Freyr

Volume

Freyr - 15.09.1979, Page 71

Freyr - 15.09.1979, Page 71
hjá bændum til að fylgjast með slíkum breytingum. Heimilt er að ákveða mismunandi endur- greiðslu eftir landshlutum og eftir búgrein- um í einstökum landshlutum. Endurgreiðsla skal fara fram eigi sjaldnar en á þriggja mánaða fresti þannig að fram- leiðendur komist jafnan hjá því að greiða gjaldið miðað við þau lánskjör sem innflytj- endur fá skv. 10. málsgr. þessarar greinar. Sé erlent kjarnfóður selt blandað'innlendu kjarnfóðri, skal kjarnfóðursali reikna gjaldið af hinum erlenda hluta blöndunnar við sölu. Sé innlend fóðurblanda afgreidd út á seðla skal gjaldið reiknað hlutfallslega af því er- lenda hráefni sem í blöndunni er. Þeir aðilar sem versla með kjarnfóður í smásölu skulu mánaðarlegasendaskýrslu til framleiðsluráðs um kjarnfóðurkaup og sölu hvers mánaðar. Sé kjarnfóður afgreitt gjald- frítt gegn framvísun seðla skv. 11. málsgr. þessarar gr. skal sundurliða hvað selt er án gjalds og einnig gerð grein fyrir því magni sem selt er á hærra verði. 4. gr. Þegar ákveðið hefur verið að leggja gjald á erlent fóður eða upphæð gjalds er breytt, skulu gjaldheimtumenn ríkisins láta telja birgðir kjarnfóðurs hjá innflytjendum kjarn- fóðurs og hjá smásöluaðilum. Skylt er sölu- aðilum að aðstoða við mælingu eða talningu birgðanna. Innheimta skal gjald af birgðum þessum skv. ákvæðum 3. gr. Kjarnfóðursali getur sett bankatryggingu fyrir greiðslu gjaldsins á sama hátt og segir í 3. gr. Sé kjarnfóður afgreitt gjaldfrítt gegn framvísun seðla sbr. 11. málsgr. 3. gr., getur kjarnfóðursali greitt gjaldið eða hluta þess með slíkum seðlum frá framleiðendum bú- vöru sem eiga rétt á að fá kjarnfóður án gjaldtöku. Innheimtumenn gjalds skv. 3. og 4. gr. skulu gera skil á innheimtu kjarnfóðurgjalds á þriggja mánaða fresti til Framleiðsluráðs landbúnaðarins. Sé kjarnfóður afgreitt gjaldfrítt út á seðla, skal skila til Fram- leiðsluráðs seðlum þeim sem notaðir hafa verið á hverju tímabili. Þeir sem framleiða fóðurmjöl innanlands, skulu senda Framleiðsluráði ársfjórðungs- lega skrá yfir alla sölu á þeirri framleiðslu innanlands. Skal þar tilgreint hverjir hafa keypt vöruna, heildarsölumagn til hvers kaupanda og einingarverð. Fulltrúafundur Stéttarsambands bænda skal árlega taka ákvörðun um gjald á innflutt kjarnfóður og einnig um hversu mikið magn kjarnfóðurs skuli látið án gjaldtöku miðað við hverja framleiðslueiningu búvöru eða búfjáreiningu. Framleiðsluráð skal leita staðfestingar landbúnaðarráðherra á ákvörðunum þessum. Sé ákvörðun tekin um að fella gjaldið niður, skal endurgreiða það sem innheimt kann að hafa verið af birgðum söluaðila. 5. gr. Skattstjórar skulu fyrir 1. júní ár hvert, ókeypis og ótilkvaddir, gefa Framleiðsluráði upp, í því formi sem það ákveður, afurða- magn og bústofn á hverju lögbýli og hjá öðr- um framleiðendum búvöru sem hafa meiri hluta tekna sinna af landbúnaði. Einnig er þeim skylt að veita aðrar upplýsingar sem nauðsynlegar eru í þessu sambandi, eftir kröfu Framleiðsluráðs. Skylt er þeim er taka við búfé til slátrunar eða búvöru til sölumeðferðar að vega alla vöru og setja á afurðamiða magn og verð og hvað framleiðandi tekur heim til eigin ráð- stöfunar. Framleiðsluráð getur krafið mjólkurbú og sláturhús um upplýsingar, er þessir aðilar geta veitt og nauðsynlegar eru, til að fram- kvæma heimildir skv. 2. og 3. grein reglu- gerðar þessarar. 6. gr. Gæsla og ráðstöfun þess fjár er innheimtist skv. heimildum þessum, skal vera í höndum Framleiðsluráðs landbúnaðarins. Heimilt er FREYR 635

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.