Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.2000, Síða 8

Freyr - 01.06.2000, Síða 8
Fjölœrt rýgresi Fjölært rýgresi er mjög gott fóðurgras sem er mikið rækt- að í ýmsum helstu grasrækt- arlöndunum. Það hefur ekki verið ræktað hér á landi vegna þess að það er ekki nægilega vetrarþolið og endist ekki lengi í túni. Kynbóta- framfarir eru þó verulegar og fram koma ný yrki sem færa út ræktunar- mörk rýgresis. Það er þó fyrst og fremst vegna breyttra viðhorfa til ræktunar sem áhugi hefur vaknað á ræktun fjölærs rýgresis hér á landi. Frá 1995 hafa verið gerðar allmarg- ar tilraunir á Rala með fjölært rý- gresi. Auk tilrauna hefur nokkur reynsla fengist af ræktun hjá áhuga- sömum bændum. Sprettan er mikil ef það lifir veturinn vel, en ekki ætti að sá því nema við góð skilyrði, og eftir Hólmgeir Björnsson, Rannsókna- stofnun land- búnaðarins framræslan þarf að vera í lagi. Nið- urstöður tilrauna sem gerðar voru 1995-99 vom kynntar á ráðunauta- fundi í febrúar 2000. Fjölært rýgresi er skylt einæm rý- gresi, sem mikið er ræktað til græn- fóðurs hér á landi, og fóðurgildið er síst lakara ef það er ekki látið fara í stöngul. Það er mikið fljótara til eftir sáningu en önnur túngrös og gefur umtalsverða uppskem sáðár- ið, en þó mun minni en einært rý- gresi. Fjölært rýgresi er upphaflega tvílitna (2n), en ferlitna (4n) rýgresi er einnig að verða nokkuð algengt. Það er ennþá betra fóðurgras, en er ekki eins þolið. Uppskera og meðferð Fjölært rýgresi þolir vel bæði slátt og beit. Jafnan er borið á eftir slátt eða beit ef ætlunin er að nýta það aftur. Þau yrki sem hér hafa verið prófuð em einkum ætluð til sláttar en ættu þó einnig að þola beit. Á 1. mynd er sýnd uppskera rýgresis í tilraunum á fyrsta og öðra ári eftir sáningu. Annarri eins grassprettu í maí-júní og í þessum tilraunum árið eftir sáningu höfum við ekki kynnst. Rýgresi Uppskera fjölærs rýgresis í tilraunum á Sámsstöðum og Korpu (1996 og 1997) og á Þorvaldseyri og Möðruvöllum (1997 og 1998), þurrefni hkg/ha. Uppskera, þe. hkg/ha * Korpa * Sámsstaöir * Þorvaldseyri " Möðruvellir Sláttutími 1. mynd. Uppskera fyrsta árs eftir sáningu er sýnd með fylltum punktum og annars árs með opnum punktum. Sýnd er samanlögð uppskera fram að hverj- um sláttudegi. Lítið reyndi á vetrarþol veturna 1995-96 og 1996-97 og rýgres- ið lifði mjög vel. ífjögur skipti af átta sem sýnd eru á myndinni var það þrí- slegið til að nýta gœðin sem best. Á öðru ári sprettur minna jafhvel þótt ekki kali, en á Sámsstöðum og Þorvaldseyri varð kal til þess að seinka sprettu og draga úr uppskeru enn frekar. Þegar kom fram í júlí-ágúst spratt þó jafn vel og þar sem ekki hafði kalið, og á reitum með þolnustu yrkjunum var grasið orðið þétt. 8 - FREYR 6/2000

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.