Freyr - 01.04.2001, Page 2
ESB og Bandaríkin
ræða viðskiptamál
Viðskiptastjóri ESB,
Pascal Lamy, og við-
skiptaráðherra Banda-
ríkjanna, Robert Zoel-
lick, kornu saman til fundar dagana
8. og 9. mars sl. Þetta er fyrsti
fundur æðstu stjórnenda viðskipta-
mála Evrópusambandsins og
Bandaríkjanna eftir að ný ríkis-
stjóm tók þar við völdum í kjölfar
þess að George W. Bush var kosinn
forseti Bandaríkjanna.
Að loknum fundi efndu Lamy og
Zoellick til blaðamannafundar, þar
sem fram kom að þeir hefðu lagt
áherslu á þau mál sem sameinaði
þá og nefndu í því sambandi sam-
eiginleg hagsmunamál þeirra í
næstu umræðulotu Alþjóða við-
skiptastofnunarinnar, WTO.
í því sambandi var nefnd þörfin á
að auka skilning þróunarlanda á að
jákvætt sé að auka frelsi í viðskipt-
um. Þar var m.a. nefnt sem dæmi
áhugi á að auka aðgang að lyfjum í
þessum löndum og þá einkum lyfj-
um gegn eyðni.
Zoellick og Lamy drógu ekki dul
á að Bandaríkin og ESB hafi mjög
ólíkar skoðanir á ýmsum málum
landbúnaðarins. Þar má nefna af-
stöðu til bananainnflutnings til
ESB, þar sem ESB veitir löndum í
Karabíska hafinu forgang að mörk-
uðum sínum fram fyrir Bandaríkin,
hormónanotkun í búfjárrækt, þar
sem Bandaríkin aðhyllast meira
frelsi en ESB, innflutningsbann
vegna gin- og klaufaveiki og notk-
un erfðabreyttra matvæla. Þessi
mál voru þó ekki nefnd berum orð-
um.
Fyrir fundinn hafði Zoellick sagt
á fundi í viðskiptanefnd Fulltrúa-
deildar Bandaríkjaþings að ef ESB
breytir ekki reglum sínum um ban-
anainnflutning eigi Bandaríkin ekki
annars úrkosta en að leggja refsi-
tolla á einhverja vöruflokka sem
ESB flytur inn til Bandaríkjanna.
Þing Bandaríkjanna veitti heimild
til þess á sl. ári að leggja á slfka
refsitolla bæði vegna bananaút-
flutnings og útflutnings þeirra á
nautakjöti af gripum sem hafa
fengið hormónameðferð. Stjórn
Clintons hafði þó ekki beitt þessum
heimildum.
Ríkisstjóm Republikana hefur nú
hins vegar látið meira vita af sér í
þessum efnum og Bush forseti vill
fá umboð þingsins til að koma á
nýjum viðskiptasamningi við út-
lönd þar sem hagsmuna Bandaríkj-
anna sé betur gætt, svokallaður
„Trade-negotiating authority“, áður
nefndur “fast track”.
Bandaríkjaþing hefur árum
saman verið ófært um að setja slík
lög vegna deilna milli republikana
og demókrata um það hvernig
vinnumálum (svo sem vinnu
barna í fátækum löndum) og um-
hverfismálum skuli háttað í slík-
um samningi.
Bæði ESB og Bandaríkin eiga
mikilla hagsmuna að gæta á næsta
ráðherrafundi innan WTO, sem
haldinn verður í Qatar í nóvember
nk., að sýna gott fordæmi og forð-
ast að leggja á refsitolla. Ef Banda-
ríkin hefja leikinn með því að
leggja á slíka tolla þegar ESB
ákveður nýjar reglur um innflutn-
ing banana, þrátt fyrir mótmæli
Bandaríkjanna, getur ESB illa stað-
ist þá freistingu að leggja slíka tolla
á innflutning frá Bandaríkjunum
vegna lækkaðra skatta á þarlend út-
flutningsfyrirtækin og þar með er
viðskiptastríð milli landanna kóm-
ið á fullt, en það er nokkuð sem
báðir aðilar vilja án efa forðast að
hafa gerst á fundinum í Qatar.
(Intemationella Perspektiv,
nr. 11/2001).
Altalað á kaffistofurmi
Að loknu Búnaðarþingi 2001
Kctrlar í stjóminni keppast
að laga
Svo sem áður hefur Georg á
Kjörseyri, fulltrúi Stranda-
manna á búnaðarþingi, tekið að
sér að gefa þinginu stutta en lag-
góða umsögn í bundnu máli að
þingi loknu. Að þessu sinni er
hún eftirfarandi:
Eftir formannskjör varð þetta til:
Bœndasamtökin lúta því lúni
að leiðsögnin fer nokkuð
djúpt.
I farabroddi er gamli Grdni,
ganglagið öruggt en hrjúft.
Svo var kosin ný stjórn og þá
komu ný andlit inn í stjómina.
kyntöfra sína og lund.
Því brdtt munu Sólrún og
Sigríður Braga
setjast með þeim d fund.
Starfsfólk Bændasamtakanna
vann sem fyrr frábært starf með
Búnaðarþingi.
Framkvœmdastjórinn
ftmlega setti
fjörið beint í œð.
Hann d feiki fallega spretti
meðfólkinu d þriðju hœð.
2 - FR6VR 3/2001