Freyr - 01.04.2001, Síða 21
Sannarlega verður um nokkuð
aukna vinnu að ræða hjá búnaðar-
samböndunum, en ekki má gleyma
því að hér verður um dæmigerð
leiðbeiningarverkefni að ræða, þ.e.
að leiðbeina mönnum til að ná betri
árangri í búskap. Fyrir hvert býli
sem sendir fulltrúa á gæðastýring-
arnámskeið, verða viðkomandi
búnaðarsambandi greiddar kr.
5.000 fyrir tveggja daga námskeið.
Það ætti að standa undir þeim
kostnaði sem búnaðarsamböndin
verða fyrir vegna þessa. Þá eru kr.
35 milljónir á ári ætlaðar til þess að
þróa samninginn og koma honum í
framkvæmd og þar eru möguleikar
fyrir hendi til stuðnings við búnað-
arsamböndin. Landssíminn ntun
leggja mikið á sig til að koma þeim
sveitabýlum, sem þess óska, í við-
unandi intemetsamband. Þetta gef-
ur okkur mikla möguleika á að
auka fræðslu fyrir bændafólk og
jafnframt nýja möguleika til þess
að nýta þau forrit sem við eigum og
tengja þau betur saman. Varðandi
mjólkurkvótann tók hann undir
með Þórólfi að ef að annmarkar
reynast of miklir á núverandi fyrir-
komulagi verði að reyna aðrar leið-
ir. Ekki má hins vegar rjúka í nýtt
kerfi umhugsunarlaust. Eftir árið
2005 verður að teljast líklegt að
stuðningsform við mjólkurfram-
leiðsluna verði með öðmm hætti en
það er nú og því fyrr sem við áttum
okkur á því hvemig því verður hátt-
að því betra. Það er eðlilegt að
margir teljir NRF-málið ekki vera
málefni búnaðarþings, en stað-
reyndin er hins vegar sú að Bænda-
samtökin em annar aðilinn að inn-
flutningsleyfinu með Landssam-
bandi kúabænda. Miklar deilur
standa um þetta mál og því ekki
skynsamlegt fyrir Bændasamtökin
að hlaupa frá því nú. Hann vonaðist
til að búnaðarþing gefi nýrri stjórn
heimild til að taka ákvarðanir um
það hvort samtökin ætli að standa
að þessum innflutningi og hvenær
flutt skuli inn. Mikill misskiln-
ingur hefur verið í gangi um þetta
mál og margir virðast ekki átta sig
á því að það snýst um að gera af-
markaða tilraun á tveimur tilrauna-
búum. Þá greindi hann frá því að
búnaðarráð hafi haldið fyrsta fund
sinn í desember sl. Fundurinn þótti
vel heppnaður, þar voru flutt góð
erindi og umræður voru líflegar.
Ráðið mun væntanlega starfa áfram
á svipuðum grundvelli. íslenskur
landbúnaður hefur alllengi lagt sig
fram um að framleiða góðar og
sífellt fjölbreyttari vörur, öflugt
kynningarstarf hefur verið rekið í
skólum landsins og öllum fjölmiðl-
um hefur verið sinnt vel og áhersla
lögð á jákvæð tengsl við þá. ímynd
íslensks landbúnaðar hefur því ekki
eingöngu batnað vegna kúariðunn-
ar í Evrópu. Hún er eins og hún er
af því að íslenskir bændur eiga
hana skilið, en við verðum að
leggja mikið á okkur til að viðhalda
henni í framtíðinni.
Kosnar fastanefndir þingsins
Samkvæmt tillögu sem fram kom
voru fastanefndir kjömar þannig og
þeim ákveðnir aðstoðarmenn:
1. Fjárhagsnefnd
Amar Bjami Eiríksson
Gísli Grímsson
Guðmundur Grétar Guðmunds-
son
Gunnar Sæmundsson
Jón M. Jónsson
Aðstoðarm.:
Gunnar Hólmsteinsson /
Gylfi Þór Orrason
2. Allsherjarnefnd
Agúst Sigurðsson
Baldvin Kr. Baldvinsson
Bjami Ásgeirsson
Jóhann Már Jóhannsson
Lárus Sigurðsson
Sigríður Bragadóttir
Sveinn Ingvarsson
Aðstoðann.:
Ámi Snæbjömsson
3. Félagsmálanefnd
Ásta Ólafsdóttir
Egill Sigurðsson
Einar Ófeigur Bjömsson
Jónas Helgason
Kristín Linda Jónsdóttir
Sigurður Jónsson
Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson
Örn Bergsson
Aðstoðann.:
Jóhann Ólafsson
4. Fagráða- og búfjárræktar-
nefnd
Eggert Pálsson
Guðmundur Jónsson
Haraldur Benediktsson
Jóhannes Ríkharðsson
Sigríður Jónsdóttir
Sigurður Loftsson
Þórólfur Sveinsson
Aðstoðarm.:
Jón Viðar Jónmundsson
5. Framleiðslu- og markaðsnefnd
Aðalsteinn Jónsson
Georg Jón Jónsson
Guðbjartur Gunnarsson
Gunnar Jónsson
Gústaf Sæland
Jón Gíslason
Sólrún Ólafsdóttir
Aðstoðarm.:
Ólafur R. Dýrmundsson /
Magnús Á. Ágústsson
6. Kjaranefnd
Bjami Stefánsson
Karl Kristjánsson
María Hauksdóttir
Rögnvaldur Ólafsson
Sigurbjartur Pálsson
Þórhildur Jónsdóttir
Aðstoðarm.:
Erna Bjamadóttir
7. UmhverFis- og jarðræktar-
nefnd
Auðbjöm Kristinsson
Hilmar Össurarson
Jón Benediktsson
Kjartan Ólafsson
Svana Halldórsdóttir
Þorsteinn Kristjánsson
Aðstoðarm.:
Óttar Geirsson
7. þingfundur
Forseti minntist í upphafi fundar
Jóns Ólafssonar, bónda í Eystra-
Geldingaholti í Gnúpverjahreppi,
FR6VR 3/2001 -21