Freyr - 01.06.2000, Qupperneq 12
Vallarfoxgras er vinsœlasta grastegundin til heyöflunar hér á landi.
grasið er venjulega einslegið með
léttri sláttuvél.
Vallarfoxgrasfræ er smátt, 1000
fræ vega 0,4-0,5 g. Þegar vallar-
foxgrasi er sáð eingöngu er
venjulega notuð 12-20 kg/ha af
fræi. Þetta þýðir að það falla
2400-4000 fræ á 1 m2. Fæst af
þessum fræjum verða plöntur.
Töluvert af fræjunum spírar ekki,
önnur spíra en deyja fljótlega í
miskunarlausri samkeppni við
aðrar plöntur. Menn nota svona
mikið af fræi vegna þess að
dreifing fræjanna er venjulega
ófullkomin, jafnvel þó að menn
vandi sig við dreifinguna. Fræ af
vallarfoxgrasi er frekar ódýrt.
Bændur velt því stundum fyrir
sér hvort réttara sé að sá vallar-
foxgrasi einu sér í nýræktir eða sá
grasfræblöndu með vallarfoxgrasi.
Venjulega er síðari kosturinn val-
inn, vegna þess að túnunum er ætl-
að að þola tvo slætti á sumri og
beit og réttilega vantreysta menn
vallarfoxgrasi til að þola slíka
meðferð. Ef vallarfoxgrasið bregst
er nauðsynlegt að önnur góð grös,
t.d. vallarsveifgras og túnvingull,
taki við og halda uppskerunni
uppi.
Yrki
Norsk og íslensk yrki af vallar-
foxgrasi hafa verið ráðandi á ís-
landi frá því er bændur hófu að
rækta það að einhverju marki. í rit-
inu Nytjaplöntur á Islandi 2000,
sem fæst hjá RALA, er mælt með
fimm yrkjum af vallarfoxgrasi til
notkunar á íslandi.
1. Adda. Ræktað upp af plöntum
sem Þorsteinn Tómasson safnaði
ámýrlendum kaltúnum í Borg-
arfirði. Sprettur aðallega
snemmsumars en gefur fremur
litla há.
2. Bodin. Norskt staðaryrki frá
Bændaskólanum í Boden. Mikið
notað í Norðlandfylki í Noregi.
Tæplega eins þolið á Islandi og
Adda, Engmo og Korpa.
3. Engmo. Norskt staðaryrki, ættað
frá býlinu Engmo í Troms, sem
er töluvert fyrir norðan heim-
skautsbaug. Hefur staðið sig vel
í íslenskum tilraunum.
4. Korpa. Ræktað upp af plöntum
sem Sturla Friðriksson safnaði í
Ólafsdal og víðar í Dalasýslu.
Sprettur aðallega snemmsumars
en gefur fremur litla há.
5. Vega. Nýtt norskt yrki, upp-
skerumikið og gefur meiri end-
urvöxt en hin yrkin sem hér eru
talin.
Árlega koma fram ný yrki sem
menn vona að taki þeim eldri
fram. Á nokkurra ára fresti verður
að bera saman ný yrki við þau eldri
í tilraunum ef tryggja á að bændur
eigi ætíð kost á bestu yrkjum sem
á markaði eru. Frá því tilraunir
hófust með yrki af grösum á
Islandi í byrjun aldarinnar hafa
verið reynd meira en 150 yrki af
vallarfoxgrasi. Tilraunastarfsemi
er tímafrek, líklega hefur það
kostað H/2-3 ársverk á 20. öld að
bera saman í tilraunum yrki af
vallarfoxgrasi. Það er óhætt að
fullyrða að þessi vinna hefur aukið
heyfeng landsmanna að magni og
gæðum og því borgað sig vel. Þó
hafa ýmsir heyrst tauta um að nóg
sé komið af ræktunartilraunum. Ef
við hættum að gera tilraunir með
ný innlend og erlend yrki og
ræktunaraðferðir kemur það niður
á íslenskum landbúnaði og gerir
stöðu hans veikari en nú er. Is-
lenskur landbúnaður er í vaxandi
samkeppni landbúnað í öðrum
löndunum þar sem bændur
styðjast við miklu öflugri við rann-
sóknarstarfsemi en við höfum hér
á landi.
Nýting vallarfoxgrass
Auk yrkjatilrauna hafa verið
gerðar margs konar rannsóknir á
vallarfoxgrasi á Islandi. Þar má
nefna tilraunir með grasfræblöndur,
áburð, hentugan sláttutíma, hey-
verkun og fóðrun með vallarfox-
grasheyi, kalþol og vetrarþol vallar-
foxgrass og efnagreiningar á gras-
inu. Mikið hefur verið skrifað um
niðurstöður þessara rannsókna.
Auk þess höfum við nýtt okkur
rannsóknir annarra þjóða. í römm-
unum eru tínd til nokkur atriði sem
komið hafa fram í íslenskum og
norskum rannsóknum án þess að
getið sé heimilda.
12 - FREYR 6/2000