Freyr - 01.06.2000, Page 9
Uppskera þriggja yrkja fjölærs rýgresis á Sámsstöðum á
öðru uppskeruári (1997), þurrefni hkg/ha. Til samanburðar
er vallarfoxgras, Adda.
80
60
40
20
0
—i--------------------------—i-----
2. júlí 19. ágúst
Sláttutími
2. mynd. Rýgresið virtist mjög illafarið afkali á Sámsstöðum vorið 1997. Þó
var vel greinanlegt líf í þolnum yrkjum og rýgresið varð þe'tt er á leið. Svea,
sœnskt tvílitna yrki, er þolnasta yrkið og það er fljótast til. Einar, norskt
ferlitna yrki, gefur því lítið eftir. Baristra, er ferlitna hollenskt yrki sem
reyndist mjög vel fyrstu árin og nokkrir bœndur sáðu því í tún, en seinni árin
reyndi meira á vetrarþol og þá kom það verr út. Vallarfoxgras spratt langt á
undan rýgresinu í þetta sinn, en mikið dró saman þegar seinni sláttur bcettist
við. Þegar rýgresið kemur vel undan vetri sprettur það hins vegar langt á
undan vallarfoxgrasi og sprettur einnig betur er á líður, sjá 1. mynd.
eða vetri. Það þolir einnig illa harða
frostakafla á auða jörð, einkum ef á
undan hafa farið hlýindi og rýgres-
ið er grænt. Tiltölulega lítil reynsla
hefur verið af svellkali þessa vetur
sem tilraunimar hafa staðið. Það er
sérstakt við fjölært rýgresi að oft
leynist mikið líf í því þótt það virð-
ist illa farið af kali og það kemur til
þegar líður á. Skammkalið rýgresi
sprettur hægt í fyrstu, jafnvel fram í
júlí, en eftir það sprettur ágætlega.
Þegar svona stendur á skiptir yrkis-
val miklu máli, sjá 2. mynd. Svea er
eina yrkið sem var orðið vel sprott-
ið á Sámsstöðum 2. júlí 1997, en
seinni hluta sumars hafa hin yrkin
sprottið heldur örar. Svea er alltaf
fyrst til, en munurinn verður mikið
meira áberandi þegar rýgresið er
illa farið eftir veturinn. Sá mismun-
ur yrkja sem sést á myndinni er lítið
meiri en hann hefur verið að meðal-
tali og er því ekki bara vegna kals.
Fóðurgildi
Fjölært rýgresi er mjög gott fóð-
urgras, en fóðurgildið fellur ört
þegar stöngull hefur myndast.
Meltanleiki hefur oftast verið mik-
ill í fyrsta slætti, 77 - 80 %, þótt
mikið hafi verið sprottið, enda
í þremur tilraunum hefur uppskera
rýgresis verið orðin um 5 tonn
þunrefnis (50 hkg) á hektara fyrir
eða um miðjan júní. Við höfum ekki
enn aflað nægilegrar vitneskju um
hvaða áhrif það hefur á vetrarþol og
uppskeru næsta árs að slá eða beita
seint. Við vitum þó að seinn sláttur
dregur úr spretm árið eftir, sama
hvert grasið er, en túnið má samt
ekki fara loðið undir vetur.
Tilraunimar hafa verið miðaðar við
nokkuð harða nýtingu. Hugmyndin
er að nýta gæði rýgresisins til fulls
en skeyta ekki um þótt það endist
ekki mjög lengi. Þolnasta rýgresið
hefur þó dugað nokkuð vel.
Vetrarþol og yrkisval
Fjölært rýgresi þolir ekki vel ís-
lenska vetrarveðráttu. Það hefur
sýnt sig að ekki þýðir neitt að sá því
þar sem jörð verður blaut að hausti
Starfsfólk á tilraunastöð RALA á Korpu að slá annan slátt affjölœru rýgresi.
FREYR 6/2000 - 9