Freyr - 15.09.1979, Blaðsíða 72
að verja hluta þesstil að greiðaverðbæturtil
þeirra framleiðenda sem eftir sérstökum
samningi, draga úróhagkvæmri framleiðslu,
enda náist samkomulag um að ríkissjóður
leggi fram a. m. k. jafnháa fjárhæð. Fram-
leiðandi sem gerir samning um samdrátt bú-
vöruframleiðslu, skal fá hæstar bætur árið
sem hann minnkar framleiðsluna en stig-
lækkandi tvö næstu ár.
Viðkomandi framleiðanda er óheimílt að
auka framleiðslu aftur nema í fullu samráði
við Framleiðsluráð.
Heimilt er að endurskoða og breyta
samningi um þetta efni, ef aðstæður breytast
hjá viðkomandi framleiðanda eða markaðs-
aðstæður almennt breytast.
Verði ábúendaskipti á jörð, þar sem ábú-
andi hefur gert samning um samdrátt bú-
vöruframleiðslu, gildir slíkur samningur ekki
gagnvart nýjum ábúanda.
Þá er heimilt að nota fé sem innheimtist
skv. heimildum þessum til að jafna verð á
milli söluaðila er selja á erlendum markaði
og hinnaerselja innanlands. Einnig er heim-
ilt að nota hluta þess til að jafna verð og
aðstöðu á milli einstakra framleiðenda skv.
ákvæðum 2. og 3. gr. reglugerðar þessarar.
Þá er heimilt að nota hluta þess til að
greiða kostnað við framkvæmd þeirra laga-
ákvæða sem hér um ræðir.
Gjöld þau sem um ræðir í reglugerð þess-
ari, skulu ekki leiða til hækkunar á búvöru-
verði, að svo miklu leyti sem fjármagninu er
varið til að jafna söluverð búvara milli fram-
leiðenda.
Sá hluti sem notaður kann að vera til að
greiða framleiðendum fyrir að minnka fram-
leiðslu og notaðurertil að greiða kostnað við
framkvæmd þessarar reglugerðar, gengur
inn í verðlag búvörunnar
7. gr.
Framleiðsluráð landbúnaðarins fer með
framkvæmd ákvæða þessarar reglugerðar.
Það getur þó falið búnaðarsamböndum eða
búnaðarfélögum framkvæmd einstakra
verkþátta.
Formenn búnaðarfélaga skulu vera trún-
aðarmenn Framleiðsluráðs hver á sínu
félagssvæði. Framleiðsluráð getur þó valið
sér aðra trúnaðarmenn, þyki ástæða til.
Trúnaðarmenn skulu tilkynna Fram-
leiðsluráði um ábúendaskipti á jörðum og
breytingar á búrekstri er máli skipta við
framkvæmd þessarar reglugerðar. Fram-
leiðsluráð getur einnig óskað aðstoðar
þeirra við eftirlit með kjarnfóðursölu og fleiri
atriðum ef ástæða þykir til.
Nú telur einhver aðili að brotinn sé réttur
hans skv. reglugerð þessari og skal hann þá
gera Framleiðsluráði skriflega grein fyrir
málinu. Náist ekki samkomulag um úrlausn
ágreiningsefnisins, skal vísa því til sérstakrar
nefndar til úrskurðar.
Nefnd þessi skal skipuð fimm mönnum til
tveggja ára í senn. Tveir skulu skipaðir af
Stéttarsambandi bænda, tveir fulltrúar af
Búnaðarfélagi íslands og formaður skipaður
af landbúnaðarráðherra. Kostnaður við störf
nefndarinnargreiðist af Framleiðsluráði eins
og annar kostnaður við framkvæmd þessar-
ar reglugerðar.
8. gr.
Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða
refsingu skv. 46. gr. laga nr. 101/1966. Jafn-
framtgetaslík brotvarðað missi réttarskv. 3.
gr. reglugerðarinnar.
9. gr.
Reglugerð þessi tekur þegar gildi.
Landbúnaðarráðuneytið 22. ágúst 1979.
Steingrímur Hermannsson.
Sveinbjörn Dagfinnsson.
636
FREYR