Freyr - 01.06.2000, Síða 26
Eru erfðabreytt
matvæli á útleið?
Erindi flutt á ráðstefnu umhverfisráðuneytisins 9. mars 2000:
Erfðabreytt matvæli, - framtíðarvon eða „Frankenstein-fæða“?
Eg vil í upphafi fagna frum-
kvæði umhverfisráðuneytis-
ins að boða til þessarar ráð-
stefnu um erfðabreytt matvæli.
Umræðan um þetta mikilvæga efni
hefur verið mjög takmörkuð hér. Á
hinn bóginn hefur umræðan verið
mikil um alla Evrópu og hafa neyt-
endur þar hafnað erfðabreyttum
matvælum. Það er heldur ekki
skrýtið að það eru einmitt breskir
neytendur sem sýnt hafa mesta and-
stöðu við erfðabreyttu matvælin, en
þeir hafa einmitt „útvegað" okkur
að hluta heiti þessarar ráðstefnu,
þ.e. að kalla erfðabreyttu matvælin
„Frankenstein-fæðu“. Minnt skal á
að það eru ekki síst breskir neyt-
endur sem hafa orðið verst fyrir
barðinu á matarhneykslismálum
sem reglubundið hafa komið upp á
síðustu árum og má þar nefna kúa-
riðuna, en dauðsföll af völdum
hennar sér enn ekki fyrir endann á.
Stjómmálamenn héldu því einfald-
lega fram í upphafi kúariðufársins,
að ekkert væri að óttast. Lái því
hver sem vill breskum neytendum
þessa neikvæðu afstöðu gagnvart
erfðabreyttu matvömnum, þó svo
að ráðamenn segi að erfðabreyttu
matvælin séu í lagi, breskir neyt-
endur treysta einfaldlega ekki
stjómvöldum.
Neytendur, jafnt sem samtök
þeirra, hafa þannig tekið erfða-
breyttu matvælunum með miklum
fyrirvara. Það er þó ekki svo að
erfðabreytt matvæli séu slíkt eitur
að okkar mati að alls ekki komi til
greina að leyfa þessa nýju fram-
leiðsluaðferð að einhverju marki.
Síður en svo. Raunar minna neyt-
endasamtök á að tilraunir með
erfðabreytingar hafa skilað miklu
uð að mati vísindamanna og rann-
sóknarfyrirtækja. Hvort neytendur
vilja hins vegar kaupa þessar vömr
fer að mestu eftir því hvort þeir telji
sig geta treyst þeim.
Andstaðan er ekki
vegna vanþekkingar
Það er staðreynd að daglega er
verið að selja okkur matvæli sem
geta verið framleiddar með erfða-
breytingum eða sem geta innihaldið
erfðabreytt hráefni í mismiklum
mæli. Það er jafnframt ljóst að mik-
ill meirihluti neytenda í Evrópu og
einnig í Ameríku og raunar víðar er
mjög neikvæður gagnvart þessum
vömm. Það er einnig alrangt að
andstaða neytenda sé aðeins vegna
vanþekkingar neytenda á þessari
nýju tækni eins og talsmenn erfða-
breyttra matvæla halda fram. And-
stætt því, sem fyrirtæki í þessum
iðnaði halda fram, hefur einmitt
mikill meirihluti þeirra neytenda,
sem taka afstöðu gegn erfðabreytt-
um matvælum mikla þekkingu á
málinu samkvæmt könnunum.
Fyrirtæki í þessum geira verða því
að taka tillit til slíkra krafna neyt-
enda og hafa stóm alþjóðlegu fyrir-
tækin, sem einoka þennan markað,
verið að komast að þessari stað-
reynd. I athyglisverðri grein í
danska neytendablaðinu „Tænk +
Test“ er einmitt fjallað ítarlega um
þennan iðnað undir yfirskriftinni
„Ráðvilltu mennimir í St. Louis“,
en þar er átt við alþjóðlega risann
Monsanto sem er mjög stór fram-
leiðandi erfðabreyttra lífvera og er
með höfuðstöðvar í St-Louis.
Raunar mun þessi grein einnig
birtast í aprílblaði Neytendablaðs-
ins.
innan lyfjaiðnaðarins í baráttunni
við marga erfiða sjúkdóma. Og
vissulega vonumst við til að þar
verði áfram hægt að sækja frekari
landvinninga.
Umræðan í nágrannalöndum
okkar hefur til skamms tíma eink-
um verið um hvort þessar matvömr
séu hættulegar neytendum. Það er
mjög mikilvægt að halda áfram
þeirri umræðu enda víðsfjarri að
vísindamenn séu sammála um
þetta. En umræðan um langvarandi
áhrif á umhverfið og fjölbreytileika
lífvera hefur orðið miklu meiri nú
að undanfömu. Þetta hefur orðið til
þess að Evrópusambandið hefur
ekki í jafn ríkum mæli og áður leyft
að nýjum erfðabreyttum lífvemm
sé sleppt út í umhverfið. Einnig
hefur þetta orðið til þess að nú er
verið að endurskoða tilskipun um
erfðabreytt matvæli og herða hana.
Neytendasamtök í Evrópu hafa lýst
yfir stuðningi við þessar hertu að-
gerðir Evrópusambandsins.
Ég minni enn á að neytendasam-
tök em í sjálfu sér ekki hrædd við
tækniþróunina, ekki heldur þegar
um er að ræða erfðatækni og
erfðabreytingar. Það er mikilvægt
að slá því föstu að erfðabreytingar
em aðeins verkfæri, óháð því hve
spennandi tæknin er sem þar er not-
eftir
Jóhannes
Gunnarsson
formann
Neytenda-
samtakanna
26 - FREYR 6/2000