Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.06.2000, Qupperneq 17

Freyr - 01.06.2000, Qupperneq 17
5. mynd. Trjágróður gefur landi fallegan og hlýlegan svip. (Olesen, 1979). um lönd bænda og jafnvel nærri híbýlum. í slíkum tilfellum er full ástæða til gróðursetningar skjólbelta til að draga úr umferð- arnið. Þetta er vel þekkt erlendis þar sem nánast án undantekninga er gróðursettur trjágróður með- fram hraðbrautum. Loftmengun Það er viðurkennt að tijágróður hreinsar loft bæði af lykt, reyk, ryki og gastegundum, s.s. ammóníaki og koldíoxíði (Olesen, 1979). Stað- setning skjólbelta við vegi getur komið í veg fyrir mikinn rykaustur eða mengun af völdum þungmálma og gasi frá útblæstri bfla. Skjólbelti geta einnig hreinsað loft af ryki á borð við frjóduft og silt (fokjarð- veg) sem getur verið til ama og leiðinda. Einangrun húsa Þekkt er á vindasömum svæðum að næðingurinn ber mikinn varma ffá íbúðar- og útihúsum og hækkar þar af leiðandi kyndikostnað. Bandanskar tilraunir benda til þess að unnt sé að ná niður húshitunar- kosmaði um allt að 20% með ræktun skjólbelta fyrir verstu vindátt (Haukur Ragnarsson, 1990). Kana- dískar rannsóknir sýna jafnvel enn meiri ávinning af skjólbeltum eða lækkun húshitunakostnaðar um 30% (http:/www.agr.ca/pfra/shbgene.htm.). I ljós kom að kostnaðarlækkunin var í beinu hlutfalli við lækkun vindhraðans og húshitunarkostnaður lækkar um 1,2% við vind- hraðaminnkun sem nemur 1 km á klst. Notkun skjólbelta við gripahús minnkar hugsanlegan trekk og gerir loftræstingu því nákvæmari. Skjól- belti draga úr álagi á byggingar, s.s. á málningu og steypu, og minnka viðgerðarþörf. Við gróðurhús draga skjólbelti úr kyndingu og minnka hættu á hitasveiflum. Við loðdýrahús koma skjólbelti í veg fyrir að það skafi inn í húsin. Fegrun og útivist Vistfræðilegt gildi skjólbelta varðandi tegundafjölbreytileika er óumdeilt. Ræktun skjólbelta hefur í för með sér auðugra dýralíf og aukna fjölbreytni plantna. Skjól- belti geta á skömmum tíma skapað skemmtileg útivistarsvæði og nýst í ferðaþjónustu til sveita, s.s. við tjaldsvæði eða önnur útivistar- svæði. Með ræktun skjólbelta em land- nýtingarmöguleikar auknir sem hugsanlega getur til framtíðar aukið verðmæti lands. Skjólbelti geta einnig orðið fyrsti vísir skógræktar og flýtt framvindu hennar. Skipulag og ræktun skjólbelta er ekki skammtímaverkefni. Vanda þarf allan undirbúning og horfa til framtíðar varðandi ræktunina. Tak- ist vel til geta beltin orðið að miklu gagni í búskapnum auk þess að veita yndi fólki og fénaði. Heimildaskrá Ritaðar heimildir Einar G.E. Sæmundsson, 1963. Skjólbelti. Skógræktarritið 1963, bls. 15-31. Haukur Ragnarsson, 1990. Skjól- belti. í: Skógræktarbókin, bls. 227-237. Skógræktarfélag íslands, Reykjavík. Jónatan Hermannsson, 1993. Kom- rækt á Islandi. I: Rit Ráðunautafundar 1993, bls. 178-187. Klemenz Kr. Kristjánsson, 1976. Ahrif skógarskjóls á komþunga. Skóg- ræktarritið 1976, bls. 23-26. Olesen, Frode, 1979. Læplantning, dyrkningssikkerhed, klimaforbedring, landskabspleje. Landhusholdningssel- skabets Forlag. Ólafur Amalds, 1995. Jarðvegs- fræði. Kennsluhefti við Raunvísinda- deild Háskóla Islands. Ólafur Njálsson, 1984. Skjólbelti, gerð þeirra og skjóláhrif. Skógræktar- ritið 1984, bls. 3-25. Óli Valur Hansson, 1983. Um skjól- beltaræktun. í: Handbók bænds 1983, bls. 129-148. Óli Valur Hansson, 1985. Kartöflur- skjólathuganir. í: Rit Ráðunautafundar 1985, bls. 193-198. Patten, O.M., 1956. Shelterbelts for your farm. Windbreaks and shelterbelts tecnical note No. 59WMO-No. 147 T.P. 7. World Meterological Organization. Souto L.F.M.A.R. & J.F. Meneses, 1998. The multi-effects of living windbreaks. f: Rit Evrópusáðstefhu landbúnaðarverkhæð- inga í Osló, ritgerð nr. 98-E-065. Vefsíður Alberta Agriculture Website, http://www.agric.gov.ab.ca/ Prairie Farm Rehabilitation Admini- stration (PFRA) -Shelterbelt centre, http://www.agr.ca/pfra/ shbgene.htm FREYR 6/2000 - 17

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.