Freyr - 01.04.2001, Qupperneq 18
Sigurður Loftsson, Steinsholti, og Jón Benediktsson, Auðnum.
rekstur afurðastöðvanna er bænd-
um gífurlega mikils virði, en bænd-
ur verða að verja stöðu sína í þeim
miklu hræringum sem nú eiga sér
stað í málefnum þeirra. Það vakti
athygli hans hversu þau mál sem
fyrir þinginu liggja eru misvel fram
sett. Hann taldi það verða mjög til
bóta ef stjórn Bændasamtakanna
fengi heimild til þess að endur-
senda illa unnin mál og biðja um
betri vinnslu á þeim. Bændum fer
stöðugt fækkandi og því er það
mikilvægt að bæði kynin séu virkj-
uð í félagsmálum stéttarinnar.
Auka þarf hlut kvenna í forystu-
sveit bænda og það þurfa menn líka
að hafa í huga við stjómarkjör á
þessu þingi.
25. Georg Jón Jónsson bauð nýja
fulltrúa velkomna til starfa og
þakkaði fyrir góðar setningarræður
og framlögð gögn. Þinginu er
skammtaður naumur tími til að af-
greiða fyrirliggjandi mál með
sóma. Kvaðst hann óttast að af-
greiðsla einhverra þeirra gæti því
orðið með handahófskenndum
hætti. Vanda verður betur undir-
búning þeirra mála sem lögð eru
fyrir þingið. Hann kvað hugmynd
Hilmars Össurarsonar um að
Bændasamtökin fengju lögfræðing
til liðs við sig vegna þjóðlendumál-
anna vera góða. Þegar þjóðlendu-
lögin voru fyrst kynnt var ein-
göngu verið að fjalla um hálendi Is-
lands, en nú nær þetta allt niður í
fjöruborð. Kröfugerð ríkisvaldsins
er með ólíkindum og þeir dómar,
sem hafa fallið í Hæstarétti að und-
anförnu um eignarrétt lands, vekja
manni ekki bjartsýni um niðurstöð-
umar í Amessýslu. í lögunum um
búfjárhald er enn höggvið í sama
knérunn og kostnaðinum við eftir-
litið varpað yfir á búfjáreigandann.
Stöðugt er verið að bæta álögum og
eftirlitsgjöldum á bændur. Varðandi
gæðastýringarákvæði sauðfjár-
samningsins kvaðst hann þeirrai'
skoðunar að þeir bændur einir, sem
geta staðið sig innan gæðastýring-
arinnar, eigi möguleika til framtíð-
ar. Við verðum að líta á gæðastýr-
inguna sem þróunarverkefni og það
mun taka allan samningstímann að
koma henni í viðunandi horf. Ef við
notumst við þrjú boðorð um fram-
kvæmd hennar, þ.e. að hún verði í
senn einföld í framkvæmd, ódýr og
auðskilin, bæði fyrir bændur og
neytendur, þá mun hún ganga upp.
En án gæðastýringar getum við
ekki tryggt hollustu og hreinlæti
framleiðslunnar.
26. Jón Gíslason kvað sér vera efst
í huga þeir miklu fjármunir sem
færu í félagskerfi landbúnaðarins
og taldi nýtingu þeirra slæma.
Búnaðargjaldið, sem innheimt var
af bændum, nam kr. 425 milljónir á
sl. ári. Félagskerfið er of umfangs-
mikið og ijármunimir dreifast of
mikið. Sóknarfærin í lækkun bún-
aðargjaldsins liggja í því að ein-
falda kerfið, m.a. með því að
þjappa saman starfsemi búnaðar-
sambanda og búgreinafélaga heima
í héruðunum. Við megum ekki
dreifa kröftunum þar. Endurskoðun
búnaðarsamningsins er í uppnámi.
í þeim efnum voru kúasæðingamar
honum efst í huga, en ennfremur
kynbótastarfið í nautgriparæktinni í
heild. Hinn mikli niðurskurður til
kúasæðinganna á undanförnum ár-
um hefur rýrt allt kynbótastarfið.
Sterk réttindi frjótæknanna, s.s.
biðlaunaréttur o.þ.h. veldur búnað-
arsamböndunum vandræðum við
að endurskipleggja sæðingarstarf-
ið. Búnaðarþing þarf að álykta um
að fjárveitingar til sæðinganna
verði stórauknar. NRF-málið er í
biðstöðu, en búið er að afmarka
fjármuni til verkefnisins. Nýta
mætti þá fjármuni, sem til þess
vom ætlaðir, til að styrkja kynbóta-
starfið. Gæðastýringin var sú gulrót
sem nýtt var til þess að ná sauðfjár-
samningnum í gegn. Við verðum
að útfæra hana á eins einfaldan hátt
og frekast er kostur. Það er miður
við samninginn að með honum er
komið í bakið á þeirn bændum sem
sinntu kallinu og aðlöguðu sig að
innanlandsframleiðslunni á sínum
tíma, því að þeir fá ekki jöfnunar-
greiðslur nú. Framkvæmdanefnd
búvörusamninga verður að skil-
greina það á allra næstu dögum
hvað eðlilegt sé að það taki þá, sem
skáru niður vegna riðu, mörg ár að
koma upp fullum fjárstofni. Viður-
kenna þarf að það taki fimm ár að
koma upp fullum fjárstofni og þeir
fái þá jafnframt hlutdeild í jöfnun-
argreiðslunum eins og aðrir þeir
sem sauðfjárframleiðslu stunda.
27. Gunnar Sæmundsson bauð
nýja fulltrúa og samtök velkomin
18 - FRGVR 3/2001