Freyr - 01.12.1999, Blaðsíða 33
Frá Félagi hrossabœnda
Starfssemi Félags hrossa-
bænda hefur breyst að því
leyti að nú er aðalfundur fé-
lagsins haldin í apríl og því er engin
ársskýrsla félagsins til birtingar í
Hrossaræktar-Frey að þessu sinni.
Hins vegar er ætlunin hér að rekja
stuttlega helstu verkefni félagsins á
árinu 1999.
Heimsleikar 1999
Líkt og undanfarin ár starfaði
markaðsfulltrúi hjá félaginu í fullu
starfi. Verkefni á markaðssviðinu
þetta árið voru Ijölbreytt og marg-
þætt; hæst ber markaðsstarf á
heimsleikum islenska hestsins þar
sem Félag hrossabænda, Bænda-
samtökin og Landsmót 2000 sam-
einuðust um 20 fermetra kynning-
arbás þar sem íslensk hrossarækt,
landsmótið og Islandsfengur voru
kynnt. Kynningarstarf þetta tókst
afskaplega vel og samstarfið ekki
síður. Mikil umferð fólks var um
básinn og vakti Islandsfengur sér-
staka lukku, þar sem fólk gat leitað
að hrossum sínum, eða forfeðrum
þeirra, í gagnagrunninum og prent-
að út upplýsingar um þau. Starfs-
menn bássins dreifðu bæklingum
frá islenskum hrossaræktendum,
hrossaútflytjendum, sumarexems-
bæklingi og öðru fræðslu- og kynn-
ingarefni. Arangur íslenska liðsins
á leikunum var svo hámarkið og
varð hann einungis til að reka
smiðshöggið á það kynningarstarf
sem á leikunum var unnið þar sem
lögð var áhersla á gæði íslenskrar
hrossaræktar og reiðmennsku.
Bæklingur um
sumarexem
Félagið stóð að útgáfu á bæklingi
um fyrirbyggjandi aðgerðir gegn
sumarexemi í samvinnu við yfir-
dýralæknisembættið. Bæklingnum
var dreift á heimsmeistaramótinu í
Þýskalandi og á sýningum erlendis.
Auk þess var honum dreift með sér-
útgáfu Eiðfaxa Intemational sem
sendur var öllum skráðum eigend-
um íslenskra hesta í heiminum.
Viðbrögð við bæklingnum hafa
verið mjög góð og hafa þúsundir
eintaka í viðbót verið send út í heim
að beiðni erlenda aðila. Bæklingur-
inn er á ensku og þýsku og í honum
er sjúkdómsmyndinni lýst og farið í
gegnum þær aðgerðir sem hestaeig-
endur geta gripið til, til að koma í
veg fyrir myndum sjúkdómsins.
Heimasíöa
Heimasíða Félags hrossabænda
var opnuð á árinu og er slóð hennar:
www.stak.is/fhb
Þar er að finna ýmsar hagnýtar
upplýsingar um félagið, stjóm þess
og aðildarfélög, auk þess sem allar
fundargerðir eru settar þar inn sam-
hliða því að þær eru sendar út til að-
ildarfélaganna.
Umfjöllun erlendra
fjölmiðla
Erlendir fjölmiðlar, sjónvarps-
stöðvar sérstaklega, hafa sýnt ís-
lenska hestinum vaxandi áhuga
undanfarið ár og hefur félagið starf-
að mikið að skipulagningu og að-
stoð við heimsóknir Qölmiðla-
manna. Að minnsta kosti þrjár mjög
stórar sjónvarpsstöðvar vestanhafs
sóttu okkur heim og gerðu vandaða
þætti um íslenska hestinn sem birst
hafa í haust og munu birtast í
byijun nýrrar aldar. Samanlagður
áhorfendafjöldi þessara stöðva er í
kringum 200 milljónir manna og
því óhætt að segja að íslenski
hesturinn hafi fengið góða kynn-
ingu á þeim vettvangi. Einnig komu
japanskir sjónvarpsmenn til lands-
ins og skipulagði félagið ferð
Frá heimsókn forseta Islands í kynningarbás Félags hrossabœnda, Bœnda-
samtaka Islands og Landsmóts 2000 á heimsleikunum sl. sumar.
FREYR 13-14/99 - 33