Freyr - 01.03.2001, Blaðsíða 4
Lífrænar miðstöðvar
Um mánaðamótin ágúst -
september sl. var haldin í
Basel í Sviss 13. alþjóð-
lega ráðstefnan um líf-
rænan landbúnað á vegum IFOAM,
Alþjóðasamtaka lífrænna landbún-
aðarhreyfinga. Fyrir ráðstefnuna
var haldin stór vörusýning með líf-
rænt vottaðar afurðir í Zofingen,
skammt frá Basel, en eftir ráðstefn-
una gafst kostur á ferðum til að
kynnast þróun lífræns búskapar í
Sviss. Fulltrúar Islands voru þau
Asdís Helga Bjarnadóttir frá Land-
búnaðarháskólanum á Hvanneyri,
Haukur Halldórsson frá Áformi -
Átaksverkefni, Hákon Sigurgríms-
son frá landbúnaðarráðuneytinu og
höfundur þessarar greinar. Auk þess
að sækja ráðstefnuna sóttu þeir
Haukur og Hákon vörusýninguna
en við Ásdís Helga fórum í tveggja
daga kynnisferð sem greint verður
frá hér á eftir.
í Sviss
Dr. Ólafur
Dýrmundsson,
ráðunautur BÍ
í lífrænum
búskap
Fjölsótt ráðstefna
og mikið fundað
Ráðstefnan var haldin í Messe-
basel, stórri ráðstefnumiðstöð,
skammt ofan við Rín, sem rennur í
gegnum Basel. Þátttakendur voru
um 1200 og var allt skipulag með
ágætum. Það var mál þeirra sem til
þekktu að þessi 13. vísindaráð-
stefna IFOAM hafi verið sú besta
til þessa. Helstu efnisflokkarnir
voru: Jarðvegur, örverur í jarðvegi,
næringarefni og nytjajurtir, gæði
lífrænna matvæla, sáðskipti og bú-
skaparkerfi, kennsla og leiðbein-
ingar, markaðsþróun og viðhorf
neytenda, framleiðslureglur, vottun
og vörumerkingar, stefnumótun í
lífrænum búskap, byggðaþróun,
erfðabreyttar lífverur, lífræn búfjár-
rækt, lífræn garð- og gróðurhúsa-
rækt og skógrækt sem liður í líf-
rænum búskap. Yfirlit allra erind-
anna var gefið út í vönduðu hefti
(ISBN-3-7281-2754X; heimasíða
www.vdf.ethz.ch). Ég flutti erindi
um möguleika og skilyrði fyrir líf-
ræna ræktun og búskap hér á landi
á fundi sem fjallaði um byggðaþró-
un, og er erindið í heild birt á
heimasíðu bændasamtakanna,
www.bondi.is.
Veigamikill þáttur í slíkum ráð-
stefoum er að bera saman bækur
sínar við fólk ffá ýmsum löndum og
halda jafnvel stutta fundi utan dag-
skrár um sérstök samvinnuverkefni.
Þannig tókst að koma á nefndarfundi
í norrænum vinnuhópi á vegum NJF
- Norrænu búfræðifélagsins- sem
vinnur að málefnum lífræns búskap-
ar. Þá sat ég fund sem fulltnii Islands
í hópi (ECODIS) sem fylgist með og
safnar upplýsingum um rannsóknar-
verkefni í þágu líffæns búskapar í
öllum Evrópulöndum (www.organic-
research.org). Þótt samskipti okkar
séu mest í gegnum tölvur er ómetan-
legt að hittast öðru hvom. Töluvert er
um bændur á slíkum ráðstefnum og
það er uppörvandi hve mikil bjart-
sýni og jákvætt hugarfar ríkir í líf-
rænu hreyfingunni. Þama var verið
að flytja erindi, sem marka viss tíma-
mót, eins og t.d. sameiginlegt erindi
Inger Kállander, formanns Félags líf-
rænna bænda í Svíþjóð, sem var ný-
lega hér á ferð, og Hans Jonsson, for-
manns Sænsku bændasamtakanna,
LRF sem lagar nú búrekstur sinn að
líffænni ræktun. Svipað má segja um
erindi Nadiu Scialabba frá Róm sem
lýsti jákvæðum viðhorfum FAO -
Matvæla- og landbúnaðarstofnunar
Við Gotheanum stofnunina í Dornach var fé á beit í hvamminum. Aðatbyggingin,
sem sést á myndinni, er mjög sérstæð og í henni er m.a. ieikhús, hin
vandaðasta bygging sem Rudolf Steiner hannaði, en hún var reist á árunum
1925-1928. (Ljósm. J. Spalinger).
4 - FReVR 2/2001