Freyr - 01.06.2000, Side 15
1945 1946 1952 1953 1954 1955 1957 M eðaltal
2. mynd. Áhrifskjóls á þúsundkomaþyngd sexraðabyggs ígrömmum í tilraun-
um á Sámsstöðum. (KlemenzKr. Kristjánsson, 1976).
sama gildir um matjurtir og fóður-
jurtir varðandi áhrif skjóls. Hefð er
fyrir því að rækta grænmeti í ein-
hvers konar skjóli, s.s undir gróður-
hlífum eða í skjóli limgerða.
Á árunum 1909-1925 gerðu
danskir vísindamenn tilraunir með
áhrif skjóls á rófur og karftöflur. I
ljós kom að meðaltals uppskemauki
í rófnarækt nam 13,4% og 16,9% í
kartöflurækt (Einar G.E. Sæ-
mundsson, 1963). Islenskar rann-
sóknir (Óli Valur Hansson, 1985) em
samhljóða þeim dönsku og benda dl
þess að uppskemauki í kartöflurækt
geti numið nálægt
15% að jafnaði á
skýldu svæði miðað
við skjóllaust.
Við ræktun græn-
metis er mikilvægt
að koma uppskem
snemma á markað
og því getur lítils-
háttar flýtir upp-
skem skipt sköpum
fyrir verð hennar.
Skjól fyrir
búpening
Það er fleira en
gróðurinn sem nýt-
ur góðs af skjólinu.
Með plöntun skjól-
belta við ræktað
beitiland em slegn-
ar tvær flugur í einu
höggi, aukin upp-
skera fæst í skjólinu
og beitardýrin nýta
sér beitina betur.
Fyrir kúabændur ætti ávinningur-
inn að vera ótvíræður. Einkum á
þetta við að vori og hausti þegar
helst má eiga von á rysjóttu tíðar-
fari. Rannsóknir benda til þess að
nyt kúa sem ganga á skýldu landi sé
meiri en hinna sem njóta ekki
skjóls og munurinn geti numið allt
að 16% (Haukur Ragnarsson,
1990). Ekki verður efast um gildi
skjóls fyrir kýr til að minnka sveifl-
ur í nyt og draga úr hættu á júgur-
bólgu og fleiri sjúkdómum. Sem
fyrr er nefnt er ekki síst ástæða til
að huga að skjóli þegar vorbeitin og
haustbeitin er skipulögð. Þetta þarf
að gera í samhengi við skipulagn-
ingu grænfóðurakra sem beita skal
að hausti. E.t.v. getur þetta lengt
beitartímann að hausti um eina til
tvær vikur eða í það minnsta dregið
úr nytlækkun samfara kuldatíð.
Rannsóknir í Kanada hafa sýnt
12% þyngdaraukningu nautgripa
sem ganga á skýldu landi saman-
borið við óskýlt (Souto og
Meneses, 1998 efdr Webster o.fl.,
1970).
Sauðfé þarf einnig á skjóli að
halda, ekki síst að vori í lok sauð-
burðar þegar lambfé er sett út.
Skjólið hlífir hinum nýfæddu lömb-
um og æmar halda betur nyt. Sýnt
hefur verið fram á þetta með bresk-
um rannsóknum sem staðfesta að
lambadauði er mun minni í köldum
vomm ef æmar ganga á landi sem
nýtur skjóls. Þetta stafar líklega af
samspili þess að gróður tekur fyrr
við sér og vindkæling dýranna er
minni.
Víða um land ganga hross sjálf-
ala allt árið jafnt sumar sem vetur.
Grundvallaratriði er að skepnurn-
3. mynd. Hönnun skjólbelta rœður snjósöfnunareiginleikum þeirra (Pattern, 1956).
FREYR 6/2000 - 15
ÍL
l
I