Freyr - 01.04.2001, Blaðsíða 31
kostur á að fylgjast með frá upp-
hafiþegarum ráðstöfun rík-
isjarða er að ræða.
Þingið beinir því til landbúnaðar-
ráðherra að leiguliðum á ríkisjörð-
um verði gert kleift að eignast jarð-
irnar á kaupleigukjörum.
Greinargerð:
Reynsla síðustu áratuga hefur
sýnt með ótvíræðum hætti að jarð-
næði í eigu ríkisins hefur til muna
auðveldað nýliðun í íslenskum
landbúnaði og þannig stuðlað að
því að viðhalda lifandi byggð í
sveitum landsins.
Samþykkt samhljóða.
Matvælastefna
Búnaðarþing 2001 beinir því til
stjómar Bændasamtaka íslands að
hafa frumkvæði að því að móta
skýra matvælastefnu er taki mið af
bæði næringargildi og hollustu
matvæla sem og af fæðuöryggi,
umhverfisvemd og menningu.
Greinargerð:
Undanfarnar vikur hefur mikil
umræða verið í þjóðfélaginu um
innflutning matvæla, einkum land-
búnaðarafurða og reglur sem gilda
um slíkan innflutning. Umræðan
hefur sýnt að neytendur láta sig
þessi mál miklu varða og vaknað
hafa áleitnar spumingar um hversu
ömggt það net eftirlits er sem á að
tryggja neytendum holla, næringar-
ríka og örugga matvöru. Þetta gild-
ir jafnt um innlenda sem innflutta
matvöru.
Islenskur landbúnaður nýtur
nokkurrar sérstöðu hvaða varðar
ímynd gæða og hreinleika landbún-
aðarvara. Þá ímynd eða sérstöðu er
mikilvægt að treysta, bæði með
innri aðgerðum (gæðastýring) svo
og með því að hvetja til opinberrar
stefnumörkunar urn matvæla-
öryggi.
Mikilvægt er að Bændasamtök
íslands hafi fmmkvæði að mótun
matvælastefnu fyrir íslendinga, og
fái til liðs við sig fleiri aðila sem
málið varðar.
Samþykkt samhljóða.
Félagsmálanefnd
Jafnréttisáætlun
Búnaðarþing 2001 felur stjóm BÍ
að endurskipa jafnréttisnefnd til að
vinna að því að virkja bæði kynin
til fullrar þátttöku á öllum stigum
landbúnaðarins. Hugað verði sér-
staklega að þátttöku beggja kynja í
mikilvægustu stjómunarstörfum í
landbúnaði, enda skortir verulega á
að svo sé.
Greinargerð:
Virk þátttaka beggja kynja í land-
búnaði á öllum stigum er greininni
mikilvæg. Jafnréttisnefnd er falið
að vinna að hverskyns verkefnum
sem stuðla að auknu jafnræði milli
kynjanna. Benda má á eftirfarandi:
* Fyrirlestra, fræðslufundi, nám-
skeið til að freista þess að virkja
fleiri konur til þátttöku, annars
vegar í hverju héraði og hins
vegar í mikilvægustu stjórnunar-
stöðum.
* Tengslanet/samráðsfundi þeirra
kvenna sem þegar gegna trúnað-
arstöðum til að styðja þær í
starfi.
* Meta mikilvægi þess að móta
jafnréttisáætlun fyrir samtökin.
Samþykk með þorra atkvœða
gegn einu.
Fjárhagsaðstoð við
Landssamtök vistforeldra í
sveitum vegna kennsluforrits
Búnaðarþing 2001 beinir því til
stjómar BI að aðstoða Landssam-
tök vistforeldra í sveitum við íjár-
mögnun, þýðingu og notkun á
kennsluforriti (Foster Pride).
Þingið bendir á Framleiðnisjóð,
Menntamálaráðuneytið, Félags-
málaráðuneytið, Samband ís-
lenskra sveitarfélaga og Byggða-
stofnun sem hugsanlega fjármögn-
unaraðila.
Þingið leggur áherslu á mikil-
vægi málsins.
Samþykkt samhljóða.
Tengsl stjórnar
Bændasamtaka íslands við
búnaðarþingsfulltrúa
Búnaðarþing 2001 leggur til við
stjórn Bændasamtaka íslands að
tengsl hennar við búnaðarþingsfull-
trúa verði markvissari en verið hef-
ur, og bendir í því sambandi á:
* Búnaðarþingsfulltrúum og að-
ildarfélögum Bændasamtaka Is-
lands sé tryggður aðgangur að
fundargerðum stjórnar Bænda-
samtakanna eftir hvem fund.
* I tengslum við árlegar fundar-
ferðir stjórnarmanna Bænda-
samtakanna haldi stjómarmenn
samráðsfund með þeim búnað-
arþingsfulltrúum sem hafa lög-
heimili í landsfjórðungnum.
Samþykkt samhljóða.
Endurskoðun þingskapa
búnaðarþings
Búnaðarþing 2001 samþykkir
breytingar þær á þingsköpum sem
feitletraðar eru í eftirfarandi texta.
1. grein
Formaður stjórnar Bændasam-
takanna setur búnaðarþing og
stjórnar kosningu kjörbréfanefndar,
sbr. 2. grein, og stýrir fundi þar til
kosning embættismanna þingsins,
þ.e. forseta og varaforseta, sbr. 3.
grein, hefur farið fram.
Að kosningu lokinni skulu for-
maður og framkvæmdastjóri flytja
skýrslur sínar og að því búnu skulu
leyfðar almennar umræður.
2. grein
í upphafi þingsins skal kjósa
kjörbréfanefnd, skipaða þremur
mönnum. Hún leggur fram tillögur
sínar áður en fyrsta fundi þingsins
lýkur og skal á þeim fundi úrskurða
kosningu þingfulltrúa, eftir því sem
við á.
Að loknum kosningum til Bún-
FR€VR 3/2001 - 31