Freyr

Volume

Freyr - 01.04.2001, Page 25

Freyr - 01.04.2001, Page 25
en áður. Gæði og fjölbreytni í fram- boði búvaranna eykst sífellt og öryggi þeirra er viðurkennt. Stöðug er unnið að kynningarstarfi á ein- stökum búvörum og landbúnaðin- um í heild og er þar, umfangsmest auglýsingastarf afurðastöðva og matvöruverslana en af sameigin- legu kynningarstarfi landbúnaðar- ins ber hæst á liðnu ári landbúnað- arsýninguna Bú 2000 og kynningu á landbúnaðinum í skólum lands- ins. Ætla má að afkoma margra bænda hafi batnað á liðnu ári í kjöl- far aukinna afurða og söluaukning- ar margra búvara. Það breytir þó ekki því að bændur eru enn tekju- lægsta stétt þjóðfélagsins og sú kjarabót, sem þeir hafa náð á liðn- um árum, er minni en hjá mörgum öðrum stéttum. Hvernig má bæta afkomu bænda? En hvemig má þá bæta afkom- una? Við höfum á undanförnum ár- um náð miklum árangri í kynbótum búfjárstofna, í sumum greinum með innfluttu erfðaefni en einnig með öflugu innlendu ræktunar- starfi. Áfram þarf að halda á þeirri braut. Við höfum einnig náð að hagræða á mörgum sviðum, ekki síst í afurðavinnslunni, en þar hefur á liðnu ári orðið meiri samþjöppun og hagræðing en um langt árabil. Fjárfestingar úti á búunum eru hins vegar miklar og kostnaðarsamar og bæði stjóm fjárfestinga og fjármála er víða ekki nægilega traust. Þar við bætist að raunvextir af skamm- tímalánum eru mjög háir og að- gengi að rándým lánsfé auðvelt. Við þessu er erfitt að bregðast en það hlýtur að vera forgangsverk- efni fagstofnana landbúnaðarins að auka upplýsingaflæði og ráðgjöf um fjárfestingar og fjármögnun. Sú vaxtastefna sem rekin hefur verið undanfama mánuði er sér- stakt áhyggjuefni, henni mun ætlað að draga úr þenslu í þjóðfélaginu, en ekki verður betur séð en hún sé að snúast í andhverfu sína með því að færa fjármuni frá atvinnulífinu og skuldsettum heimilum til þeirra sem fé áttu fyrir. Þessi mikla til- færsla viðheldur þenslu í fjárfest- ingum og neyslu sem vaxtaokrinu er ætlað að spoma gegn. Hér verður að verða breyting á því ella þrengir um of að undirstöðuatvinnuvegum þjóðarinnar. Á landbúnaðinn er sífellt hlaðið nýjum álögum, ekki síst í formi hvers kyns eftirlits og þjónustu- kostnaðar. Á liðnu ári ber hæst nýja lyfjareglugerð, sem sett var þrátt fyrir rökstudd mótmæli Bænda- samtakanna, og bændum kynnt sem krafa Evrópusambandsins sem reynst hefur blekking. Við búum því nú við strangari reglugerð á þessu sviði og þar af leiðandi meiri kostnað en mörg Evrópuríki. Eftir- litskostnaðuur í sláturhúsum hefur einnig aukist verulega og mikill kostnaður fylgir aukinni skipulags- skyldu. Svo virðist sem æ fleiri geti haft atvinnu af að líta eftir starf- semi á landsbyggðinni þó að störf- um í framleiðslu þar fækki. Land- búnaðarráðuneytið er tengiliður okkar við stjómkerfið og reglu- gerðaflóð þess, því þyrfti vörn ráðuneytisins á þessu sviði að vera öflugri. En það hafa einnig gerst jákvæðir hlutir varðandi álögur á bændur. Fasteignagjöld af íbúðarhúsum í sveitum eru nú í fyrsta sinn um langt skeið reiknuð að matsverði og lækka því víða mikið. Eftir fimm ára baráttu liggur nú fyrir að bruna- bótamat bygginga í sveitum verður endurreiknað með tilliti til aldurs Þeirra sem mun lækka þennan gjaldstofn vemlega. Þá er einnig rétt að nefna að framlög til jöfnunar námskostnaðar hafa verið aukin verulega og framlög til niður- greiðslu húshitunarkostnaðar hafa einnig hækkað. Síðast Búnaðarþing gerði kröfu um að við breytingar á þjóðlendu- lögum yrði eignarréttur þinglýstra jarðeigna treystur. Alþingi taldi ekki þörf á því og urðu ekki breyt- ingar á þeim hluta laganna. Dómar um eignarhald á landi í Ámessýslu hafa ekki fallið enn og var miður að ríkið skyldi ekki fresta annarri kröfugerð þar til þeir dómar væru fallnir. Kröfur ríkisins um eignar- hald á landi í Austur-Skaftafells- sýslu voru því jafn ósanngjamar og kröfugerð á hendur Ámesingum. Við umræður um þær kröfur kom þó fram hjá mörgum alþingismönn- um að þeir hefðu ekki ætlað nkinu þann eignarhlut sem það nú krefst. Ætíð er slæmt ef ákvarðanir og til- skipanir eru óskýrar en með sama hætti og eðlilegt er að dómarar skýri dóma sína fyrir Alþingi hlýtur að vera eðlilegt að alþingismenn skýri óljósa lagasetningu sína fyrir þeim dómurum sem dæma eftir lögunum. Því virðist tilefni til að horfa með nokkurri bjartsýni til niðurstaðna Óbyggðanefndar. Hugsanleg aðild íslands að ESB? Á liðnu ári hefur verið mikil um- ræða um stöðu Islendinga í Evr- ópusamstarfi og hugsanlega aðild íslands að Evrópusambandinu. Ut- anríkisráðherra flutti Alþingi í apríl sl. skýrslu um áhrif aðildar þar sem m.a. kom fram að aðild myndi þrengja mjög að flestum greinum landbúnaðarins. Á vegum Fram- sóknarflokksins hefur síðan verið unnið að frekari athugun á fyrir- komulagi Evrópusamstarfs og er niðurstaða þeirrar vinnu sú að væn- legast sé að treysta samstarfið gegnum áframhaldandi aðild að Evrópska efnahagssvæðinu. Við höfum gegnum norrænt sam- starf reynt að fylgjast með þróun þessara mála á Norðurlöndunum, ekki síst í Noregi, en gangi Noregur í Evrópusambandið eigum við fárra kosta völ. Á liðnu vori var meiri- hluti Norðmanna fylgjandi aðild og voru norskir bændur þá mjög áhyggjufullir og kviðu nýjum þjóð- félagsátökum en þeir voru í forystu andstöðu við inngöngu árið 1995 og sköpuðu sér með því óvild margra valdamikilla stjórnmála- manna. Nú hafa hlutföll breyst og pR€VR 3/2001 - 25

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.