Freyr - 01.03.2001, Blaðsíða 39
Beigalda í Borgarhreppi. Þar stund-
aði hann mjólkuriðnað er m.a. varð
forveri Mjólkursamlags Borgfirð-
inga. En það er önnur saga og einn-
ig merkileg.
4. Áhrif Mjólkurskólans
- og Grönfeldts
Alls munu það hafa verið 192
stúlkur sem stunduðu nám um
lengri eða skemmri tíma við Mjólk-
urskólann þá tæpu tvo áratugi, sem
hann starfaði. Voru þær víða að af
landinu, flestar þó úr Ámessýslu en
þar varð vegur rjómabúanna mest-
ur. Að námi loknu réðust margar
þeirra til starfa sem rjómabústýrur.
Aðrar hurfu til húsmóðurverka í
sveit og bæ. Með þessum nemend-
um hafði Mjólkurskólinn vafalítið
mjög mikil áhrif víða - bæði bein
og óbein. Má með vissum rétti
segja, að þarna væri á ferð fyrsta
skipulega starfsmenntunin á sviði
matvælaiðnaðar í landinu, jafn-
framt því sem skólinn stuðlaði með
öðru að nýsköpun aldagamalla at-
vinnuhátta í landbúnaði. Kristleifur
Þorsteinsson bóndi og fræðimaður
á Stóra-Kroppi í Borgarfirði skrif-
aði m.a. svo um rjómabúin:
„Eg tel rjómabúin máttugasta við-
reisnaraflið í búnaði bœnda áfyrsta
tug þessarar aldar. Af þeim höfðu
bœndur mikinn Iragnað, beinan og
óbeinan, og auk þess varð sú
samvinna til þess að glœða félags-
anda og bróðurhug. Við bœttan liag
urðu menn frjálsari á alla lund. “
Áhrifanna gætti víða
Það er ekki auðvelt að leggja mat
á áhrif Mjólkurskólans og starf
Grönfeldts skólastjóra. Það er eðli
þekkingar að koma þannig að fram-
vindu mála að öllurn þyki framfar-
imar meira eða minna sjálfsagðar.
Vafalítið hefur menntun ijómabú-
stýranna í Mjólkurskólanum átt
drjúgan hlut í því, hve vel starf
rjómabúanna íslensku gekk þrátt
fyrir erfiðar aðstæður. Þau urðu
flest 34 og undantekningarlaust
voru það menntaðar rjómabústýrur
sem veittu þeim forstöðu. Þáttur
Hans Grönfeldt Jepsen var mikill; á
herðum hans hvíldi stjórn Mjólkur-
skólans og öll kennsla, en einnig
leiðbeiningar til starfsfólks rjóma-
búanna, verk sem hann vann öll af
„mikilli árvekni og dugnaði," svo
notuð séu orð Guðmundar Jónsson-
ar skólastjóra frá Hvanneyri. Sig-
urður Guðbrandsson mjólkurbús-
stjóri í Borgarnesi lét hafa þessi
ummæli eftir sér að Grönfeldt látn-
um árið 1945:
„Mjólkurskóli H.J. Grönfeldts
bœtti tvímœlalaust mikið alla vöru-
vöndun á sviði mjólkurafurðanna.
Af Grönfeldt lærðu fleiri en þeir,
sem hjá honum dvöldu. Nemendur
hans frœddu bœði nágranna sína
og heilar sveitir um rétta meðferð á
mjólk. Varð nemendahópur hans
þannig margfalt stœrri en hópur sá,
sem dvaldi við sjálfan skólann.
Lærðu rjómabússtýrumar, sem bú-
settar eru hér í héraði, eru alltaf í
hópi þeirra mjólkurframleiðenda,
er bezta mjólk senda til Mjólkur-
samlags Borgfirðinga. “
Rjómabúin færðu bændum pen-
inga, sem ekki var algengt að menn
fengju í hendur á þessum árum.
Rjómabúin voru rekin á samvinnu-
grundvelli; það glæddi „félagsanda
og bróðurhug" svo notuð séu orð
Kristleifs bónda Þorsteinssonar á
Stóra-Kroppi. Að sögn Einars í
Runnum, sonar Kristleifs, ýttu
rjómabúin einnig undir meira
hreinlæti í öllum vinnubrögðum en
almenningur hafði átt að venjast.
Hann gat einnig hinna félagslegu
áhrifa: Rjómabúið við Geirsá í
landi Stóra-Kropps varð til dæmis
samkomustaður unga fólksins í
Reykholtsdal, enda samkomuhús
þá engin utan kirkjur. Rjómabú-
stýrumar og stöllur þeirra, oft langt
að komnar, fönguðu athygli heima-
fólksins. „A blíðvirðiskvöldum,
einkum um helgar, sé ég í anda, er
hópar af ungu fólki fóru á gæðing-
um sínum að rjómabúinu. Og það-
an mátti heyra um langa vegu óma
söngva þess í kvöldkyrrðinni... “
Einar rekur stofnun ungmennafé-
lags Reykdæla (1908) að nokkru
leyti til fólksins ...,,sem œttjarðar-
söngvarnir ómuðu frá hjá Geirsár-
búinu. “
Að endirtgu
Gera má tilraun til þess að draga
saman nokkra punkta um einkenni
þeirrar tilraunar sem stofnun og
starf Mjólkurskólans var:
* Mjólkurskólinn er dæmi um ár-
angursríka tækniyfirfærslu á
milli landa. Keypt var erlend
kunnátta og henni dreift með
skilvirkum hætti innanlands.
* Mjólkurskólinn færði sönnur á
mikilvægi þess að kunnátta og
þekking komi á undan fram-
kvæmdum og fjárfestingu við
nýsköpun í atvinnurekstri.
* Skólastarfið og leiðbeininga- og
ráðgjafarstarfið var tengt saman
í eina heild sem að gmnni til
byggðist á samvinnufélagsskap
bænda um rjómabúin. Fyrir-
myndin var sótt í góða reynslu
danskra bænda.
* Starf Mjólkurskólans í þágu
rjómabúanna var liður í við-
skiptavæðingu landbúnaðarins;
bændur tóku að sjá pening sem
m.a. ýtti enn frekar undir tækni-
væðingu landbúnaðarins.
* Mjólkurskólinn veitti hvað
fyrstu skipulögðu starfsmennt-
unina á sviði matvælavinnslu
hérlendis.
* Mjólkurskólinn var liður í
menntun og réttindabaráttu
kvenna.
* Mjólkurskólinn með rjómabú-
unum var næsti fyrirrennari þess
blómlega mjólkuriðnaðar sem
við eigum í dag.
Leiðrétting
I fyrrihluta þessarar greinar, í
1. tbl., er villa neðst í miðdálki á
bls. 36. Þar á að standa: „íslenska
smjörið hafði nefnilega áður verið
elt“, (ekki ,,selt“). Beðist er
velvirðingar á þessu.
pR€VR 2/2001 - 39