Freyr - 15.09.1979, Síða 33
Hvað er framundan?
Framh. af bls. 572
amagn sem hann á rétt á að fá greitt á fullu
verði, skv. a lið 2. gr. Fyrir framleiðendur
annarra búsafurða skal rétturinn miðast við
framtalið afurðamagn ársins 1978“.
Á venjulegu máli þýðir þetta að á árinu
1980 verður heimilt að leggja allt að 60%
gjald á kjarnfóður, en jafnframt að skammta
gjaldfrjálst kjarnfóður. Til að byrja með mun
þó ætlunin að endurgreiða gjaldið af því
kjarnfóðri sem menn eiga rétt á að fá
gjaldfrjálst. [ reglugerðinni er bæði talað um
framtalinn bústofn og framtaldarafurðirsem
grunn til að ákveða mönnum magn af gjald-
frjálsu kjarnfóðri. Stéttarsambandsfundur-
inn reiknar með að kjarnfóðrið verði
skammtað í hlutfalli við framleiðslumagn. í
reglugerðinni segir hinsvegar að Fram-
leiðsluráði sé heimilt að endurgreiða kjarn-
fóðurgjaldið miðað við framtalinn bústofn.
Það mun ætlunin, að á meðan ekki hefur
tekist að afla tæmandi upplýsinga um fram-
leiðslu hvers og eins bónda, verði endur-
greiðslan ákveðin eftirframtöldum bústofni.
Magn það sem Stéttarsambandsfundurinn
leggur til að veitt verði gjaldfrjálst út á hverja
framleiðslueiningu á næsta ári er mjög ríf-
legtþannig aðskömmtunin virðistekki líkleg
til að koma við þá sem fá ,,sinn skammt“ út á
allt sitt búfé.
Öðru máli gegnir um þá sem eru með svo
stór bú að þeir lenda í ,,framleiðslukvóta“ og
mega búast við því að fá skert verð fyrir hluta
af framleiðslunni, svo sem að framan er lýst,
þeir eiga samkvæmt ákvæðum reglugerð-
arinnar aðeins að fá gjaldfrítt kjarnfóður
fundinn sagði hann, að vart mundi finnast
betur mönnuð samkoma til úrlausnar á
vanda einnar stéttar.
Sigríður Höskuldsdóttir á Kagaðarhóli
þakkaði fyrir hönd kvennanna, sem fundinn
sóttu með bændum sínum. Minntist hún af-
bragðs viðurgjörnings, ferðalaga, kvöldvöku
og á allan hátt eftirmin'nilegra daga hér í
Stykkishólmi.
Þorsteinn Geirsson kvaddi sér hljóðs. Fór
hann í upphafi með ættjarðarljóð eftir Þor-
stein Jóhannsson á Svínafelli, en ræddi síð-
an starf og stöðu íslenskrar bændastéttar og
mikilvægt starf stéttarsamtaka þeirra.
Gunnar Guðbjartsson þakkaði fundar-
mönnum mikið og gott starf að erfiðum
málum. Nú eru válynd veður í tvennum
skilningi, en bændur mega hugsa með stolti
til þess, að komist varð farsællega frá mikl-
um vorharðindum, en grasleysi og óþurrkar
eru enn alvarlegt mál. Bændurverðaað snúa
saman bökum og standa vörð um búsetu í
byggðarlögum landsins, sem gefið hefur
okkur lífsbrauð um aldir.
í níunda sinn kvaðst Gunnar nú hafa tekið
við kjöri í stjórn Stéttarsambandsins og
sagðist treysta á gott samstarf við stjórnar-
menn alla, svo sem verið hefði. Hann þakkaði
þeim Sigsteini Pálssyni og Jóni Helgasyni,
sem nú hverfa úr stjórn og bauð hýja menn
velkomna. Óskaði Gunnar að síðustu öllum
góðrar heimferðar og heimkomu.
Magnús Sigurðsson, fundarstjóri, bar það
undir fundinn, að eigi yrði nú lesin fundar-
gerð heldur yrði fundarriturum falið að
ganga frá henni, hún síðan fjölrituð og send
fundarmönnum. Var þetta samþykkt. Fund-
arstjóri flutti þakkir heimafólki, forráða-
mönnum hótelsins og Búnaðarsambandi
Snæfellinga. Þakkaði hann síðan fundarfólki
öllu ánægjulegan og árangursríkan fund og
sagði fundi slitið.
Var þá klukkan 245.
Magnús Sigurðsson, Guðmundur Ingi Kristjáns-
fundarritari fundarstjóri
Hermann Sigurjónsson, Ólafur Eggertsson,
fundarstióri fundarritari
FREYR
597
5