Freyr - 01.03.2001, Page 8
/ eplagörðum Erwin Vogt og fjölskyldu í Remigen voru sumar eplategundirnar að
verða tilbúnar til tínslu (2. september). Lifræn epiarækt er vandasöm, m.a.
vegna baráttu við ýmsa sjúkdóma sem ekki er leyfilegt að nota hefðbundin
eiturefni gegn. Hugvitsamlag véltækni er notuð við grisjun og illgresiseyðingu en
mýs skemma stundum eplatrén niðri við jörðu og valda töluverðu tjóni. Yfirsuma
garðana er tjaldað fínriðnu neti til að verja eplin skemmdum vegna haglélja.
Aðlögun að lífrænum búskap lauk fyrir fáeinum árum en áður voru þau í
vistvænni framleiðslu. Um 30% hærra verð fæst fyrir eplin sem eru mjög
bragðgóð. (Ljósm. höfundur).
* Næringarefnajafnvægi var með
þeim hætti að N (köfnunarefni)
var í neikvæðu jafnvægi í öllum
liðum og lífrænu liðimir voru
neikvæðir í P (fosfór) og K
(kalí). Aftur á móti var jákvætt
jafnvægi í Ca (kalsíum, og Mg
(magnesíum) í öllum liðunum.
Næringarefni virtust nýtast betur
í lífrænu liðunum vegna hag-
stæðari skilyrða fyrir svepparæt-
ur og rótarhnúðgerla þannig að
uppskera var meiri en áætlað
hafði verið. Kartöflur reyndust
viðkvæmastar fyrir skorti á nær-
ingarefnum.
* Sýrustig jarðvegs var hagstæð-
ara, (hærra), í þeim liðum sem
fengu lífrænan áburð og þar
hélst gott jafnvægi. í lok tíma-
bilsins var talin ástæða til að
kalka hefðbundna liðinn og
breyta þar yfir í kalkríkan tilbú-
inn áburð. Lífrænt efni í jarðvegi
minnkaði nokkuð í öllum liðum.
Staðan var þó hagstæðari þar
sem lífræns áburðar naut við
ræktunina og lífefldi liðurinn
var bestur.
* Jarðvegsgerð og stöðugleiki var
heldur betri í lífrænni ræktun en
þeirri hefðabundnu og þar með
minni hætta á jarðvegsrofi. Líf-
efldi liðurinn var bestur.
* Lífræna ræktunin var hagstæðari
ánamöðkum og fleiri smádýrum
í jarðvegi, einkum vegna þess að
þeir eru viðkvæmir fyrir eitur-
efnum í hefðbundinni ræktun.
Við lífræna ræktun fjölgaði
meira þeim skordýrum sem eyða
skaðlegum skordýrum (lífrænar
vamir) en við hefðbundna rækt-
un. Hið virkara smádýra- og ör-
verulíf í lífræna jarðveginum
bætti og gæði hans sem kom
m.a. fram í meiri virkni ensíma
og hraðara niðurbroti næringar-
efna en í hefðbundinni ræktun.
Hér hefur verið stiklað á stóru en
í heildina sýna þessar langtímatil-
raunir að lífrænar ræktunaraðferðir
geta gefið góðan árangur. í upphafi
beindist athyglin einkum að upp-
skerunni en þegar leið á tilrauna-
tímann var farið að huga meira að
jarðveginum og langtímaáhrifum
ræktunaraðferða á umhverfið. I
flestu tilliti eru þau lífrænni ræktun
í hag og jákvæðar niðurstöður um
þau áhrif eru einnig að koma fram í
ýmsum öðmm löndum.
Lífrænir bændur heimsóttir
Eftir að hafa skoðað hina lífræna
miðstöð í Frick, sem endaði með
heimsókn í gripahús, var eftir ágæt-
an hádegisverð í mötuneytinu hald-
ið í blíðskaparverði á bú Köbi
Treichler og fjölskyldu við Baar í
Zug kantónu. Þar var þegin hress-
ing við borð úti á túni í boði sveit-
arstjómar og gist um nóttina í Park-
hotel í Richenthal. Daginn eftir var
haldið í heimsókn til Hans og
Söndru Braun á Lekenhof skammt
frá Rothrist og snæddur 95% líf-
rænn hádegisverður, afbragðsgóð-
ur, á veitingastaðnum Loohof sem
Stich fjölskyldan í Oftringen rekur
með sóma. Nær eingöngu er notað
lífrænt vottað hráefni við matseld
og er veitingastaðurinn auglýstur í
samræmi við það. Þaðan var haldið
á ávaxtabú Erwin Vogt og fjöl-
skyldu í Remigen í þungbúnu en þó
góðu veðri og sluppum við við
rigningu þangað til síðdegis þegar
við vomm á leiðinni í rútunni eftir
hraðbrautinni frá Zúrich til Basel.
Þar með var lokið þessari ágætu
kynnisferð. Eg læt myndir og texta
nægja til að lýsa sumu af því sem
fyrir augu og eyru bar. Allir þessir
bændur nýta niðurstöður rannsókna
og leiðbeininga frá miðstöðinni í
Frick og bám þeir lof á þá þjónustu
sem hún veitir við aðlögun að líf-
rænum búskap og þróun hans. Þá
ber að geta þess að lokum að hin
opinbera leiðbeiningaþjónusta
landbúnaðarins í Sviss veitir einnig
ráðgjöf um lífrænan búskap, yfir 30
búnaðarskólar bjóða upp á slíkt
nám og Búvísindadeild Tæknihá-
skólans í Zúrich (ETH) o.fl. stofn-
anir veita fræðslu á þessu sviði í
vaxandi mæli.
8 - pR€VR 2/2001