Freyr

Volume

Freyr - 01.07.1995, Page 31

Freyr - 01.07.1995, Page 31
Yvette Arancibia De Antezana markaðsfulltrúi frá BOLINVEST í Bólivíu í Suður- Ameríku sýndi lífrœnt vottaða ull, peysur litaðar með náttúrulegum jurtalitum, kornvöru o.fl. (Ljósm. Ó.R.D.) vistvænum efnum. Þar á meðal voru íslenskar ullarvörur í þrem sýn- ingarbásum, tveim frá þýskum fyr- irtækjum og einum frá Foldu hf. á Akureyri. Annað var ekki sýnt frá Islandi. Líkt og ráðstefnan var vöru- sýningin vel undirbúin og rnikið lagt í marga sýningarbásana. Sýn- ingarskráin var aðgengileg með upplýsingum um fyrirtæki og nátt- úruafurðir þeirra. Þarna var sýnd kaplamjólk í neytendaumbúðum, snyrtivörur unnar úr kaplamjólk, jógúrt úr sauðamjólk, te úr ýmiss konar jurtum, lífrænt ræktað kaffi, lífrænt nautakjöt frá Argentínu, margar tegundir af vínum og ostum, kornvörur og ávextir ýmiss konar og leikföng úr vistvænum efnum, svo að dæmi séu tekin. Þótt flestir sýnendur væru frá Þýskalandi voru all margir frá fyrirtækjum víða um heim, svo sem frá Suður-Ameríku þar sem lífrænum landbúnaði er gefinn vaxandi gaumur. Sömuleiðis voru sumir sýningargestirnir komn- ir um langan veg, m.a. frá íslandi, og munaði þar mest um hóp starfs- fólks bændasamtakanna sem var í kynnisferð í Þýskalandi um þetta leyti. I tengslum við IFOAM ráðstefn- una var skipulögð heimsókn á líf- rænt býli um 30 km frá Frankfurt. Ég slóst í hópinn, hafði bæði gagn og gaman af og mun gera grein frá heimsókninni í næsta tölublaði Freys. Nýr forstöðumaður Jónas Bjarnason hefur verið ráðinn forstöðumaður Hagþjónustu landbúnaðarins á Hvanneyri um eins árs skeið, í leyfi Ernu Bjarna- dóttur, frá 1. maí sl. Jónas er stúdent frá Verslunar- skóla íslands árið 1975. Hann lauk BA-gráðu í fjölmiðla- og hagfræði (Cum laude) frá City University of New York árið 1992 og masters- gráðu í rekstrarhagfræði (MBA) frá University of New Haven í Connecticut árið 1994. Jónas starfaði sjálfstætt við eigið fyrirtæki (Framsýnt fólk hf.) eftir að hann kom frá námi í Banda- ríkjunum, m.a. að verkefnum fyrir ráðuneytin. Aður hefur hann starfað sem framkvæmdastjóri hjá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda (1883- ’90), sem framkvæmdastjóri hjá Félagi farstöðvaeigenda á íslandi (1980-’83) og sem framkvæmda- stjóri hjá Hljóðtækni í Reykjavík (1975-’80). Jónas er kvæntur Helgu Maríu Bragadóttur, rekstrar- og heilsuhagfræðingi (BA, MBA, MSHC). Hún starfar sem rekstrar- legur framkvæmdastjóri hjá Ár- bæjarsafni í Reykjavík. Þau eru bæði Reykvíkingar. MOLflR Sœnskir bœndur skipta um skoðun Fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðild Svíþjóðar að ESB sl. haust voru 53% sænskra bænda fylgjandi aðild en 30% andvígir, samkvæmt skoðanakönnunum. í maí 1995 sýnir skoðanakönnun að 42% eru fylgjandi aðild en 54% andvígir. Könnunin í maí fór fram meðal bænda sem bjuggu á jörðum með yfir 20 hektara ræktaðs lands (akra). Það eru mjólkurframleiðendur og skógarbændur sem eru andvígastir ESB-aðild, en kornbændur og fram- leiðendur annars jarðargróða sem eru ánægðastir með Evrópusam- bandið. Bændur á stærri jörðum og bændur á flatlendinu í Suður-Sví- þjóð eru ánægðari en aðrir með aðildina. (Norsk Landbruk nr. 11 /'95) 7.'95- FREYR 303

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.