekku, Engilbert Ingvars-
son, Þórarinn Þorvaldsson, MagnúsSigurðs-
son, Gísli Andrésson, Jón Guðbjörnsson,
Tryggvi Stefánsson, Sveinn Guðmundsson
og Sigurður Jónsson, Kastalabrekku aftur.
Þessar breytingartillögur voru lagðar fram
undir umræðunum:
Við 3. grein frá Sigurði Líndal:
Á eftir orðunum „innan hverrar sýslu" komi:
Formenn búnaðarfélaga eru sjálfkjörnir í trún-
aðarmannaráð.
Við 3. gr. frá Gísla Andréssyni:
í b-lið bréytist ,,sambandsins“ á þremur stöðum í
,,Stéttarsambandsins“ en „sambandinu" breytist
( ,,því“.
Við 5. gr. a-lið.
í stað orðanna ,, ef 'h kjörmanna óskar þess“
komi „ef 1/3 viðstaddra kjörmanna, er kosning
hefst, óskar þess“. (Frá Þórarni Þorvaldssyni).
Við 5. gr. b-lið.
(stað orðanna „minnst tveggja af hverjum þrem
búnaðarfélögum“ komi: „meiri hluta búnaðarfél-
aga“. (Frá Sveini Guðmundssyni og Sigurði
Jónssyni, Kastalabrekku).
Þá fór fram atkvæðagreiðsla:
Breytingartillaga Sigurðar Líndals felld
með 30:6 atkv.
BreytingartillagaGísla Andréssonarsamþ.
með 19:4 atkv.
3. gr. í heild samþ. með 34 samhljóða atkv.
4. gr. íheildsamþ. meðSSsamhljóðaadoA
Breytingartillaga Þórarins Þorvaldssonar
samþ. með 19:8 atkv.
A-liður 5. gr. samþ. með 37 samhlj. atkv.
Breytingartillaga Sveins og Sigurðar felld
með 23:10 atkv.
B-liður 5. gr. samþ. með 35:7 atkv.
Núverandi 5. grein samþ. með 37 sam-
hljóða atkvæðum.
26. gr. samþ. með 43 samhljóða atkvæð-
um.
Samþykktirnar í heild samþ. með 44:1
atkv.
Þá lagði Þórarinn Þorvaldsson fram til-
lögu, sem verðlagsnefnd breytti eftir um-
ræður fyrr á fundinum.
Nú var hún á þessa leið:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1979 átelur,
að Alþingi skyldi Ijúka störfum á síðasta vori án
þess að leysa fjárhagsvanda bænda vegna um-
framframleiðslu síðasta verðlagsárs.
Fundurinn lítur svo á, að Alþingi beri ábyrgð á
framleiðsluvandamálum landbúnaðarins með því
að hafa ekki sett lög þar um allt til 6. apríl 1979
þrátt fyrir ítrekaðar óskir bændasamtakanna á
undanförnum árum.
Fundurinn telur bændureiga rétt ágrundvallar-
verði fyrir framleiðslu verðlagsársins 1978—1979
og treystir stjóm Stéttarsambandsins að vinna
ötullega að því marki verði náð.
Samþykkt samhljóða.
15. Tillögur framleiðslunefndar.
Hermann Guðmundsson mælti fyrir fyrstu
tillögu nefndarinnar:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda, haldinn í
Stykkishólmi dagana 1.—3. sep’tember 1979, telur
brýnt, að unnið sé markvisst að bættri heyverkun-
araðstöðu hjá bændum, bæði hvað varðar súg-
þurrkun, votheysgerð og endurræktun túna, þar
sem hennar er þörf.
í því sambandi leggur fundurinn áherslu á, að
fjármagn, sem losnar við nýorðnar breytingar á
jarðræktarlögum, verði að verulegum hluta nýtt í
þessu skyni.
Samþykkt samhljóða.
FREYR
593