Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.03.2001, Qupperneq 10

Freyr - 01.03.2001, Qupperneq 10
1. tafla. Gæðastuðlar fyrir landbúnað, þeim er skipt í sex aðalflokka. Jarðvegur_______________________________ Uppblástur Frjósemi Þjöppun Mengun Önnur lífhvolf - andrúmsloft og grunnvatn Notkun varnarefna Tap næringarefna Mengandi lofttegundir Varðveisla auðlinda Vatnsnotkun Hringrás plöntunæringarefna Orkunotkun Erfðalindir Gæði landbúnaðarafurða Næringargildi Mengun Hreinlæti Ásýnd sveitanna Landslag Sveitabæirnir Siðfræði Fólkið Búsmalinn Umhverfið andrúmsloftið og grunnvatn. Það er einkum þrennt sem standa þarf vörð um í því tilliti, útskolun næringarefna, brennslu á lífrænu eldsneyti og notkun vamarefna. Þó að nær- ingarefni séu lífsnauðsynleg öllu lífi geta þau orðið til vandræða verði styrkur þeirra of mikill. Þau geta borist með vatni í grunnvatn, ár og læki. Þetta gerist einkum þegar enginn gróður er á ökrunum til að taka næringarefnin upp þegar þau losna í jarðveginum. Við bruna á lífrænu elds- neyti losna ýmsar lofttegund- ir út í andrúmsloftið og geta valdið mengun eða stuðlað að gróðurhúsaáhrifum. Það er því æskilegt að lágmarka orkuþörf landbúnaðarins, einkum notkun á eldsneyti úr iðrum jarðar. Þá geta varnarefni, sem notuð eru gegn illgresi, sjúk- dómum eða meindýrum borist með vindi eða vatni út fyrir þau svæði sem til er ætlast. Því þarf að auka þekkingu okkar á lífsmynstri illgresis, meindýra og sjúkdóma og verjast þeim eftir því sem unnt er án varnarefna. Eins þarf að stefna að því að framleiða vamarefni sem eru umhverf- inu sem minnst skaðleg. Varðveisla auðlinda Við búum yfir margs konar nátt- úrlegum auðlindum sem við nýtum í landbúnaði. Það skiptir miklu að vel sé með þær farið svo að þær endist sem lengst. I þessum hópi eru vatn, næringarefni, orka og erfðalindir. Hér á landi höfum við svo mikið af vatni að ekki þarf að spara það. Hins vegar þurfum við eins og aðrir að varðveita það gegn mengun. Um 70-80% þeirra næringarefna sem eru í fóðri búfjár skila sér til baka í búfjáráburðinum. Til að koma næringarefnunum í hringrás er því mikilvægt að nýta búfjár- áburðinn vel. I þéttbýli lendir mik- ið af næringarefnum í skólpi og getur það valdið vandræðum, t.d. þörungablóma. Það væri því mikill sigur ef tækist að ná næringar- efnunum úr skólpinu í formi salta og senda þau aftur í áburðarverksmiðjurnar. I Svíþjóð hefur verið fundin upp aðferð sem gæti gert þetta að veruleika. Þó svo að orkunotkun í land- búnaði sé ekki stór hluti af orkunotkun heimsins er sjálfsagt að spara hana eftir því sem kostur er, einkum eldsneyti úr iðrum jarðar. í landbúnaði eru notaðar mun færri plöntutegundir en vaxa á nátt- úrulegu landi og oft eru notuð eins- leit yrki. Þess vegna þarf að gæta þess að varðveita náttúrulegan gróður, t.d. með friðun ákveðinna svæða. Hér á landi hefur þetta ekki verið vandamál því að einungis lít- ill hluti hverrar jarðar er ræktaður. Stöðugt er unnið að kynbót- um á nytjaplöntum og því mikilvægt að varðveita eldri yrki sem eru ekki notuð leng- ur. Það verður best gert með því að varðveita þau í svoköll- uðum genbönkum. Búfjárkyn þarf einnig að varðveita, t.d. með hjálp genbanka. Gæði landbúnaðarafurða Gæði afurðanna snerta ekki aðeins bændur, heldur alla hlekkina frá bónda til neytanda. Hlutverk bóndans er að tryggja að varan meng- ist ekki í framleiðslunni né skemmist á annan hátt á með- an hún er á búinu. Síðan flyst ábyrgðin til annarra þegar varan fer þaðan. Ásýnd sveitanna Landbúnaður hefur mikil áhrif á ásýnd landsins. Þar sem landbúnaður er stundaður er landið opnara (ekki skógi vaxið) en það ella væri. Tún, akrar og búpeningur setja og svip sinn á það, sem og sveitabýlin sjálf og mannvirki sem þeim tengjast. Á ýmsan hátt getum við haft áhrif á þessa heildarmynd. Ann- ar þáttur í þessu er útlit sveita- bæjanna. Flestir vilja hafa hreint og snyrtilegt í kringum sig. Það er erfitt að sannfæra neytendur um ágæti framleiðslunnar, að varan sé holl og góð, ef umhverfið, þar sem varan er framleidd, er fráhrindandi. Siðfræði Siðfræði skiptir miklu í samfélagi manna. Það þurfa að gildá ákveðnar meginreglur til að samfélagið virki vel. Landbúnaður er þar engin und- 10 - FR€VR 2/2001

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.