Freyr - 01.04.2001, Page 12
Rögnvaldur Ólafsson, Flugumýrarhvammi, og Ágúst Sigurðsson, Geitaskarði.
verða til þess að bæta þama úr
skák.
7. Sigríður Bragadóttir kvað
slæm kjör bænda vera mesta
áhyggjuefnið. Staða sauðfjár-
bænda hefur lítið batnað með nýj-
um samningi enda má segja að þar
sé einungis um að ræða tilfærslur á
stuðningsgreiðslum úr einum vasa í
annan. Þó að afurðaverðið hafí
hækkað lítillega þá hafa kostnaðar-
liðirnir hækkað meira, t.d. olía,
dýralæknaþjónusta o.fl. Þá taldi
hún það vera stóran galla á upp-
kaupalið samningsins að þar sem
tveir bændur búa saman á jörð og
eru hvor með sitt greiðslumarkið þá
geti annar ekki selt nema hinn vilji
það líka. 300 kr. á kg í skattmat á
heimteknu kjöti er alltof hátt, enda
taka bændur yfirleitt lélegasta kjöt-
ið heim og myndu þeir fá mun
minna fyrir það ef þeir legðu það
inn. Hækkun á reiknuðu endur-
gjaldi kvað hún óskiljanlega og
spurði hvort einhver dæmi væru
þess að bændur hefðu fengið
38,5% launahækkun á síðasta ári.
Þá taldi hún lyfjareglugerðina vera
óskiljanlega, sérstaklega þar sem
fjallað væri um notkun sýklalyfja í
blandað fóður og drykkjarvatn,
sem þekktist ekki á íslandi. Hún
kvað laxabændur að vonum vera
áhyggjufulla vegna fyrirhugaðs
laxeldis á Austurlandi. Taldi hún
að full geyst væri farið í þessum
laxeldisáformum og lýsti furðu
sinni yfir því að ekki skyldi skil-
yrðislaust gert ráð fyrir umhverfis-
mati vegna þeirra. Hver búfjársjúk-
dómurinn á fætur öðrum hefur lost-
ið niður í Evrópu og því verður að
stoppa, a.m.k. tímabundið, allan
innflutning landbúnaðarafurða til
landsins. Framtíð íslensks landbún-
aðar byggist á hreinleika og gæð-
um.
8. Þorsteinn Kristjánsson lýsti í
fyrstu ánægju sinni með fjölgun
kvenna í hópi fulltrúa. Vonaðist
hann jafnframt til að sú tillaga um
jafnréttismál, sem fyrir þinginu
lægi, myndi enn bæta um betur í
þessum efnum. Honum var ofar-
lega í huga sú vá sem stafar af bú-
fjársjúkdómum í nágrannalöndun-
um og kvað hana hafa vakið bænd-
ur jafnt sem neytendur til umhugs-
unar um hreinleika og hollustu ís-
lenskra afurða. Við verðum að
verja þetta með því að beita auknu
eftirliti og hverjum þeim hömlum
sem völ er á varðandi innflutning á
dýrum, kjöti, fóðri o.s.frv. Þetta
ætti einnig að verða okkur ábend-
ing um að forðast þær verksmiðju-
framleiðsluaðferðir sem viðgangast
í Evrópu og auka á sjúkdómahættu
og torvelda eftirlit. Landbúnaðar-
kerfið í Evrópu gerir ráð fyrir enda-
lausum flutningi lífdýra og slátur-
dýra fram og til baka og sömuleiðis
hvað varðar fóður og afurðir. Þetta
má rekja til þeirrar gegndarlausu
framleiðnikröfu sem evrópskur
landbúnaður þarf að búa við.
Margir sérfræðingar erlendis telja
nú að hverfa verði frá þessari
stefnu. Mikil endurskipulagning og
hagræðing hefur orðið í félagskerfi
bænda hér í höfuðstöðvunum, en
úti í héruðunum er við stöðugt vax-
andi vandamál að stríða hvað varð-
ar rekstur flestra búnaðarsamband-
anna og tryggja þarf fjárhagslegar
undirstöður þeirra til framtíðar.
Verkefni þeirra fara síst minnkandi
og sífellt er verið að bæta verkefn-
um á búnaðarsamböndin með hvers
konar lagasetningu og reglugerðar-
smíð. Við verðum að fikra okkur
meira inn á braut aukinnar gjald-
töku hjá búnaðarsamböndunum, en
sú braut er vandrötuð og þarfnast
langs aðlögunartíma. Halda þarf
áfram að vinna að bættri umgengni
og útliti sveitarbæja og treysta
verkefnið „Fegurri sveitir“ í sessi.
Við getum ekki ætlast til þess að
neytendur telji afurðimar bera vott
hreinleika og hollustu ef umgengni
á bæjunum er ábótavant. Gæðastýr-
inguna í sauðfjárræktinni taldi hann
eiga að geta orðið sauðfjárbændum
bæði góður skóli og ánægjulegur.
Mönnum vex þetta kannski í aug-
um í upphafi, en langflestir sem
takast á við verkefnið, munu hafa
af því bæði gagn og gaman.
9. Agúst Sigurðsson þakkaði í
fyrstu fyrir skörulegar ræður við
setningu þingsins. Hann fjallaði
síðan um fasteigna- og brunabóta-
mat í dreifbýli og greindi frá því að
Samtök atvinnulífsins hafi nú, fyrir
hönd eins skjólstæðinga sinna,
höfðað mál gegn Mýrdalshreppi
vegna aftekins fasteignaskatts fjög-
ur ár aftur í tímann. Líklegt mætti
12 - pR€YR 3/2001